Morgunblaðið - 12.03.2020, Síða 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Á ÍSLANDI6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
ESTRO Model 3042
L 164 cm Áklæði ct. 70 Verð 249.000,-
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Mjög hefur verið fjallað um kórónu-
veiru að undanförnu og afleiðingar
hennar á íslenskt samfélag. Hefur
ríkislögreglustjóri meðal annars lýst
yfir neyðarstigi almannavarna og
landlæknir hvatt almenning til að
„gæta mikillar varúðar“ og kynna
sér lista yfir æskilegt birgðahald
heimila í heimsfaraldri, en listann
má nálgast á heimasíðu embættis-
ins. Þá hefur landlæknir sagt fólki
að „eiga meira til en vanalega“.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segist greina
meiri sölu matvöru með lengra
geymsluþol. Þá segir hann einnig
mikla ásókn vera í handspritt, en
spritt er nú að líkindum uppselt í öll-
um verslunum Bónuss.
„Fólk er almennt að kaupa meira,
það leynir sér ekki. Það er að birgja
sig upp af frysti- og þurrvöru. Það er
gríðarleg aukning í sölu á þessum
vörum,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið og bætir við að kaup-
hegðun fólks hafi því breyst talsvert
eftir tilkomu kórónuveirunnar.
Nokkuð hefur borið á því að fólk
klæðist hönskum í almenningi, s.s. í
verslunum. Að sögn Guðmundar eru
allir helstu snertifletir verslana Bón-
uss þrifnir mjög reglulega.
„Þetta eru staðir á borð við kerru-
handföng og snertifleti á kössunum
sem eru sérstaklega vel þrifnir,“
segir hann og bætir við: „Við gerum
allt sem við getum og förum í einu og
öllu eftir tilmælum landlæknis.“
Þá segir Guðmundur nú alla vera
að leita að spritti, en von er á nýrri
sendingu í verslanir á morgun.
Starfsmenn klæðast hönskum
Gréta María Grétarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Krónunnar, tekur í
svipaðan streng; frysti- og þurr-
vörur rjúka út úr verslunum.
„Það er mun meira að gera hjá
okkur núna en að jafnaði á þessum
tíma árs,“ segir hún og bætir við:
„Ég held að það sé ljóst að fólk sé að
fara eftir tilmælum landlæknis,
heldur sig meira heima núna og fer
um leið minna út að borða.“
Aðspurð segist hún þó ekki greina
neitt óþarfa hamstur hjá fólki; flestir
séu yfirvegaðir í innkaupum þótt
kauphegðun hafi tekið breytingum.
„Við sjáum það þó að þurrvara
hefur verið að sækja á síðastliðnar
tvær vikur á kostnað ferskvöru.“
Margar verslanir bjóða nú við-
skiptavinum sínum upp á einnota
hanska auk þess sem búið er að
koma fyrir sprittstöndum víða í
verslunum. Hjá Krónunni líkt og
Bónuss eru allir helstu snertifletir
þrifnir mjög reglulega.
„Allar sjálfsafgreiðslustöðvar eru
sprittaðar á minnst klukkutíma
fresti, í sumum tilfellum oftar.
Starfsmenn okkar eru einnig flestir
byrjaðir að ganga um í hönskum og
gæta vel að hreinlæti,“ segir Gréta
María enn fremur.
Veiran hefur breytt
kauphegðun fólks
Vörur með lengra geymsluþol seljast betur en áður
Morgunblaðið/Eggert
Vel varin Þessi kona nýtti sér spritt og hanska í verslunarleiðangri sínum og það gerðu fleiri viðskiptavinir einnig.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Embætti landlæknis segir ekki hægt
að útiloka samkomubann hér á landi
vegna útbreiðslu kórónuveiru. Með-
an faraldur geisi þurfi ávallt að meta
hvort rétt sé að halda viðburð eða
hvort betra sé að fresta tilteknum
viðburði þar til faraldur sé genginn
yfir. Segir landlæknir mikilvægt að
gætt sé að smitvörnum á fjölmenn-
um mannamótum.
Vignir Egill Vigfússon, kynn-
ingarstjóri Borgarleikhússins, segir
grannt fylgst með tilmælum yfir-
valda. Á meðan ekkert samkomu-
bann sé í gildi megi gera ráð fyrir
óbreyttri dagskrá hjá leikhúsinu.
„Við höldum áfram okkar striki
hvað sýningar varðar þar til okkur er
sagt eitthvað annað. Ef þær aðstæð-
ur koma upp erum við með klárt við-
bragð sem hægt er að grípa til,“
segir hann og bætir við að mikil
áhersla sé nú lögð á þrif í leikhúsinu,
bæði í rýmum starfsmanna og gesta.
Aðspurður segir Vignir Egill fólk
hafa sett sig í samband við leikhúsið
undanfarið til að fá upplýsingar um
hvort sýningar muni falla niður
vegna faraldursins. „Það er eitthvað
um það. Við höfum einnig fengið ein-
hverjar fyrirspurnir frá eldra fólki
og þeim sem eru með undirliggjandi
heilsufarsvandamál.“
Reyna að tryggja umhverfið
Svanhildur Konráðsdóttir, for-
stjóri Hörpu, tekur í svipaðan
streng, vel sé fylgst með öllum til-
mælum yfirvalda. „Einnig er reynt
að tryggja að umhverfi hér sé
öruggt, hreint og sótthreinsað.“
Viðburðahald heldur því áfram í
Hörpu þótt það sé ekki í sama magni
og til stóð.
Viðburðahaldarar
fylgjast vel með
Dagskrá heldur
áfram á meðan ekk-
ert bann er í gildi
Morgunblaðið/Golli
Listamenn Frá Bláa hnettinum sem
sýnd var í Borgarleikhúsinu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stjórnendur stórra hjúkrunarheim-
ila segja að vel gangi að framfylgja
heimsóknabanni. Aðstandendur og
íbúar sýni aðgerðunum almennt
skilning en vissulega þurfi að skýra
málið sérstaklega út fyrir sumum.
Á heimilum Hrafnistu og Grundar
er lögð áhersla á að starfsmenn
stoðdeilda séu inni á deildunum til
að auka virkni þar og róa íbúa.
Í kjölfar þess að almannavarnir
lýstu yfir neyðarstigi vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar gripu
stjórnendur hjúkrunarheimila al-
mennt til þess ráðs að banna eða
takmarka mjög heimsóknir til íbúa
heimilanna. Tilgangurinn er vita-
skuld að reyna að vernda í lengstu
lög þann hóp sem sjúkdómurinn
leggst þyngst á.
Erfið tilvik
„Þetta eru aðstæður sem við höf-
um aldrei verið í áður. Þetta hefur
gengið ótrúlega vel. Aðstandendur
og íbúar hafa sýnt þessu skilning og
margir raunar sent okkur hvatn-
ingu. Einstaka er með spurningar,
sem við reynum að svara eftir bestu
getu,“ segir María Fjóla Harðar-
dóttir, framkvæmdastjóri heil-
brigðissviðs Hrafnistuheimilanna.
„Við skiljum að erfitt getur verið
að fá ekki að heimsækja sína nán-
ustu en við hvetjum fólk sem hefur
áhyggjur til að hafa samband við
okkur og leita annarra leiða til sam-
skipta, til dæmis eftir rafrænum
leiðum. Við verðum að taka meiri
hagsmuni fyrir minni með velferð
íbúanna í huga,“ segir Gísli Páll
Pálsson, forstjóri Grundarheimil-
anna. Hann telur að almennt hafi
Íslendingar gripið til róttækra að-
gerða í vörnum gegn veirunni og
vonast hann til að það skili árangri.
Erfiðast er að meina fólki sem
hefur verið náið í áratugi og sinnt
maka sínum vel að heimsækja
makann. Undanþágur frá heim-
sóknabanni eru veittar á Grund og
Hrafnistu, ef sérstaklega stendur á,
svo sem þegar íbúar eru í lífsloka-
meðferð.
Tilmæli til starfsfólks
Sjúkraþjálfar, iðjuþjálfarar og
fleira starfsfólk stoðdeilda eru
meira inni á deildunum en endra-
nær til að þess að auka virkni þar.
Það skapar líka ró hjá íbúum. „Við
reynum að gera eins gott úr þessu
og hægt er,“ segir María.
Eðli málsins samkvæmt fer
starfsfólk heim til sín og út í sam-
félagið og mætir aftur til vinnu.
Gísli Páll segir að hægt sé að
stöðva heimsóknir en starfsfólkið
verði að koma til vinnu. Því sé ekki
raunhæft að ætla að hægt sé að
koma alveg í veg fyrir smit, aðeins
draga úr því. Hann segist ekki geta
bannað starfsfólki að fara til út-
landa eða á samkomur innanlands
en framkvæmdastjórn heimilanna
hafi beðið það að reyna að draga úr
því eins og mögulegt er. Sömu til-
mælum beinir Hrafnista til síns
starfsfólks.
María segir að brýnt sé fyrir
starfsfólki að gæta að hreinlæti og
sleppa því að mæta til vinnu ef það
er með flensulík einkenni. Sama
gildi um þá sem komi með aðföng.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaffitími Íbúar hjúkrunarheimila
eru rólegir þrátt fyrir aðgerðir.
Sýna heimsóknar-
banni skilning
Starfsfólk stoðdeilda hjúkrunar-
heimila heldur uppi virkni á deildunum