Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020 Stærðir: 18–24 Verð: 9.995 Margir litir SMÁRALIND www.skornirthinir.is Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. í fyrstu skónum frá Biomecanics SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ Stjórn Faxaflóahafna sf. sam- þykkti á síðasta fundi sínum að fela hafnarstjóra að auglýsa dráttarbátinn Jötunn til sölu og ganga frá sölu bátsins þegar við- unandi tilboð lægi fyrir. Faxaflóahafnir hafa haft yfir að ráða fjórum dráttar- og hafnsögu- bátum. Á dögunum bættist nýr og mjög öflugur dráttarbátur í flot- ann, Magni. Því lá ljóst fyrir að einn bátanna fjögurra yrði seldur. Fyrir valinu varð næststærsti bát- urinn, Jötunn. Um er að ræða tæplega 100 tonna stálbát sem smíðaður var í Hollandi árið 2008. Jötunn hefur 27,8 tonna togkraft. Að sögn Gísla Gíslasonar hafnar- stjóra verður báturinn auglýstur til sölu innan tíðar. Að sögn Gísla er hinn nýi Magni kominn á íslenskt flagg. Búið er að skrá bátinn hjá Samgöngustofu og þinglýsa. Þjálfun áhafna Faxaflóa- hafna er hafin og annast hana tveir starfsmenn Damen, hol- lensku skipasmíðastöðvarinnar sem smíðaði bátinn. sisi@mbl.is Dráttarbáturinn Jötunn á söluskrá Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jötunn á siglingu Hefur verið næststærsti bátur Faxaflóahafna til þessa. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt tillögu skrifstofa borgarstjóra og borgar- ritara um að auglýsa að nýju eftir samstarfsaðila um þróun Topp- stöðvarinnar í Elliðaárdal. Fram kemur í greinargerð með tillögunni að Toppstöðin í Elliðaár- dal, Rafstöðvarvegur 4, er mikil- væg eign borgarinnar og hefur mikil hugmyndavinna átt sér stað á vegum borgarinnar um mögulegt hlutverk hennar. Haustið 2017 var samþykkt í borgarráði að auglýsa eftir sam- starfsaðila um þróun og uppbygg- ingu. Ekki reyndist þá vera nægur áhugi á þessu verkefni. Lagt er til að auglýst verði aftur eftir sam- starfsaðila um þróun Toppstöðvar- innar í nýtt framtíðarhlutverk. Áhugasamir aðilar þurfa að leggja fram hugmyndir um notkun, teikn- ingar af nýju skipulagi hússins og leggja samhliða fram tilboð um leiguverð og kostnaðaráætlun við endurbætur á húsnæðinu. Fjármagn veitt til endurbóta Í fjárfestingaáætlun Reykja- víkurborgar er áætlað að leggja 200 milljónir í viðgerðir á húsinu á næstu tveimur árum. Sú upphæð mun að öllum líkindum einungis duga til þess að bæta ytra byrði en umtalsvert meiri fjárfestingu þarf til þess að koma húsinu í góð framtíðarnot. Samstarfsaðili myndi því þurfa sjálfur að fjár- magna framkvæmdir umfram framkvæmdir borgarinnar sem þarf til þess að búa það undir nýja starfsemi. Allar breytingar og við- bætur við leigulok verða eign Reykjavíkurborgar. Toppstöðin, Rafstöðvarvegur 4, er tæplega 6.500 fermetra bygging sem reist var 1946 var tekin í notkun 1948 sem olíu- og kolakynt vararafstöð til þess að taka á móti toppálagspunktum í raforkuþörf og hitaveitu og dregur nafn sitt af því hlutverki. Eigandi hússins var Rafmagnsveita Reykjavíkur. Starfsemi rafstöðvarinnar sem varaaflstöðvar lagðist að mestu leyti af 1981. Með tilkomu Búr- fellsvirkjunar 1969 minnkaði notk- un Toppstöðvarinnar. Húsið var um tíma nýtt sem geymsluhúsnæði fyrir Landsvirkjun. Þá var opnað þar árið 2008 samnefnt frum- kvöðlasetur. Um tíma voru uppi áform um að rífa húsið en fallið var frá þeim. Stálgrindin kom tilskorin Fram kemur í húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur að Toppstöðinni var valinn staður við Elliðaárnar vegna þess að aðgang- ur þurfti að vera að kælivatni fyrir starfsemina. Bandarískur húsa- smíðameistari var fenginn til að vinna að teikningum og arkitekt- arnir Sigurður Guðmundsson og Eiríkur Einarsson gerðu tillögur um einstök atriði. Burðarvirki hússins er hnoðuð stálgrind og kom efnið í stálgrindina tilskorið frá Bandaríkjunum. Var stál- grindin reist upp, sett saman og hnoðuð á staðnum undir leiðsögn bandarísks verkstjóra sem þekkti til slíkra verka. Klæðning hússins var skrúfuð á grindina. Á árunum 1963-1974 var byggt við húsið, þaki breytt og skipt um klæðn- ingu, og er það nú talsvert breytt frá upphaflegu útliti. Húsið er metið hafa miðlungs- gildi hvað viðkemur varðveislu- gildi. Tölvumynd/Trípólíarkitektar Toppstöðin Svona telja arkitektar að húsið getið liðið út eftir endurbætur sem nauðsynlega þarf að gera. Það gæti orðið prýði fyrir Elliðaárdalinn. Þarna gæti þrifist starfsemi fyrir almenning. Hver vill þróa starf í Toppstöðinni?  Um er að ræða 6.500 fermetra byggingu í Elliðaárdal  Borgin vill finna húsinu nýtt hlutverk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.