Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga. 10–17
Laugardaga. 11–15
Vísindin efla alla dáð, sagði Jón-as og undir það tók Háskóli Ís-
lands. En nú eru það frekar mót-
mælafundir No Border Iceland –
sem viðeigandi er að nefnt sé upp á
erlenda tungu –
og fleiri félaga-
samtaka sem efla
„dáð“ Háskólans
og fá hann til að
hætta að aðstoða
Útlendingastofn-
un við að finna út aldur þeirra sem
koma hingað til lands og vilja
dvelja hér, geta ekki fært sönnur á
aldur sinn og þurfa þess vegna að
gangast undir rannsóknir til að
finna út hvort um börn er að ræða.
Háskólinn vill ekki lengur látatannlæknadeild sína rann-
saka tennur þeirra sem segjast vera
börn og ber því við að notast skuli
við fjölþætt mat á líkamlegum og
andlegum þroska barna. Háskólinn
heldur því fram að við mat á um-
sækjendum um alþjóðlega vernd sé
ekki fylgt þessu fjölþætta mati.
Útlendingastofnun hefur mót-mælt þessum fullyrðingum
Háskólans og bent á að ákvörðun á
aldri byggi á heildstæðu mati á
mörgum þáttum.
Þessi sérkennilega deila vekurupp spurningar um vegferð
Háskólans. Er hann vísinda- og
kennslustofnun eða er hann kominn
í pólitíska baráttu með þeim sem
vilja opna landamæri Íslands upp á
gátt og hleypa öllum inn í landið
sem kæra sig um að koma hingað?
Og ætli það sé vísindaleg niður-staða Háskólans að velferð-
arkerfið hér á landi þyldi það að
landamærin væru opnuð upp á
gátt? Ætli það sé líka vísindaleg
niðurstaða Háskólans að sá fjöldi
sem kæmi yrði hóflegur og vel við-
ráðanlegur?
Má ekki byggja
á rannsóknum?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Mannanafnanefnd hefur fallist á beiðni um-
sækjanda um kvenkynsnafnið Vetrarsól. Skal
færa nafnið sem eiginnafn á mannanafnaskrá.
Mannanafnanefnd samþykkti beiðnina um
eiginnafnið Vetrarsól 5. febrúar síðastliðinn. Í
úrskurðinum segir að eiginnafnið Vetrarsól
taki íslenskri beygingu í eignarfalli, Vetrar-
sólar, og teljist að öðru leyti uppfylla ákvæði 5.
greinar. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Skilyrðin í núgildandi lögum um manna-
nöfn eru m.a. þau að eiginnafn skuli geta tek-
ið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið
sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki
brjóta í bága við íslenskt mál og rita skal það
í samræmi við almennar ritreglur íslensks
máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
Nú munu vera rúmlega 4.100 nöfn á
mannanafnaskrá. Á samráðsgátt stjórnvalda
eru birt frumvarpsdrög að nýjum lögum um
mannanöfn sem rýmka heimildir til skrán-
ingar nafna og þar er m.a. aflétt því skilyrði
að eiginnafn skuli taka íslenska eignarfalls-
endingu.
Leyft að bera nafnið Vetrarsól
Nafnið uppfyllir
ákvæði mannanafnalaga
Morgunblaðið/Kristinn
Nöfn Eiginnafnið Vetrarsól hefur verið samþykkt.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Eitthvað hefur borið á því að fólk
mæti síður í jarðarfari vegna kórónu-
veirunnar sem veldur öndunar-
færasjúkdómnum COVID-19. Sverr-
ir Einarsson, útfararstjóri hjá
Útfararstofu Íslands, segist hafa tek-
ið eftir því að aðeins hafi dregið úr því
að fólk mæti í jarðarfarir og sé það
líklegast vegna veirunnar. „Maður
finnur það aðeins á fólki að það sé að
fá afboðanir frá einstaklingum sem
hefðu annars mætt,“ segir Sverrir.
Hann segist vita um dæmi þess að að-
standendur hafi jafnvel hætt við erfi-
drykkju til að koma í veg fyrir út-
breiðslu veirunnar.
Embætti landlæknis hefur gefið út
leiðbeiningar til eldra fólks og ann-
arra áhættuhópa sem geta veikst al-
varlega af völdum kórónuveirunnar
um að forðast mannamót.
Ýmsum viðburðum hefur verið af-
lýst eða þeim frestað að undanförnu
vegna veirunnar og íhuga stjórnvöld
að setja á samkomubann. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir hefur
sagt að flestir sem smitist af veirunni
verði ekki mikið veikir. Hafa stjórn-
völd því farið í aðgerðir sem vernda
eldri borgara og aðra viðkvæma
hópa.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útfarir Borið hefur á því að fólk mæti síður í útfarir vegna faraldursins.
Gestum fækkað
Borið hefur á því að fólk mæti síður
í jarðarfarir vegna kórónuveirunnar