Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Kasakstan
Astana – Ordabasy .................................. 1:1
Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 80
mínúturnar með Astana.
Tyrkland
Yeni Malatyaspor – Trabzonspor.......... 1:3
Viðar Örn Kjartansson mátti ekki leika
með Malatyaspor þar sem um frestaðan
leik var að ræða sem átti að fara fram áður
en hann kom til félagsins.
B-deild:
Adana Demispor – Akhisarspor ............ 2:3
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn með Akhisarspor og skoraði eitt mark-
anna. Lið hans er í fjórða sæti.
England
Manchester City – Arsenal var frestað þar
sem leikmenn Arsenal eru í sóttkví.
Katar
Emir-bikarinn, 8-liða úrslit:
Al-Arabi – Al-Ahli.................................... 3:0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi en Heimir Hallgrímsson
þjálfar liðið.
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit, seinni leikir:
Liverpool – Atlético Madrid..... (1:0) = (1:1)
Framlenging var í gangi þegar blaðið fór
í prentun. Sjá mbl.is/sport/fotbolti.
París SG – Dortmund.................. 2:0 = (3:2)
Undankeppni EM kvenna
Aserbaídsjan – Pólland............................ 0:5
Kýpur – Albanía ....................................... 0:2
Svartfjallaland – Írland ........................... 0:3
Olísdeild karla
ÍBV – ÍR................................................ 29:31
Valur – HK............................................ 33:26
Fram – Stjarnan................................... 23:22
Afturelding – Fjölnir............................ 25:21
Staðan:
Valur 20 14 2 4 558:485 30
Afturelding 20 12 3 5 545:529 27
FH 19 12 2 5 569:513 26
Haukar 19 11 3 5 512:499 25
Selfoss 19 12 1 6 593:574 25
ÍR 20 11 2 7 600:559 24
ÍBV 20 11 2 7 587:540 24
Stjarnan 20 6 5 9 531:541 17
Fram 20 7 2 11 479:505 16
KA 19 5 1 13 502:550 11
HK 20 3 0 17 504:592 6
Fjölnir 20 2 1 17 505:598 5
Olísdeild kvenna
Afturelding – HK ................................. 33:30
Staðan:
Fram 18 17 0 1 574:380 34
Valur 18 14 1 3 497:378 29
Stjarnan 18 8 4 6 454:437 20
HK 19 8 2 9 516:529 18
Haukar 18 6 2 10 398:449 14
KA/Þór 18 7 0 11 429:502 14
ÍBV 18 6 2 10 411:436 14
Afturelding 19 1 1 17 372:540 3
Danmörk
Aalborg – Mors-Thy............................ 27:25
Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk
fyrir Aalborg en Janus Daði Smárason lék
ekki með. Arnór Atlason er aðstoðarþjálf-
ari liðsins.
Noregur
Drammen – Follo................................. 32:19
Óskar Ólafsson skoraði eitt mark fyrir
Drammen.
Ungverjaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Pick Szeged – Ferencváros................ 43:29
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 2
mörk fyrir Pick Szeged.
Dominos-deild kvenna
KR – Skallagrímur ............................... 65:50
Snæfell – Grindavík.............................. 79:65
Keflavík – Valur.............................(frl) 94:85
Breiðablik – Haukar............................. 75:67
Staðan:
Valur 25 22 3 2164:1671 44
KR 25 18 7 1903:1635 36
Keflavík 24 16 8 1795:1709 32
Skallagrímur 25 15 10 1686:1713 30
Haukar 25 14 11 1810:1738 28
Snæfell 24 8 16 1633:1852 16
Breiðablik 25 4 21 1636:1984 8
Grindavík 25 2 23 1600:1925 4
NBA-deildin
Indiana – Boston............................... 111:114
Washington – New York.................. 122:115
Chicago – Cleveland......................... 108:103
Houston – Minnesota ....................... 117:111
Memphis – Orlando.......................... 115:120
San Antonio – Dallas ........................ 119:109
Portland – Phoenix........................... 121:105
Golden State – LA Clippers ............ 107:131
LA Lakers – Brooklyn..................... 102:104
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Keflavík sendi öðrum liðum í Dom-
inos-deild kvenna í körfubolta skila-
boð með því að vinna 94:85-sigur á
Íslandsmeisturum Vals á heimavelli.
Með sigrinum styrkti Keflavík stöðu
sína í baráttunni um sæti í úr-
slitakeppninni og er liðið nú í þriðja
sæti, með fjórum stigum meira en
Skallagrímur sem er í sætinu fyrir
neðan. Daniela Wallen fór á kostum
hjá Keflavík og skoraði 36 stig og
tók 17 fráköst. Keflavík, sem hefur
verið að elta efstu liðin allt tímabilið,
sýndi með leiknum að liðið getur
unnið hvaða lið sem er á góðum degi.
Óvænt tap Hauka
Keflavík nýtti sér það að Skalla-
grímur og Haukar, sem einnig eru
að berjast um sæti í úrslitakeppn-
inni, þurftu að sætta sig við töp.
Haukar töpuðu óvænt fyrir Breiða-
bliki á útivelli, 67:75. Danni Williams
skoraði 39 stig fyrir Breiðablik og er
hún einn besti skorarinn í deildinni.
Ljóst er að Ari Gunnarsson hefur
verk að vinna hjá Haukum, en hann
var í gær ráðinn þjálfari liðsins.
KR hefndi fyrir tapið fyrir Skalla-
grími í bikarúrslitum í síðasta mán-
uði með því að vinna öruggan sigur á
heimavelli gegn Borgnesingum,
65:50. Sanja Orazovic skoraði 21 stig
og Danielle Rodriguez 19 fyrir KR,
sem er nánast öruggt með annað
sæti deildarinnar og heimavallarrétt
í úrslitakeppninni.
Snæfell hafði betur gegn botnliði
Grindavíkur á heimavelli, 79:65.
Emese Vida skoraði mest í jöfnu liði
Snæfells eða 16 stig og Veera Pirtt-
inen gerði 15 stig.
Þrjú lið berjast um tvö sæti
Þegar þrjár umferðir eru eftir er
spennan mest um tvö síðustu sætin í
úrslitakeppninni. Þar stendur Kefla-
vík best að vígi með 32 stig en
Skallagrímur er með 30 og Haukar
28. Gæti það ráðist í lokaumferðinni
hver liðanna ná þriðja og fjórða sæti
og hvert situr eftir með sárt ennið.
Þá verður Grindavík að vinna alla
þrjá leiki sína til að eiga möguleika á
að halda sæti sínu í deildinni, en
hingað til hefur liðið aðeins unnið tvo
leiki í 22 og er staðan því erfið.
Keflvíkingar
sendu skilaboð
Keflavík vann Íslandsmeistarana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stigahæst Sanja Orozovic var stigahæst KR-inga gegn Skallagrími með 21
stig og reynir hér að komast framhjá hinni dönsku Emilie Hesseldal.
Afturelding vann gríðarlega
óvæntan sigur á HK, 33:30, í fyrsta
leik nítjándu umferðar Olísdeildar
kvenna í handknattleik að Varmá í
gærkvöld. Þetta er fyrsti sigur
Mosfellinga á tímabilinu en þeir eru
fyrir nokkru fallnir úr deildinni.
HK hefði með sigri nær tryggt sér
fjórða sætið og sæti í úrslitakeppn-
inni. Roberta Ivanauskaite skoraði
9 mörk fyrir Aftureldingu og
Anamaria Gugic 8 en Sigríður
Hauksdóttir gerði hvorki fleiri né
færri en 14 mörk fyrir HK og Díana
Kristín Sigmarsdóttir 8.
Óvæntur sigur
Aftureldingar
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Drjúg Anamaria Gugic skoraði átta
mörk fyrir Aftureldingu í gær.
Íslandsmeistarinn Guðmundur
Ágúst Kristjánsson varð efstur ís-
lenskra kylfinga á Catalunya Re-
sort Championship-mótinu í Barce-
lona sem lauk í gær. Mótið er hluti
af Nordic Golf-mótaröðinni. Guð-
mundur Ágúst hafnaði í 7.-9. sæti á
alls sjö höggum undir pari. Bjarki
Pétursson var í 21.-24. sæti á tveim-
ur höggum undir pari og Andri
Björnsson í 44.-46. sæti á þremur
höggum yfir pari. Þeir Haraldur
Franklín, Ragnar Garðarsson og
Rúnar Arnórsson komust ekki í
gegnum niðurskurðinn á mótinu.
Guðmundur í
hópi þeirra efstu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framarlega Guðmundur Ágúst
Kristjánsson lék vel.
KÓRÓNUVEIRAN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í
knattspyrnu, er enn í Brescia á Ítalíu
og óvíst er hvort eða hvenær honum
verður heimilað að fara þaðan til Ís-
lands vegna landsleiksins gegn Rúm-
eníu 26. mars.
Emil Hallfreðsson kom hins vegar
til landsins frá Padova á Ítalíu í gær
og er kominn í sóttkví fram að lands-
leiknum.
„Birkir var að leggja af stað til Ís-
lands í gærkvöld (fyrrakvöld) eins og
Emil þegar hann var stöðvaður.
Læknar liðanna í ítölsku A-deildinni
ákváðu á fundi að enginn leikmaður
úr deildinni fengi að ferðast úr landi
að svo stöddu og fyrir vikið stóðu for-
ráðamenn Brescia enn harðar á sínu
með að hleypa Birki ekki til Íslands,
eins og þeir höfðu að sjálfsögðu fullan
rétt á,“ sagði Freyr Alexandersson,
aðstoðarþjálfari landsliðsins, við
Morgunblaðið.
Hann sagði ekki útilokað að fá
Birki til landsins í tæka tíð þrátt fyrir
þetta og yfirvofandi fjórtán daga
sóttkví. „Hann gæti komið hingað
eins og ferðamaður, rétt eins og rúm-
enska landsliðið mun gera, og við ráð-
færum okkur um það við sótt-
varnalækni. Birkir hefur ekki átt
heimili eða fasta búsetu á Íslandi frá
níu ára aldri og ætti því að teljast
ferðamaður hér. Eflaust verður látið
reyna á það. En við munum ekki taka
neina áhættu með hann gagnvart öðr-
um leikmönnum. Birkir og Emil eru
báðir einkennalausir og það yrði
gengið úr skugga um að þeir væru
100 prósent heilbrigðir áður en þeir
kæmu til móts við aðra leikmenn okk-
ar,“ sagði Freyr.
Fari svo að Ísland vinni Rúmeníu
og mæti Ungverjalandi í úrslitum
umspilsins er ljóst að það yrði án
áhorfenda. Samkomubann var sett í
Ungverjalandi í gær.
Serbar í verri stöðu
Serbar eru í enn erfiðari aðstöðu
en Íslendingar fyrir EM-umspilið.
Þeir eiga að mæta Norðmönnum í
Ósló 26. mars og glíma nú á sama hátt
og KSÍ við það að ná sex af landsliðs-
mönnum sínum frá Ítalíu, þar sem
þeir sitja fastir þessa dagana.
Á Englandi var fyrsta leiknum
frestað í gærkvöld þegar Arsenal gat
ekki mætt til leiks gegn Manchester
City í úrvalsdeildinni. Leikmaður
Arsenal hafði heilsað forseta Olym-
piakos í kringum viðureign liðanna í
lok febrúar og þar með var Arsenal-
liðið í sóttkví í gær. Forsetinn er einn
þeirra sem hafa veikst af veirunni.
Arsenal á hins vegar að geta spilað á
ný um helgina, þar sem í dag eru fjór-
tán dagar liðnir frá atvikinu.
Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar
sagði í gær að engar frestanir væru
fyrirhugaðar um komandi helgi.
Talaði óvarlega um ÓL
Ólympíuleikarnir í Tókýó sem eiga
að hefjast 24. júlí voru í umræðunni í
heimspressunni í gær. Stjórnar-
maður í framkvæmdanefnd leikanna,
Haruyuki Takahashi, sagði í viðtali
við Wall Street Journal að best væri
að fresta leikunum um eitt eða tvö ár
vegna kórónuveirunnar.
Yoshiro Mori, forseti fram-
kvæmdanefndarinnar, boðaði snar-
lega til fréttamannafundar til að
svara þessu. „Það er ekki á dag-
skránni að breyta áætlun okkar. Ég
hef rætt við Takahashi og hann baðst
afsökunar. Hann lét hafa eftir sér fá-
ránlega hluti og talaði frá eigin
brjósti en ekki fyrir hönd nefndar-
innar, sem hann er ekki í forsvari
fyrir,“ sagði Mori á fundinum.
Plan B hjá EHF
Handknattleikssamband Evrópu,
EHF, er komið með „plan B“ fyrir
úrslitaleiki Evrópumóta félagsliða
sem fram eiga að fara í maí. EHF er
tilbúið að færa þá yfir í lok ágúst og
byrjun september.
Eins gætu landsleikir Íslands og
Tyrklands í undankeppni EM kvenna
sem eiga að fara fram 25.-29. mars
verið færðir fram í júní, samkvæmt
sams konar áætlun EHF.
Í NBA-deildinni í körfuknattleik
verður viðureign Golden State og
Brooklyn sem fram átti að fara í
kvöld væntanlega frestað eftir að
samkomubann var sett á í San Franc-
isco í gær. NBA er með í bígerð að
flytja heimaleiki yfir á velli aðkomu-
liðsins þegar það er hægt, og jafnvel á
hlutlausa velli.
Morgunblaðið/Eggert
Bíður Birkir Bjarnason má ekki
yfirgefa Ítalíu að svo stöddu.
Stöðvaður á síðustu stundu
Læknar á Ítalíu komu í veg fyrir að Birkir færi til Íslands Emil er kominn