Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 49
MINNINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
✝ Agnes Páls-dóttir
hárgreiðslu-
meistari fæddist í
Reykjavík 25. nóv-
ember 1947. Agnes
lést á Landspít-
alanum, Fossvogi,
4. mars 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Ingibjörg
Jóhanna Ólafs-
dóttir hárgreiðslu-
meistari, f. 30.8. 1915, d. d. 11.3.
2010, og Páll Sigurgeirsson bif-
vélavirki, f. 17.9. 1916, d. 26.3.
1985. Systkini Agnesar voru:
Gréta Pálsdóttir, f. 9.1. 1943, d.
1.9. 1988, og Ólafur Jóhann
Pálsson, f. 6.5. 1958. Agnes ólst
upp í Efstasundi í Reykjavík,
gekk í Langholtsskóla og Iðn-
Hinn 23.11. 1985 giftist Agnes
Sigurbirni Egilssyni, f. 1.12.
1941, þau skildu. Börn þeirra
eru: a) Guðmundur, f. 6.11.
1979, sambýliskona Pilvi Routa-
salo og b) Sjöfn, f. 28.3. 1985.
Agnes starfaði við hár-
greiðslu allan sinn starfsferil að
undanskildum árunum þegar
hún vann sem þerna hjá Eim-
skip á áttunda áratugnum. Hún
starfaði lengst af á Landspít-
alanum háskólasjúkrahúsi –
Landakoti, við hárgreiðslu á
daginn en á kvöldin sem starfs-
maður á deild L4.
Ung að árum fór hún í sveit
að Hofsnesi í Öræfum þar sem
hún naut sín og eignaðist vini
fyrir lífstíð og fóru þau ævin-
lega saman í mars á hverju ári á
góugleði Öræfinga. Hún titlaði
sig ætíð sem Öræfing.
Útför hennar fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 12. mars 2020, kl.
15.
skólann í Reykja-
vík. Hún lærði hár-
greiðslu hjá
Kristínu Ingimund-
ar og fékk meist-
araréttindi í faginu
í janúar 1972.
Hinn 29.6. 1968
giftist Agnes Gísla
Þorvaldssyni, f.
12.10. 1941, d. 19.8.
2003, þau skildu.
Dóttir þeirra er
Ingibjörg Gréta, viðskiptafræð-
ingur og leikkona, fædd 31.10.
1966, börn hennar eru: a) Mario
Ingi Martel, f. 11.11. 1997 og b)
Jóhanna Alba Martel, f. 24.5.
2000. Önnur dóttir Agnesar
Jóna Kristín Jónsdóttir, fæddist
5.3. 1971, dóttir hennar er Birta
Mjöll Birgisdóttir, f. 14.10. 2011.
Ég er mamma mín og mamma
mín er ég. Þessari staðhæfingu
laust niður í huga mér fyrir
nokkrum vikum þegar ég fór yfir
æsku mína. Við mamma vorum
aldar upp af sama fólkinu í sama
húsinu. Hún var ekki tilbúin að
verða mamma þegar ég fæddist
svo afi og amma tóku það ábyrgð-
arhlutverk að sér.
Við vorum alltaf í sambandi og
hún var mamma mín – það fór
aldrei á milli mála. Húmorinn og
gleðin sem einkenndu hana
fannst mér alltaf spennandi – hún
átti kunningja og vini hvert sem
við komum sem tóku henni fagn-
andi. Fyrir mér litlu stelpunni
hennar var þetta kærkomin til-
breyting.
Tíska og útlit var henni hug-
leikið – enda hárgreiðslumeistari
og já hún gerði oft athugasemdir
við hárið á mér – að það mætti nú
alveg við einhverri tilbreytingu.
Hún var alltaf til í skemmtileg
ævintýri – fór með mér á Grease-
myndina hér um árið, dró vinkonu
sína með og fannst mér algörlega
meiriháttar að fara með henni í
bíó, á alvöru bíómynd, lét hana
ekkert vita að ég hefði séð mynd-
ina nokkrum sinnum og upplifði
hana bara aftur en nú með henni.
Mamma var svona öðruvísi
mamma, alltaf í stuði þegar ég
hitti hana, aldrei neitt uppeldi í
gangi, bara skemmtilegur dagur
framundan enda hittumst við ekki
oft svona lengi framan af því hún
vann sem þerna hjá Eimskip í
nokkur ár, þar til ég var ungling-
ur.
Ég var ofsalega stolt stóra
systir og fannst frábært í hvert
skipti sem hún átti von á sér, lagði
mig fram um að kynnast systk-
inum mínum og njóta þeirra. Það
sem við eigum öll sameiginlegt er
húmorinn, sem við erum reyndar
ekkert alltof hrifin af þegar aula-
húmorinn fer í gang, en það er
okkur sammerkt, það kemur frá
mömmu. Svo verð ég að viður-
kenna að okkur finnst það öllum
drepfyndið að hún hafi verið í
sveit – manneskjan sem var ekk-
ert fyrir dýr. En ég fetaði í þau
fótspor og var nokkur sumur í
sveit á Hofsnesi í Öræfum, eins og
hún og fannst það frábært að eiga
það sameiginlegt með henni. En
vinamörg var hún og einn af
hennar föstu punktum í tilverunni
var að fara á góugleðina á Hofi í
Öræfum með vinum sínum og
skemmta sér – maður heyrði sög-
urnar langt fram á vor af þessum
ferðum. Einu sinni fór ég með og
fannst það góð upplifun og í dag
er það yndisleg minning að hafa
átt þessa dásamlegu sveit og góða
fólk með henni.
Síðasta samtal okkar var á þá
leið að ég hughreysti hana og
sagðist hugsa til hennar því dag-
inn eftir átti hún að fara í aðgerð
þar sem losa átti gúlp sem mynd-
ast hafði í ósæðinni. Bað hana um
að hvílast vel og sagðist verða hjá
henni daginn eftir þegar hún
myndi vakna úr aðgerðinni. Svo
bauð ég henni góða nótt.
Klukkutíma síðar rifnaði ósæð-
in og hún var öll. Þegar ég kvaddi
hana uppi á spítala síðar um
kvöldið kyssti ég hana og strauk
og þakkaði fyrir lífið, lífið mitt og
lífið hennar, lífið okkar.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir.
Nokkur orð til að minnast
góðrar vinkonu, Agnesar Páls-
dóttur (Öggu) og þakka alla þá
vinsemd sem hún sýndi mér. Sem
barn var hún í sveit á mínu æsku-
heimili, Hofsnesi í Öræfum, en þá
var ég flutt til Reykjavíkur, svo
kynni okkar hófust ekki fyrr en
hún var orðin uppkomin stúlka.
Áttum við sameiginlega hlýjar
minningar úr sveitinni, enda hafði
hún oft orð á hvað allir hefðu verið
sér góðir þegar hún var þar sum-
ardvalarbarn. Hún var mjög
fundvís á þarfir aldraðra og fékk
ég og fleiri notið hennar hjálpar
sem hún veitti af miklum mynd-
arskap.
Áttum við Agga margar góðar
samverustundir í ferðum á góu-
gleði í Öræfin og var nú ein slík í
vændum, en allt í einu breyttist sú
áætlun. Svona geta forlögin gripið
inn í. Allt gerðist þetta svo hratt.
Síðdegis 4. mars hringdi ég í
hana, þá sagði hún að dóttir sín
ætlað að fara að keyra sig upp á
spítala – „ég hringi í þig á eftir.“
Þetta var það síðasta sem ég
heyrði í henni því morguninn eftir
fékk ég andlátsfregnina. „Hve-
nær sem kallið kemur, kaupir sig
enginn frí,“ Þessi setning úr hin-
um fagra sálmi eftir Hallgrím
Pétursson, kemur upp í hugann.
Hér kveð ég þig, Agga mín, full
þakklætis fyrir þær ljúfu stundir
sem við áttum saman.
Ég votta öllum aðstandendum
innilega samúð og bið góðar vætt-
ir að vaka yfir ykkur.
Sigrún Ingunn
Þorsteinsdóttir.
Ef sérð þú í fjarska hvar sumarlandið
bíður
fær sálin þín vængi og ótrúlegt þor
og hjarta þitt blómstrar er hugur þinn
líður
að heimi sem geymir þín litríku spor.
Þar sérðu hvar draumkenndir dagarnir
eru
er dúnmjúkir vængirnir lyfta þér hátt,
svo áttu þér samleið með einstakri
veru
sem alltaf fær vakið í hjartanu mátt.
Þú gleðst þegar sál þín gerir þig fleyga
og gefur þér líf ef dauðinn fær sótt.
Því loforð um sumarland sælt er að
eiga
og sjá það í hillingum nótt eftir nótt.
(Kristján Hreinsson)
Nína Breiðfjörð Steinsdóttir.
Agnes Pálsdóttir
Elsku afi Gísli.
Já, þó svo þú vær-
ir ekki afi minn hef-
urðu aldrei verið
neitt annað en afi
Gísli í mínum huga.
Takk fyrir að taka svona vel á
móti mér í fjölskylduna ykkar.
Það er sannarlega ríkidæmi sem
þið hjónin eruð búin að koma ykk-
ur upp. Það var alltaf svo gaman
að koma heim til ykkar Sísíar og
þar voru móttökurnar ávallt höfð-
inglegar. Hvort sem þið voruð
fengin til að gera réttinn kjöt í
karrí, þar sem þú leystir þitt verk-
efni virkilega vel af hendi, þ.e.
skræla kartöflurnar eða þegar við
pöntuðum óhollustuna og þá
komstu færandi hendi með fullan
poka af KFC. Það var allt fyrir
mann gert sem óskað var og svo
brást það ekki að eftir matinn
laumaðist afi í frystinn og sótti ís
fyrir mannskapinn.
Maður fékk alltaf að heyra
skemmtilegar sögur frá því í
gamla daga þegar við hittumst.
Æskuminningar úr Árnessýslu,
smíðasögur frá fyrri tíð af hinum
ýmsu verkefnum og stundum
ræddum við Vatnsdalinn fyrir
norðan þar sem ég hef stundum
farið í veiði og þú varst á þínum
yngri árum og hafðir margar
skemmtilegar minningar og enn
betri sögur að segja frá. Gefið hef-
ur verið í skyn í seinni tíð að ekki
væri alveg víst að þessar sögur
Gísli Eyjólfsson
✝ Gísli Eyjólfssonfæddist 1. mars
1932. Hann lést 25.
febrúar 2020.
Útför hans fór
fram 11. mars 2020.
þínar gegnum árin
væru allar alveg
sannar en það hefur
þá bara gert þær
betri og ég trúði
hverju einasta orði.
Það er heiður og
forréttindi að hafa
fengið að kynnast
þessum handlagna,
yfirvegaða og
skemmtilega öðling-
smanni sem þú varst
og sannarlega varstu fyrirmynd
út í lífið fyrir hvern sem er. Ég
veit að afabörnin þín litu upp til
þín og það gerði ég sannarlega
líka.
Helgi Þór.
Þegar einstaklingur kveður
sem hefur haft mikil áhrif á líf
manns og sambandið hefur verið
lítið um langan tíma bregður
manni illa þegar fréttin berst að
hann hafi kvatt okkur. Það er búið
að vera lengi á dagskrá að hafa
samband en nú er það um seinan.
Gísli Eyjólfsson húsasmiðameist-
ari var minn meistari og hjá hon-
um lærði ég húsasmíði. 1970 flutti
ég til Reykjavíkur og hóf nám hjá
þeim félögum í Trévirki Gísla,
Gylfa, Ólafi og Jóni en Gísli var
meistarinn og leiðtoginn í hópn-
um. Það er erfitt að ímynda sér
ólíkari hóp en þá félaga en það er
ekki síst fjölbreytileikinn sem
gerir árin 20 í Trévirki eftirminni-
leg. Gísli var í senn góður leiðtogi
og fagmaður. Það var sama hvað
hann tók sér fyrir hendur, gengið
var til allra verka af öryggi og
vissu um hver verklokin ættu að
verða. Hann var traustur í við-
skipum, byggði upp viðskipti sem
héldust áratugum saman og
tryggði góðan resktur þrátt fyrir
miklar sveiflur í íslensku efna-
hagslífi. Trúlega er kennitala Tré-
virkis með þeim elstu í bygging-
argeiranum, sem segir ákveðna
sögu.
Gísli var ekki eingöngu meist-
arinn og leiðtoginn í hópnum,
hann var líka góður félagi sem
gott var að eiga samskipti við og
eiga að. Hann hafði létta lund, var
gamansamur og hafði gaman af að
segja frá og þá var ekki verra að
hafa tóbaksdósina við höndina.
Það var gott að vera lærlingur hjá
Gísla og njóta leiðsagnar hans
enda eru þeir ófáir sem hann hef-
ur útskrifað sem húsasmiður.
Sumir samferðamenn hafa meiri
áhrif á líf manns en aðrir og Gísli
er einn af þeim sem hafa skipt mig
miklu máli og ég stend í þakkar-
skuld við.
Nú hefur Gísli Eyjólfsson kvatt
okkur eftir farsælt líf og starf.
Þrátt fyrir að hann sé á brott
genginn standa verkin hans áfram
og við sem nutum leiðsagnar hans
geymum minningu um góðan
samferðamann. Þegar ég horfi til
baka á ég bara góðar minningar af
samskiptum okkar Gísla og verð
ætíð þakklátur fyrir að hafa átt
þess kost að njóta leiðsagnar hans
og vináttu um 20 ára skeið. Ég
sendi fjölskyldu Gísla mínar bestu
kveðjur og veit að það skarð sem
hann skilur eftir verður ekki fyllt.
Þorbjörn Guðmundsson.
Við systkinin minnumst Gísla
Eyjólfssonar með kærleika og
virðingu.
Gísli frændi var stór partur af
okkar lífi, elstur bræðranna á
Njálsgötu 82.
Við vitum að pabbi okkar, Al-
freð, tekur vel á móti bróður sín-
um í himnaríki.
Hvíl í friði.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Kristín Alfreðsdóttir,
Eyjólfur Bjarni Alfreðsson,
Alfreð Jóhannes Alfreðsson.
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
mágkona, amma og langamma,
HELGA S. HELGADÓTTIR,
Lautasmára 5, Kópavogi,
lést á Landspítalanum 24. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ellen Þórarinsdóttir Róbert Jónsson
Dagný Þórarinsdóttir Kjell Arne Henriksen
Gunnhildur S. Helgadóttir Bogi Vignir Þórðarson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
FRIÐÞJÓFUR STURLA MÁSSON,
Fiddi í Valhöll,
frá Vestmannaeyjum,
lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum
miðvikudaginn 26. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Inda Marý Friðþjófsdóttir Sigurður Friðbjörnsson
Einar Friðþjófsson Katrín Freysdóttir
Anna Friðþjófsdóttir Þórður Hallgrímsson
Már Friðþjófsson Jóhanna Þorbjörnsdóttir
Svanhvít Friðþjófsdóttir Egill Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær systir okkar,
KRISTÍN BJÖRK FRIÐBERTSDÓTTIR,
sem lést fimmtudaginn 5. mars verður
jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn
13. mars klukkan 13.
Friðbert Friðbertsson
Njáll Trausti Friðbertsson
Jóhann Grímur Friðbertsson
og fjölskyldur
Elskuleg frænka okkar,
ADDA GEIRSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 20. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug,
Adda María Jóhannsdóttir
Helga Björnsdóttir
Geir Björnsson
Halldóra Björnsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRSÆLL ÁRSÆLSSON
frá Fögrubrekku í Vestmannaeyjum,
lést á Sólvöllum á Eyrarbakka
föstudaginn 21. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Kjartan Þór Ársælsson Bylgja Þorvarðardóttir
Ársæll Ársælsson Jóhanna Einarsdóttir
Leifur Sveinn Ársælsson
barnabörn og barnabarnabörn