Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndahátíðin Stockfish verður
sett í kvöld með sýningu á dönsku
heimildarmyndinni Q’s Barbershop
og stendur hátíðin yfir í ellefu daga,
til og með 22. mars.
Stockfish er ekki aðeins kvik-
myndahátíð heldur líka ráðstefnu-
hátíð fagfólks í kvikmyndabrans-
anum. Með
Stockfish var
Kvikmyndahátíð
Reykjavíkur vak-
in aftur til lífsins
en fyrri hátíð hóf
göngu sína árið
1978 og var síðast
haldin árið 2001.
Marzibil Sæ-
mundardóttir,
framkvæmda-
stjóri Stockfish,
er spurð að því í hverju sérstaða há-
tíðarinnar felist og svarar hún því til
að öll fagfélögin í kvikmyndageiran-
um hér á landi standi að hátíðinni
líkt og Bíó Paradís sem sé sjálfs-
eignarstofnun.
„Við komum úr kvikmyndabrans-
anum og erum þess vegna að þjóna
íslenskum kvikmyndabransa með
bransadögunum okkar, að tengja
okkar kvikmyndagerðarmenn við
erlendu pressuna og bjóða upp á
viðburði við kvikmyndagerðarfólk.
Svo erum við með þessar sérvöldu
verðlaunamyndir. Við viljum færa
bíógestinum það besta sem er að
gerast í bíóheiminum og erum að
sýna mjög fjölbreyttar myndir sem
eru allar handvaldar af okkur. Fólk
sendir ekki inn myndir sem við velj-
um úr þannig að þú getur farið í bíó
á Stockfish og verið viss um að allar
myndirnar eru góðar. Þú getur ver-
ið alveg viss um það,“ segir Marzi-
bil.
– Hvernig veljið þið myndirnar?
„Eins og ég segi, við veljum og
horfum á margverðlaunaðar
myndir,“ svarar Marzibil, „og það er
nokkuð gefið að ef mynd er að vinna
á Cannes eða í Berlín og komin með
fullt af gagnrýni sem er öll jákvæð
þá er mjög líklegt að myndin sé
góð,“ segir Marzibil kímin.
Lítil og krúttleg
– Þannig að gæði Stockfish skipta
mun meira máli en t.d. fjöldi þeirra
kvikmynda sem eru á dagskrá?
„Já, okkar innsta gildi er að halda
gæðum, okkur langar ekkert til að
stækka heldur viljum við vera áfram
þessi litla, krúttlega hátíð í Bíó
Paradís sem er mjög há í gæðum en
ekkert endilega risastór. Við viljum
endilega halda því og það er nota-
legt andrúmsloft og margir erlendir
gestir sem koma. Þeir eru aðgengi-
legir fyrir íslenskt kvikmynda-
gerðarfólk og við viljum bara halda
þessu.“
Marzibil er beðin um að nefna
helstu gesti að þessu sinni og nefnir
hún m.a. finnska leikstjórann Dome
Karukoski sem kemur hingað með
nýjustu kvikmynd sína Tolkien sem
segir af J.R.R. Tolkien, höfundi
Hringadróttinssögu og Hobbitans.
Karukoski mun sitja fyrir svörum
að lokinni sýningu myndarinnar á
morgun, 13. mars.
Boðið verður upp á masterklassa
með Dananum Jeppe Gjervig Gram,
handritshöfundi sjónvarpsseríunnar
Borgen og Liselott Forsman, for-
stöðumaður Norræna kvikmynda-
og sjónvarpssjóðsins, mun sitja pall-
borðsumræður um sjónvarpsseríur
á breyttum tímum, svo fátt eitt sé
nefnt.
Af mörgu að taka
Þeir sem fylgjast vel með því sem
er að gerast í hinum alþjóðlega
kvikmyndaheimi sjá á dagskrá
Stockfish að þar eru margar kræs-
ingar og marglofaðar kvikmyndir.
Ein þeirra er The Painted Bird eftir
tékkneska leikstjórann Václav
Marhoul en kvikmyndin byggist á
samnefndri skáldsögu pólska rithöf-
undarins Jerzy Kosiñski.
Opnunarmynd hátíðarinnar, Q’s
Barbershop, var líka opnunarmynd
hátíðarinnar Nordisk Panorama og
mælir Marzibil með því að fólk sjái
hana og þá sérstaklega rakarar.
„Rosalega skemmtileg og góð mynd
sem var vel tekið á Nordisk Pano-
rama,“ segir hún um myndina.
Monos þykir einnig mögnuð kvik-
mynd og Marzibil segir líka marga
bíða eftir brasilísku kvikmyndinni
Bacurau sem gerist í litlu þorpi í
Brasilíu í náinni framtíð. Sjá um-
fjöllun á næstu síðu.
Íslenskar heimildarmyndir
og stuttmyndakeppni
Sýningar á hverri kvikmynd eru
fáar og spurð að því hvort mögulegt
sé fyrir handhafa hátíðarpassa að
sjá allar myndirnar sem eru á dag-
skrá segir Marzibil svo vera. „Já,
það er hægt,“ segir hún og er í
framhaldi beðin um að ráðleggja ný-
græðingum, þeim sem eru að fara á
Stockfish í fyrsta sinn. „Ég myndi
byrja á því að kynna mér allar
myndirnar og merkja við hvað mig
langaði mest að sjá. Síðan myndi ég
kíkja á dagskrána og fara að búa til
plan, raða þessu upp. Ég vildi óska
þess að ég gæti bara farið að borða
popp og liggja í bíó,“ segir Marzibil
og hlær við. Hún sé því miður of
upptekin til að leyfa sér slíkan
munað.
„Þetta er algjör veisla og ég hef
aldrei verið eins ánægð með pró-
grammið og ég er núna,“ segir
Marzibil og nefnir undir lokin að
tvær íslenskar heimildarmyndir
verði frumsýndar, um Guðríði hina
víðförlu annars vegar og hins vegar
Eggert Pétursson listmálara.
Ekki má svo gleyma stuttmynd-
um en stuttmyndakeppnin Sprett-
fiskur er fastur liður á hátíðinni og
myndirnar sem komust í úrslit
hennar verða sýndar 16. og 20.
mars.
Allar frekari upplýsingar má
finna á vefsíðu hátíðarinnar,
stockfishfestival.is og vef kvik-
myndahússins, bioparadis.is.
„Allar myndirnar eru góðar“
26 kvik- og heimildarmyndir auk stuttmynda eru á dagskrá kvikmyndahátíðarinnar Stockfish sem
hefst í kvöld í Bíó Paradís „Þetta er algjör veisla,“ segir framkvæmdastjóri hátíðarinnar
Marzibil
Sæmundardóttir
Átakanleg Úr kvikmyndinni The Painted Bird, Skræpótti fuglinn, sem byggð er á samnefndri skáldsögu pólska
rithöfundarins Jerzy Kosiñski og fjallar um dreng af gyðingaættum í seinni heimsstyrjöldinni.
Stockfish 2020
Fjöldi viðburða og sérsýninga er á
dagskrá Stockfish.
Á mánudaginn, 16. mars kl. 16,
verður fjallað um verk í vinnslu og
er aðgangur ókeypis. Sýnd verða
brot úr kvikmyndaverkum sem eru
í vinnslu og áhorfendur geta spurt
fulltrúa frá hverju verkefni út í
þau. Pallborðsumræður um nor-
rænar heimildarmyndir fara fram
14. mars kl. 14 og aðrar um sjón-
varpsseríur á breyttum tímum 17.
mars kl. 16.30. Meðal þátttakenda
í þeim síðarnefndu eru Liselott
Forsman, forstöðumaður Norræna
kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.
Heimsfrumsýningar
Nokkrar frumsýningar og sérsýn-
ingar verða á hátíðinni þar sem
fólk situr fyrir svörum. 15. mars
verður heimsfrumsýning á heim-
ildarmyndinni Amber & Me að við-
stöddum enskum leikstjóra henn-
ar, Ian Davis og á sama tíma
verður frumsýnd heimildarmynd
Gunnlaugs Þórs Pálssonar um list-
málarann Eggert Pétursson, Eins
og málverk. 19. mars verður
heimsfrumsýning á nýsjálensku
kvikmyndinni A Fire in the Cold
Season, að viðstöddum leikstjóra
hennar Justin Oakey og degi fyrr
heimsfrumsýning á heimildar-
myndinni Guðríður hin víðförla eft-
ir Önnu Dís Ólafsdóttur.
Leikstjóraspjall fer fram nokkrum
sinnum á meðan á hátíðinni
stendur. 13. mars verður spjallað
við finnska leikstjórann Dome
Karukoski, 14. mars við danska
leikstjórann Emil Langballe, 15.
mars við norska leikstjórann Monu
J. Hoel, 16. mars við brasilíska
leikstjórann Karim Aniouz og 18.
mars við írska leikstjórann Tom
Sullivan.
Sérstök sýning verður á heimild-
armyndinni Amber & Me þann 15.
mars, sem fyrr var getið en mynd-
in fjallar um líf og samband tví-
burasystra út frá sjónarhorni föð-
ur þeirra, Ian Davies, sem gerði
myndina og verður viðstaddur sýn-
ingu hennar. Amber er með
Downs-heilkenni og Davies mun
ræða við fulltrúa frá íslensku
Downs-samtökunum um ætlun
sína með gerð myndarinnar.
Frekari upplýsingar um viðburði og
sýningartíma má finna á vef hátíð-
arinnar, stockfishfestival.is.
Frumsýningar og fróðleikur
VIÐBURÐIR OG SÉRSÝNINGAR
Rannsókn Eggert Pétursson listmálari í
heimildarmyndinni Eins og málverk.
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS