Morgunblaðið - 12.03.2020, Page 12

Morgunblaðið - 12.03.2020, Page 12
Langvinn lungnateppa erlangvinnur lungnasjúk-dómur sem á oftast upp-tök sín löngu áður en hann er greindur. Sjúkdómurinn veldur öndunarerfiðleikum, því berkjurnar sem flytja loft til lungnanna eru að þrengjast og skemmast. Mæði og þreyta eru al- geng einkenni sem aukast smám saman. Þróun sjúkdómsins er oft hæg og því gera einstaklingar sér mögulega ekki grein fyrir því að heilsan er að versna. Einkennin geta haft áhrif á daglegar athafnir og dregið úr lífsgæðum. Sjúkdóm- inn er hægt að meðhöndla og mikilvægt er að greina hann og meðhöndla strax til að hægja á framþróun. Orsakir og einkenni Reykingar eru algengustu orsak- ir sjúkdómsins, þar sem þær geta skaðað lungun til frambúðar. Einn- ig geta ýmis efni og ryk valdið sjúkdómnum. Iðnaðarmenn, bænd- ur og aðrar stéttir sem vinna eða hafa unnið í umhverfi þar sem er ryk, eiturefni og gasefni eru í auk- inni áhættu. Erfðaþættir geta einnig haft áhrif.  Mæði, sérstaklega við hreyfingu  Blásturshljóð  Hósti og slímmyndun Einstaklingar sem hafa haft sjúkdóminn lengi eru í aukinni hættu á að fá sýkingar eins og lungnabólgur, hjartasjúkdóma og lungnakrabbamein. Öndunarmæling upplýsir Greining langvinnrar lungabólgu fer fram á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Í viðtali er saga ein- staklings skráð, einkenni metin og í kjölfarið er gerð öndunarmæling sem gefur upplýsingar um ástand lungnanna. Öndunarmælingar eru framkvæmdar á heilsugæslu- stöðvum. Er einföld rannsókn og tekur stuttan tíma. Draga þarf djúpt andann og blása eins hratt og hægt er í rör sem tengt er við tæki. Tækið mælir hversu miklu lofti einstaklingur nær að blása frá lungunum og hve hratt. Hafi ein- staklingur eftirfarandi einkenni ætti að íhuga öndunarmælingu:  Þú ert, eða hefur verið reyk- ingamaður  Þú ert eldri en 40 ára  Þú hefur haft hósta í langan tíma  Þú hefur fundið fyrir aukinni mæði síðastliðin ár  Þú getur ekki gengið upp stiga án þess að upplifa mæði  Þú hefur gjarnan fundið fyrir hvæsandi öndun undanfarin ár  Þú getur ekki hreyft þig eins mikið og áður  Þú hóstar upp slími jafnvel þó að þú sért ekki með kvefpest  Þú hefur einhvern tíma fengið meðferð (t.d. innöndunarlyf) vegna lungnasjúkdóms  Þú hefur einhverjar áhyggjur af lungnaheilsu þinni  Þér líður eins og þú fáir ekki nóg loft  Þú finnur fyrir verk við inn- eða útöndun Viðhalda styrk og getu Reykleysismeðferð skiptir sköp- um í að draga úr skemmdum á lungnavef. Bólusetning gegn lungnabólgu er mikilvæg fyrir fólk með lungnasjúkdóma. Endur- hæfing og hreyfing er mjög mikil- væg til að viðhalda styrk og getu lungna og líkama. Fólk fær æfing- ar við hæfi og leiðir til að auðvelda öndun. Innöndunarlyf eru notuð til að opna öndunarveginn og minnka bólgur, einnig steratöflur ef þarf. Súrefni er notað þegar sjúkdómur- inn er lengra genginn. Skurð- aðgerðir eru notaðar í örfáum til- fellum. Heilsugæslan til taks Mikilvægt er að sjúklingar með lungnasjúkdóma séu í góðum sam- skiptum við fagfólk heilsugæsl- unnar. Best er að hafa áætlun um reglulegt eftirlit. Á heilsuveru.is eru ítarlegri upplýsingar um lang- vinna lungnateppu og þar er einnig hægt að taka stutt krossapróf til að meta einkenni sjúkdómsins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Aðhlynning Anna Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur í Mosfellsbæ, með Andra Odd Steinarsson lækni í mælingu. Lungnateppa sé greind og meðhöndluð Heilsuráð Jórunn Edda Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, Heilsu- gæslunni í Mosfellsumdæmi Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins. Yfirskrift sýningar Félags trérenni- smiða á Íslandi sem hefst næstkom- andi sunnudag, 15. mars, í Borgar- bókasafninu í Árbæ í Reykjavík, er Skáldað í tré, snúningur í rennibekk. Á sýningunni verður margt fallegra muna, sem eru afrakstur vinnu tré- rennismiða á Íslandi, sem hafa haft með sér félag sem nú starfað í á þriðja áratug og eru félagsmenn um 180. Félagsmenn munu þó ekki láta sér nægja að sýna gripi heldur ætla þeir einnig að segja frá vinnunni við rennslið og jafnvel renna gripi á staðnum á sýningartímanum. List- rænna vinnubragða og útsjónarsemi er þörf í rennismíðinni og eins og reyndar öllu handverki hverju nafni sem það nefnist. Annan sunnudag sýningarinnar, 22. mars, flytur Jón Guðmundsson, for- maður félagsins, erindi um þann við sem fellur til við grisjum í görðum og hvernig megi nýta hann til að smíða góða og ganglega gripi. Sunnudaginn þar á eftir verður sagt meira frá vinnu við trérennibekk og vinnubrögð sýnd utandyra ef veður leyfir. Félag trérennismiða á Íslandi var stofnað árið 1994 og hefur starfað óslitið síðan. Tilgangur starf félagsins er, eins og frá er greint á vefsetri þess, að efla og bæta trérennismíði á íslandi með því meðal annars að mynda fagleg og félagsleg tengsl milli áhugafólks á þessu sviði. Einnig að miðla upplýsingum, halda námskeið og sýningar og vekja áhuga og skiln- ing almennings og opinberra aðila á gildi þessarar listgreinar sem byggist á gömlum hefðum en líka nýjum vinnubrögðum. Trérennismíði kynnt í Borgarbókasafninu í Árbænum Snúningur í rennibekknum Skálar Snotur smíði og falleg. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020 Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn 2. apríl 2020 Aðrar upplýsingar: Hluthafi getur falið umboðsmanni að sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram dagsett og skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi við eyðublað sem er aðgengilegt á heimasíðu félagsins. Rafrænt umboð skal senda á netfangið stjornun@eik.is áður en fundur hefst. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum og leggja fram ályktunartillögur ef hann gerir skriflega eða rafræna kröfu um það til stjórnar félagsins eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 23. mars 2020. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið stjornun@eik.is. Hafi hluthafi krafist þess að fá mál tekin til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögur fyrir framangreindan tíma, verða dagskrá og tillögur uppfærðar á heimasíðu félagsins eins fljótt og auðið er eftir móttöku þeirra. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar eigi síðar en fimmtudaginn 26. mars 2020. Mál sem ekki hafa verið greind í endanlegri dagskrá aðalfundar er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum nema með samþykki allra hluthafa en gera má um þau ályktun til leiðbeiningar fyrir félagsstjórn. Á hluthafafundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt ef framboð fleiri aðila koma fram en nemur fjölda sæta sem kjósa skal um. Hluthafar geta greitt atkvæði bréflega fyrir fundinn með því að fylla með skýrum og greinilegum hætti út atkvæðaseðil sem finna má á heimasíðu félagsins, undirrita og votta seðilinn, og senda hann með pósti á lögheimili félagsins eða rafrænt á netfangið stjornun@eik.is. Atkvæðaseðillinn þarf að uppfylla framangreind skilyrði og berast í síðasta lagi einni klukkustund fyrir upphaf aðalfundarins svo atkvæðið teljist gilt. Frestur til þess að senda tilnefningarnefnd félagsins framboð til stjórnar rann út 20. febrúar 2020. Tillögur tilnefningar- nefndar koma fram í skýrslu nefndarinnar sem er aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félagsins. Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið stjornun@eik.is lýkur sjö sólarhringum fyrir aðalfund, nánar tiltekið kl. 16.00 fimmtudaginn 26. mars 2020. Eyðublöð vegna framboðs til stjórnarsetu er að finna á heimasíðu félagsins og verða upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar birtar þar og verða til sýnis á skrifstofu þess eigi síðar en sólarhring eftir að framboðsfrestur rennur út. Fresti til að tilkynna um framboð til setu í tilnefningarnefnd á netfangið stjornun@eik.is lýkur fimm sólarhringum fyrir aðalfund, nánar tiltekið kl. 16.00 laugardaginn 28. mars 2020. Eyðublöð vegna framboðs til setu í tilnefningarnefnd er að finna á heimasíðu félagsins og verða upplýsingar um frambjóðendur birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hluthafafundinn. Aðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður, sbr. 11. gr. samþykkta félagsins. Aðal- fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn og atkvæðaseðlar, sem verða afhent á fundarstað, einnig á íslensku. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem endanleg dagskrá, tillögur stjórnar og hluthafa, starfskjarastefna, skýrsla tilnefningar- nefndar félagsins, eyðublöð vegna umboðs og framboðs til stjórnar, upplýsingar um atkvæðagreiðslu og atkvæða- seðill vegna skriflegra kosninga og kosninga fyrir aðalfund, skjöl sem verða lögð fram á aðalfundi, upplýsingar um frambjóðendur, upplýsingar um fjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu, er - eða verður eftir því sem þau verða til - að finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is/ fjarfestar/hluthafar. Auk þess munu viðeigandi gögn liggja frammi í höfuðstöðvum félagsins, að Sóltúni 26, 105 Reykjavík, þremur vikum fyrir aðalfundinn. Upplýsingar um tillögur stjórnar um breytingar á starfskjara- stefnu félagsins og samþykktum ásamt greinargerð með þeim má finna í heild sinni á heimasíðu félagsins, www.eik.is/fjarfestar/hluthafar. Í stuttu máli lúta tillög- urnar að eftirfarandi: • Lögð er til breyting á grein 4.3 í starfskjarastefnu félagsins. Lagt er til að hámark árangurstengdra greiðslna, sem hlutfall ofan á heildarlaun starfsmannsins sem umbunað er, á ársgrundvelli, verði hækkað í 16%. Tillögunni er ætlað að auka svigrúm félagsins til þess að umbuna starfsmönnum fyrir árangur í starfi. • Lögð er til breyting á fjölda hluta í 4. gr. samþykkta félagsins verði tillaga um lækkun hlutafjár samþykkt. 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár 2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagðir fram til staðfestingar 3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og nefnda fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár 5. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins 6. Kosning félagsstjórnar 7. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd 8. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags 9. Heimild til kaupa á eigin hlutum 10. Tillaga um lækkun hlutafjár 11. Önnur mál sem löglega eru fram borin Stjórn Eikar fasteignafélags hf. boðar til aðalfundar í félaginu. Fundurinn verður haldinn á Nauthóli, Nauthólsvegi 6, 102 Reykjavík, fimmtudaginn 2. apríl 2020 og hefst stundvíslega kl. 16.00. Eik fasteignafélag hf. Sóltún 26, 105 Reykjavík www.eik.is Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi: Framkvæmd aðalfundar félagsins kann að verða breytt með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda eða öðrum viðbrögðum vegna kórónaveirunnar (COVID-19). Upplýst verður um ráðstafanir af þessum sökum eftir því sem við verður komið. Reykjavík, 12. mars 2020 Stjórn Eikar fasteignafélags hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.