Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020 Komdu í kaffi Café AUSTURSTRÆTI SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI AKUREYRI VESTMANNAEYJUM Það svar fékkst frá Isavia að ekki væru birtar upplýsingar um skipt- ingu flugumferðar eftir flugfélögum. Þá væri á þessu stigi ekki hægt að segja mikið um áhrif gengis- sveiflna á samkeppnishæfni flugvall- arins. Icelandair eykur hlut sinn Samkvæmt talningu Ferðamála- stofu var Icelandair með 44% af brottförum frá Keflavíkurflugvelli frá janúar til 8. mars 2019 en 60% af brottförum sama tímabil í ár. Hlutur WOW air af flugumferðinni þetta tímabil í fyrra var um 25%. Áðurnefndar tölur um fækkun brottfara ná til allra farþega, er- lendra sem innlendra ferðamanna. Samkvæmt greiningu Ferðamála- stofu fækkaði brottförum erlendra farþega um 13% í janúar og um 11% í febrúar, miðað við fyrra ár. Alls 1.986 þúsund erlendir ferða- menn komu til landsins um Kefla- víkurflugvöll í fyrra. Ef þeim fækk- ar jafn mikið í ár og fyrstu tvo mánuði ársins munu um 200 þúsund færri erlendir ferðamenn koma í ár. Mikil óvissa er um slíkar spár. Útlit er fyrir offramboð Ljóst er að flugframboð mun dragast saman í mars og apríl en óvíst er um áhrif kórónuveirunnar á ferðasumarið. Hver sem niðurstað- an verður er útlit fyrir offramboð af þjónustu til ferðamanna í ár, sem aftur gæti leitt til gjaldþrota. Með öðrum orðum gæti orðið fylgni milli fækkunar ferða og gjaldþrota. Sam- kvæmt samantekt Hagstofu Íslands námu tekjur af erlendum ferða- mönnum hérlendis og erlendis alls um 470 milljörðum í fyrra. Það var um 50 milljarða samdráttur milli ára en sem áður segir hætti WOW air rekstri 28. mars fyrra. Í þessari tölu eru taldar með tekjur flugfélaganna af tengiflugi. Verði almennt 10% samdráttur í tekjum af erlendum ferðamönnum, hvort sem þeir koma til landsins eða fara í tengiflug, mun það þýða að tekjurnar dragast saman um 50 milljarða til viðbótar. Með því yrðu tekjurnar í ár um 100 milljörðum króna lægri en árið 2018. Jakob Rolfsson, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu, segir mikla óvissu um þróunina í ferðaþjónustu. Því skorti forsendur til að leggja mat á hugsanlegt tekjutap greinarinnar vegna kórónuveirunnar. 1.100 færri brottfarir en á sama  Fækkun vegna kórónuveiru bætist við áhrif af falli WOW  Útlit fyrir aukinn samdrátt vegna færri ferða Icelandair Fjöldi brottfara frá Kefl avíkurfl ugvelliSamanburður á 2019 og 2020 4.000 3.000 2.000 1.000 0 2019 2020 Janúar Febrúar Mars* Samtals, jan.- 8. mars* *Til og með 8. mars. Afl ýst fl ug eru ekki með. -23% -28% -23%-34% 1.230 1.852 1.226 1.593 363474 2.819 3.919 Heimild: Isavia Jón Bjarki Bentsson Jakob Rolfsson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Alls 1.100 færri brottfarir voru frá Keflavíkurflugvelli til og með 8. mars en sama tímabil í fyrra. Fækkunin milli ára er sýnd á grafi hér til hliðar. Hún var mest í janúar, eða um 34%, en um 23% í febrúar og tímabilið 1. til 8. mars. Flugfélagið WOW air var starf- andi til 28. mars í fyrra. Brotthvarf félagsins er stærsta skýringin á minni flugumferð á Keflavíkurflug- velli fram til 8. mars í ár. Þá var enda ekki búið að aflýsa mörgum ferðum. Útlit er fyrir að samdrátturinn aukist næstu vikur. Icelandair hef- ur þannig greint frá niðurfellingu 80 flugferða í mars og apríl, ásamt því að boða frekari fækkun ferða. Icelandair er langumsvifamesta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli. Þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði fækkaði verulega í febrúarmánuði frá mánuðinum á undan, sérstaklega á höfuðborgar- svæðinu. Þjóðskrá Íslands hefur tekið sam- an upplýsingar um fjölda leigu- samninga í febrúar og kemur í ljós að heildarfjöldi þeirra á landinu öllu var 685 í febrúarmánuði og fækkaði þeim um 12,7% frá janúarmánuði. Á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst samtals 447 leigusamningum í sein- asta mánuði og fækkaði þeim um 15,8% á milli mánaða. Ef litið er á hinn bóginn á þróun- ina frá því á fyrstu mánuðum síð- asta árs kemur í ljós að leigusamn- ingum hefur fjölgað yfir þetta tímabil umsem nemur 16,7% þ.e.a.s. frá því í febrúarmánuði árið 2019 og voru þeir tæplega 100 fleiri í febr- úar í ár samanborið við febrúar í fyrra. Fjölgað mikið á Suðurnesjum Breytingar á fjölda leigusamn- inga um íbúðarhúsnæði í einstökum landshlutum eru mjög mismunandi. á Suðurnesjum hefur leigusamn- ingum fjölgað mikið eða um 53,4% á milli ára ef sjónum er beint að fjölda leigusamninga í febrúarmánuðum á hvoru ári ums og og þar fór leigu- samningum einnig fjölgandi í febr- úar sl. frá mánuðinum á undan. Á Suðurlandi hefur leigusamningum einnig fjölgað á milli ára. Leigusamningum fækkaði milli mánaða  16,7% fjölgun frá sama tíma í fyrra Margrét Þóra Þórsdóttir skrifar frá Akureyri Fjölmörg og áhugaverð málefni bar á góma á bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem haldinn var í Menn- ingarhúsinu Hofi á Akureyri í vik- unni, en Ungmennaráð Akureyrar- bæjar hafði veg og vanda af undir- búningi fundarins. Þetta er í annað sinn sem efnt er til bæjarstjórnar- fundar þar sem unga fólkið er í aðal- hlutverki, sá fyrsti var haldinn í fyrra og er stefnt að því að halda slíka fundi árlega. Ari Orrason stýrði fundinum og Hildur Lilja Jónsdóttir flutti framsögu sem bar yfirskriftina Jöfn tækifæri óháð bú- setu. Nefndi hún að ungt fólk í Hrís- ey sem tilheyrir Akureyrarbæ upp- lifði að það hefði ekki sömu tækifæri og önnur börn og ungmenni í sveitarfélaginu og spurði hvort börn úr eyjasamfélagi væru að gleymast. Vilja frítt í sund Rakel Alda Sveinsdóttir kom fram með þá tillögu að frítt yrði í sund fyrir börn á Akureyri, en fordæmi væru fyrir slíku úr öðrum sveitar- félögum. Sagði hún að nauðsynlegt væri að hvetja börn til heilsueflingar og ókeypis aðgangur í sund væri kjörin leið til þess. Helga Sóley Tul- inius lagði til að ungt fólk yrði áheyrnarfulltrúar í helstu ráðum á vegum bæjarins og nefndi m.a. að skipulagsráð og umhverfis- og mannvirkjaráð væru að taka fyrir mál sem snerust um skipulag til framtíðar. Efla þarf tæknilæsi ungmenna Gunnbjörg Petra Þórhallsdóttir fjallaði um aukna fræðslu í skólum á Akureyri og taldi að vel mætti bæta þar í, m.a. með fræðslu um skatta- mál, kynlíf og staðalmyndir kynjanna. Telma Ósk Þórhallsdóttir ræddi um mikilvægi þess að efla tæknilæsi ungmenna, einkum nú í upphafi fjórðu iðnbyltingarinnar, en ungmennaráð skorar á bæjarstjórn að búa nemendur í bænum betur undir framtíðina og gera þau hæfari til að skilja þá hröðu tækniþróun sem við stöndum frammi fyrir. Páll Rúnar Bjarnason rætti um Stungið saman nefjum Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, og Ari Orrason, sem stjórnaði bæjarstjórnarfundi unga fólksins í Hofi í vikunni, bera saman bækur sínar um fundarstjórn. Efnileg Rakel Alda Steinsdóttir var einn af fulltrúum unga fólksins. Geðheilbrigði og aukið tækni- læsi til umræðu  Bæjarstjórnarfundur unga fólksins haldinn í Hofi á Akureyri í vikunni Morgunblaðið/Margrét Þóra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.