Morgunblaðið - 12.03.2020, Side 20
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Febrúarmánuður var þriðji illviðra-
mánuðurinn í röð á landinu. Og sá
fjórði, marsmánuður, gæti bæst í
hópinn, en gular viðvaranir voru í
gildi á norðanverðu landinu í gær.
„Jú, veturinn hefur verið með ill-
viðrasamara móti – en hann er ekki
búinn. Mars er formlega vetrarmán-
uður líka,“ segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur. Hann hefur ekki trú
á að veturinn verði kenndur við
veðurfarið, miklu fremur við kórónu-
veiruna sem nú herjar á heimsbyggð-
ina.
Nýliðinn febrúar var fremur kald-
ur um land allt. Úrkomusamt var á
Norður- og Austurlandi. Samgöngur
riðluðust margoft vegna óveðurs.
Versta veðrið var þann 14. þegar
mikið austanveður gekk yfir landið
og bættist í hóp verstu illviðra síð-
ustu ára. Mikið tjón hlaust af veðr-
inu, einkum á Suðurlandi, Suðaustur-
landi og á Faxaflóasvæðinu, þar sem
veðrið var einna verst. Loftþrýst-
ingur var óvenju lágur yfir landinu í
febrúar. Svo segir í tíðarfarsyfirliti
Veðurstofunnar fyrir febrúar.
Veturinn hefur verið tvískiptur að
segja má. Nóvembermánuður var
óvenju hægviðrasamur og tíð hag-
stæð um landið.
Dró til tíðinda í desember
Til tíðinda dró síðan í desember.
Mikið norðanóveður gekk yfir landið
dagana 10. til 11. desember sem olli
miklu tjóni. Verst var veðrið á
Ströndum, Norðurlandi vestra og
Norðurlandi eystra. Mikil ísing og
fannfergi fylgdu óveðrinu sem olli því
að hundrað hross fennti í kaf,
skemmdir urðu á rafmagnslínum
með tilheyrandi rafmagnstruflunum
og mikil röskun varð á samgöngum.
Mánuðurinn var óvenju úrkomusam-
ur á norðanverðu landinu og mældist
úrkoman þar víða sú mesta sem vitað
er um í desember.
Janúar var sömuleiðis mjög ill-
viðrasamur. Meðalvindhraði var
óvenju hár og sá hæsti síðan í febr-
úar 2015. Illviðrisdagar voru óvenju
margir, með því mesta sem hefur
verið. Úrkoma var vel yfir meðallagi
um mestallt land. Mjög snjóþungt
var á Vestfjörðum og féllu tvö stór
snjóflóð á Flateyri og það þriðja í
Súgandafirði þann 14. Samgöngur
riðluðust margoft í mánuðinum
vegna óveðurs. Þetta eru lýsingar úr
tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar yfir
þessa mánuði.
Margir tala um að þeir muni ekki
aðra eins ótíð. En veðurminni er
óglöggt. Ekki þarf að fara lengra en
fimm ár aftur í tímann til að finna
álíka vetur.
„Vindaveturinn mikli, Belgingur
og Rokrassgat hið mikla eru meðal
þeirra tillagna sem fram hafa komið
um heiti á vetrinum sem nú stendur
yfir. Lægðir með tilheyrandi hvass-
viðri og ófærð hafa sett mark sitt á
veturinn,“ sagði frétt á vef Ríkis-
útvarpsins 11. mars 2015. Elín Björk
Jónasdóttir veðurfræðingur sagði
þar að veturinn væri líklega sá
stormasamasti það sem af væri öld-
inni og á pari við veturna upp úr
1990. Hún taldi þó að fólk liti veðrið
ef til vill öðrum augum en fyrir
nokkrum árum, meðal annars vegna
þess að fleiri legðu fyrir sig útivist
og vegna þeirra mörgu ferðamanna
sem færu um landið á veturna, ólíkt
því sem áður var. Minnst 37 lægðir
hefðu farið yfir landið frá 1. nóv-
ember 2014 og sjaldan liðið meiri en
þrír dagar milli stormviðvarana og
samgöngutruflana. Elín Björk benti
þó á að ýmislegt vantaði sem áður
hefði einkennt þá vetur sem hefðu
verið í minnum hafðir, til að mynda
hafís sem náði oft til lands á köld-
ustu vetrum. Það sama á reyndar við
um þann vetur sem nú stendur yfir.
Stendur undir nafninu illviðravetur
Eftir óvenju hægviðrasaman nóvember hafa komið þrír illviðramánuðir Og veturinn er ekki
búinn enn Trausti Jónsson telur að veturinn verði kenndur við kórónuveiruna en ekki veðurfarið
Ljósmynd/Veðurstofan
Landið er fagurt og frítt Gervihnattamynd sem tekin var af Modis yfir landinu föstudaginn 6. mars síðastliðinn. Landið er snævi þakið frá fjöru til fjalla.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Lögregla veitti í gær stolinni
steypubifreið eftirför frá Laugavegi
og út á grasbala við Sæbraut. Bif-
reiðinni var stolið frá Vitastíg í gær-
morgun samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu. Maðurinn var króaður af
við Kassagerðina á Kleppsvegi eftir
að hafa ekið eftir gangstéttum og
hjólastígum. Maðurinn var undir
áhrifum fíkniefna eða lyfja þegar
hann stal bílnum rétt eftir klukkan
9. Lögregla var með mikinn við-
búnað vegna málsins, en maðurinn
ók meðal annars á miklum hraða á
móti umferð.
Samkvæmt lögreglu þykir mikil
mildi að ekki fór verr en maðurinn,
sem er á þrítugsaldri, mun hafa
stefnt bæði sér og öðrum vegfar-
endum í hættu með framferði sínu.
Samkvæmt lýsingum vitna eltu fjór-
ir lögreglubílar auk sérsveitar ríkis-
lögreglustjóra steypubifreiðina, sem
var full af steypu þegar henni var
stolið. Maðurinn var handtekinn á
vettvangi og fluttur á lögreglustöð.
Samkvæmt lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu stóð til að ræða við
manninn í gærkvöldi, en hann var
ekki í ástandi til þess fyrr en þá.
Ljósmynd/Aðsend
Hættuför Ökumaður steypubílsins ók á móti umferð og upp á hjólastíg og
gangstétt við Sæbraut. Lögreglan náði honum að lokum við Kassagerðina.
Steypubifreið stolið
Maður í annarlegu ástandi keyrði á
bifreiðinni á ofsahraða á móti umferð