Morgunblaðið - 12.03.2020, Page 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
„ÞÚ LÍTUR FRÁBÆRLEGA ÚT. HVER
STJÓRNAR LÝSINGUNNI HJÁ ÞÉR?”
„MIG VANTAR 400 STAURA OG EITT PAR
AF HJÖRUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ljóðræn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AH, JÚLLI
LEIKFIMI-
KENNARI
ÉG GLEYMI ÞVÍ ALDREI
SEM HANN SAGÐI VIÐ MIG
„LÍKAMSSTYRKUR ÞINN ER Á VIÐ
LÍKAMSSTYRK FIMM ÁRA BARNS”
EN HVETJANDI
PABBI
ER MEÐ
OFNÆMI
FYRIR NÝJA
KISANUM
OKKAR!
ÞAÐ
GENGUR
EKKI.
SETTU
HANN ÚT!
ATSJÚ!
Erla Gunnlaugsdóttir, f. 5.3. 1984,
lögfræðingur, gift Loga Hrafni
Kristjánssyni, f. 5.6. 1982, hönnuði.
Börn þeirra eru Snorri, f. 30.1. 2005,
Anna, f. 25.12. 2012, Auður, f. 25.7.
2017; 3) Anna Lára Gunnlaugs-
dóttir, f. 16.12. 1985, leikskólaliði,
gift Arnóri Ingimar Þorsteinssyni, f.
16.6. 1986, sölufulltrúa. Börn þeirra
eru Sævar Ingi, f. 16.4. 2011, og
Lára, f. 8.9. 2014; 4) Edda Gunn-
laugsdóttir, f. 15.1. 1991, textílhönn-
uður, gift Jóni Hauki Jónssyni, f.
6.12. 1989, viðskiptafræðingi. Barn
þeirra er Jón Þór, f. 4.5. 2015; 5.
Pétur Emil Júlíus Gunnlaugsson, f.
8.7. 1993, lögfræðingur í sambúð
með Andreu Björk Elmarsdóttur, f.
27.5. 1994, lögfræðingi. Barn þeirra
er Drengur Pétursson, f. 11.2. 2020;
6) Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, f. 25.6. 2002, nemi.
Alsystkin Önnu eru Þórunn Júl-
íusdóttir, f. 20.9. 1962, hjúkrunar-
fræðingur; Pétur Benedikt Júlíus-
son, f. 18.8. 1964, barnalæknir í
Bergen, Noregi. Hálfsystkini sam-
mæðra eru Sigurður Konráðsson, f.
19.8. 1953, prófessor við HÍ; Áslaug
Konráðsdóttir, f. 6.1. 1955, skrifta,
býr í Osló, Noregi. Hálfsystkini
samfeðra eru Ingibjörg Júlíusdóttir,
f. 9.7. 1945, kennari; Halldór Kr.
Júlíusson, f. 2.12. 1948, sálfræð-
ingur; Lára V. Júlíusdóttir, f. 13.4.
1951, lögfræðingur; Sigurður Júl-
íusson, f. 17.2. 1956, háls-, nef- og
eyrnalæknir.
Foreldrar Önnu: Hjónin Júlíus
Halldórsson, f. 26.2. 1924, d. 4.10.
1998, vélstjóri og forstjóri í Reykja-
vík, og Þórunn Gröndal, f. 19.12.
1933, húsmóðir. Hún er núna búsett
í Garðabæ.
Anna
Júlíusdóttir
Þórunn Stefánsdóttir
húsmóðir
Ágúst Flygenring
konungkjörinn alþm.,
útgerðarmaður og
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
Halldóra Gröndal
húsmóðir og hannyrðakona
Benedikt Gröndal
forstjóri í Rvík
Þórunn Gröndal
húsmóðir í Rvík
Helga Benediktsdóttir
Gröndal
húsmóðir, dóttir Benedikts
Gröndals, skálds og fræðim.
Þórður Edilonsson
héraðslæknir í Hafnarfirði
Gunnlaugur Helgason
útvarpsmaður
og smiður
Helgi Halldórsson
forstjóri Stáliðjunnar
Ingólfur
Sigurðsson
fótbolta-
maður
Sigurður
Konráðsson
prófessor
við HÍ
Þuríður Kristjánsdóttir
húsmóðir
Helgi Arason
bóndi á Öskubrekku
í Arnarfirði
Lára V. Helgadóttir
húsmóðir
Halldór Kr. Júlíusson
sýslumaður í Strandasýslu og lögreglu-
stjóri áAlþingishátíðinni á Þingvöllum
Ingibjörg Magnúsdóttir
húsmóðir
P. E. Júlíus Halldórsson
héraðslæknir á Blönduósi, sonur
Halldórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara
Úr frændgarði Önnu Júlíusdóttur
Júlíus Halldórsson
forstjóri í Reykjavík
Ólafur Stefánsson yrkir brag-hendu:
Fór í búð á föstudag í fyrri viku.
Sprittað bæði’ á brjóst og attan,
bíta ætti’ á veiruskrattann.
Hinrik Bjarnason fer með þessi
varnaðarorð:
Ljúft er að meta lífsins glens,
það léttir dagsins þrautir,
en munið að klapp og kossaflens
eru kröftugar veirubrautir.
Því léttir bæði líf og önd
í lífsins ólgupytti
að baða einlægt hönd við hönd
hérna upp úr spritti.
Sigmundur Benediktsson yrkir í
svartsýniskasti og kallar „Eyðing“:
Nú að morgni má ei sjá
munans fornu ljóðaskrá,
úti í horni hélugrá
hefur þornað kvæðaþrá.
Tímans þvarg í tötrum býr,
tyrfið sargið hugsun lýr.
gleði fargar geðsemd rýr,
græðgis varga skynsemd flýr.
Hratar tungan hratt af leið,
harmi þrungin glatar seið,
óorðs þungann örvar greið,
öll er sprungin gæfu leið.
Yfir læðist veiru vá
varginn hræðast fólkið má.
Eyðir næði okkur hjá,
allra fræða leitum þá.
Jón Atli Játvarðarson hefur orð á
því á Boðnarmiði að Indriði Aðal-
steinsson á Skjaldfönn hafi nú loks-
ins fengið viðurkenningu verka
sinna við að mæla jökulsporða í
Kaldalóni:
Indriði slær öll nú met
og mér þetta selur.
Í Kaldalónið leggur net
og litla sporða telur.
Gunnar J. Straumland segir „Af
samfélagsumræðu“:
Þeir sem blíða bullið tjá
busla mest en vaða grynnst.
Við ættum helst að hlusta á þá
hógværu sem gaspra minnst.
Magnús Bjarnason frá Hnappa-
völlum segir svo frá: „Þessa vísu
gerði Leirulækjar-Fúsi til séra
Hallgríms Péturssonar, þegar hann
var að skera torf og vissi Fúsi ekki
hver það var, sem hann yrti á:
Skömmin hefur skemmtilegt orf
í skitinni loppu sinni.
Mannfýlan er að merja upp torf
úr mýrar háðunginni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veirubrautir og
lífsins ólgupyttur
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15