Morgunblaðið - 12.03.2020, Side 53
tinnusker sem eru auðvitað umdeild
gæði en mikið öryggisatriði. Þá er
komið þar frábært skálavarðarhús
með sturtu.
„Það var heilmikil bót fyrir okkur
félagana að fá sturtuna en hafði það
sennilega í för með sér að við bætt-
um á okkur nokkrum kílóum vegna
færri reglulegra sturtuferða niður í
Landmannalaugar.“
Hryssingur og veðravíti
Jóhann Kári segir að oft sé blíða
á fjöllum, en stundum hryssingur
og í kringum Hrafntinnusker sé
veðravíti sem margir telji erfið-
asta legg Laugavegarins. „Stans-
laus hækkun er úr Landmanna-
laugum, að mestu leyti í snjó
meirihluta sumars. Oft á tíðum er
þoka, rigning og rok, sem við köll-
um hina heilögu þrenningu þarna
upp frá,“ segir Jóhann Kári og
hlær. „Ekki er óalgengt að ferða-
menn lendi í miklu basli með veðr-
ið og í hrakningum og þá getur
auðvitað skapast hætta,“ segir
hann og verður alvarlegur í
bragði.
Hálendisvakt björgunarsveit-
anna er staðsett í Landmanna-
laugum yfir sumarið og fer hún í
ófáa björgunarleiðangra að sögn
Jóhanns Kára til að hjálpa göngu-
fólki sem villst hefur af gönguleið-
inni, eða einfaldlega gefist upp.
„Það er fagurt á fjöllum, ekki
síst í góðu veðri, en því miður þá
átta margir ferðamenn sig ekki á
því hversu fljótt veður getur
breyst á þessum slóðum. Þótt sól
sé og blíða í Landmannalaugum
þegar ganga hefst getur verið
þoka, og jafnvel snjókoma og
stormur tveimur tímum síðar og
300 metrum ofar í nágrenni við
Hrafntinnusker. Flestir ferða-
menn eru til fyrirmyndar og hafa
kynnt sér veður og aðstæður afar
vel og rætt við skálaverði áður en
lagt er í hann. Því miður eru samt
enn of margir sem leggja í hann
íklæddir gallabuxum og striga-
skóm og eru ekki viðbúnir því sem
fram undan er.“
Mikið hús á mögnuðum stað
Höskuldsskáli tekur 52 í gistingu
en hann er á tveimur hæðum. Á
neðri hæð hússins er anddyri, tveir
svefnsalir með kojum, langborðum
og stólum og eldhús með rennandi
köldu vatni, gashellum og öllum eld-
húsáhöldum. Á efri hæðinni er eitt
herbergi og tveir svefnsalir þar sem
sofið er á dýnum á gólfinu. Kolagrill
er úti á palli. Höskuldsskáli er læst-
ur yfir vetrartímann eins og á við um
alla skála félagsins. Í mörgum þeirra
er þó hægt að panta gistingu og
nálgast lykla að þeim á skrifstofu FÍ
í Mörkinni 6.
Yfir sumarið er hægt að tjalda við
Höskuldsskála eins og við flesta
fjallaskála FÍ gegn gjaldi. Tjaldgest-
ir þurfa að koma með eigin prímus
og eldunaráhöld því þeir hafa ekki
aðgang að eldunaraðstöðu skálanna.
Daggestir þurfa svo að greiða að-
stöðugjald þegar þeir dvelja á skála-
svæðunum hluta úr degi og nýta sér
aðstöðuna, svo sem nestisaðstöðu,
grill og salerni.
Hugarró og lífsfylling
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að Torfajökulssvæðið í nánd
við Landmannalaugar og Hrafn-
tinnusker sé efst á óskalistanum hjá
Jóhanni Kára. „Þórsmörk er ekki
langt þar á eftir,“ bætir hann snöggt
við.
„Á síðustu sjö árum hef ég nýtt
flestar frístundir frá skálavörslunni
til að þvælast um allar mögulegar
leiðir og alltaf er meira og meira að
sjá. Grænihryggur í Sveinsgili,
Jökulgilið sjálft og Háskerðingur
eru í uppáhaldi. En svo leynast mörg
önnur náttúruundur mjög nálægt
gönguleiðinni sjálfri. Fyrir mig er
fátt betra en að vera einn í tilverunni
og rölta um ósnortin víðernin ásamt
mögulega nokkrum rollum. Það veit-
ir mér algjöra hugarró og lífsfyll-
ingu.“
Sumar Hrafntinnusker á
mildum sumardegi í ágúst 2018.
á
r.
Fegurð Litbrigði jarðar. Þeir sem
ganga í nágrenni Hrafntinnuskers
geta aldrei gleymt fegurðinni.
Ljósmyndir/Ferðafélag Íslands
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is