Morgunblaðið - 12.03.2020, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílasala Reykjaness
Reykjanesbæ
www.bilasalareykjaness.is
419 1881
NISSAN NAVARA
EINN BEST ÚTBÚNI PALLBÍLLINN VERÐUR ENN BETRI
Nú færðu þennan vinsæla pallbíl með nýjum 8" litaskjá, uppfærðum 18" álfelgum,
TSA dráttarkerfi, aukinni burðargetu, nýju NissanConnect Services appi o.m.fl
Nissan Navara er með 190 hestafla vél, 7 gíra sjálfskiptingu, 3.500 kg dráttargetu,
gormafjöðrun að aftan og 100% driflæsingu sem staðalbúnað.
NISSAN NAVARA ACENTA
VERÐ: 7.290.000 KR.
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
0
1
6
Framundan er að meta ástand Blá-
tinds VE, gera kostnaðaráætlanir og
greiningar um hvernig best sé að
varðveita hann. Eins þarf að meta
kostnað við förgun ef til þess kæmi.
Sipið losnaði af stæði sínu við Skans-
inn í aftakaveðri 14. febrúar og sökk
síðan við Skipalyftubryggjuna. Hinn
5. mars var Blátindi komið á þurrt
og er kostnaður við þær aðgerðir
kominn yfir fjórar milljónir.
Þetta kom fram á fundi fram-
kvæmda- og hafnaráðs í Eyjum á
þriðjudag, en ljóst er að talsvert tjón
hefur orðið á skipinu í hrakning-
unum um höfnina. Á fundinum kom
fram að losa þarf skipalyftupallinn,
þar sem skipið er núna, fyrir 22.
mars næstkomandi.
Tveir möguleikar eru sagðir í
stöðunni. Annars vegar að negla
vatnsheldan krossvið yfir göt á síð-
unni og setja bátinn á flot og geyma
hann í smábátahöfninni þar til fyrir
liggur hvað á að gera við hann. Hinn
möguleikinn er að græja vagnana
norðan við lyftupallinn, eins og segir
í fundargerð, og setja bátinn á þá og
draga hann svo á svæðið norðan við
lyftuhúsið.
Í fundargerð segir: „Það að
geyma bátinn í þessu ástandi á
hafnarsvæðinu er ekki forsvaran-
legt vegna hættulegs ástands bátsins
og þar fyrir utan verður að vera með
stöðuga dælingu úr honum. Ekki er
hægt að fara með bátinn aftur á
Skanssvæðið í því ástandi sem hann
er.
Við teljum skynsamlegast að
koma bátnun norður fyrir lyftupall-
inn. Þar gefst okkur tími til að vinna
vandaða kostnaðaráætlun og taka
yfirvegaða ákvörðun um fram-
haldið, án þess að báturinn sé tifandi
slysagildra í höfninni.“ aij@mbl.is
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Blátindur VE Hraktist um höfnina og sökk síðan við Skipalyftubryggjuna.
Blátindur verði ekki
tifandi slysagildra
Kostnaður kominn í fjórar milljónir
Fækkun brottfara erlendra farþega
frá landinu í febrúarmánuði var allt
að 11% frá sama mánuði á síðasta
ári.
,,Brottfarir erlendra farþega frá
landinu um Keflavíkurflugvöll voru
133 þúsund í nýliðnum febrúar eða
um 16 þúsund færri en í febrúar ár-
ið 2019 samkvæmt talningu Ferða-
málastofu. Fækkun nemur 10,7%
milli ára. Er þetta annað árið í röð
sem brottförum farþega fækkar í
febrúar og kemur í framhaldi af
13% fækkun í janúar,“ segir í frétt á
vef Ferðamálastofu.
Til samanburðar voru brottfarir í
febrúar fyrir tveimur árum ríflega
160 þúsund, sem var á þeim tíma
um 8% fjölgun frá árinu á undan.
Fækkun Bandaríkjamanna og
Kínverja vegur þyngst
Talningar Ferðamálastofu um
ferðamannafjöldann og brottfarir
frá landinu í síðasta mánuði leiða í
ljós að Bretar voru fjölmennastir
þjóða, eða tæplega þriðjungur
ferðamanna, og fækkaði þeim um
4,7% á milli ára. Bandaríkjamenn
voru næstfjölmennastir, eða 13,1%
af heildinni, en brottfarir þeirra frá
landinu í febrúar voru um sjö þús-
und færri en í sama mánuði fyrir
ári, sem er um 29,3% fækkun á milli
ára.
Fram kemur að fækkun Banda-
ríkjamanna og Kínverja vegur lang-
þyngst í fækkun farþega, en frá ára-
mótum hafa 254 þúsund erlendra
farþega farið frá Íslandi um Kefla-
víkurflugvöll, sem er 11,9% fækkun
miðað við sömu mánuði í fyrra.
Ef litið er á fjölda ferðamanna og
brottfarir eftir einstökum markaðs-
svæðum í heiminum kemur í ljós að
fækkun átti sér stað í febrúar á öllum
markaðssvæðum nema Mið-Evrópu
í síðasta mánuði miðað við febrúar-
mánuð í fyrra.
10,6% færri Íslendingar
Frá áramótum hafa ríflega 34 þús-
und færri erlendir ferðamenn farið
frá flugstöð Leifs Eiríkssonar en á
fyrstu tveimur mánuðum síðasta árs.
,,Um 34 þúsund Íslendingar fóru
utan í febrúar í ár eða 15,2% færri en
í febrúar 2019. Frá áramótum hafa
72.500 Íslendingar ferðast utan eða
um 10,6% færri en árið áður,“ segir í
samantekt Ferðamálastofnu.
omfr@mbl.is
Um 11% færri brottfarir
frá Keflavíkurflugvelli
34.000 færri frá landinu frá áramótum en á sama tíma 2019
Erlendir farþegar
» Brottfarir Kínverja frá land-
inu í febrúar voru 41% færri en
í sama mánuði í fyrra.
» Brottfarir Bandaríkjamanna
í febrúar voru 29,3% færri en í
febrúar í fyrra.
» Fjöldi brottfara erlendra far-
þega gefur vísbendingu um
þróun í komum ferðamanna til
landsins.
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun
ferðamannastraumsins. Fækkun í febrúar nemur 10,7% milli ára.