Morgunblaðið - 12.03.2020, Síða 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Starfsmannamyndir
fyrir öll fyrirtæki og stofnanir
Vönduð
og hröð
þjónust
a
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er dásamlegt að vera kominn
aftur í leikhúsið, enda hef ég alla tíð
litið fyrst og fremst á mig sem leik-
húsmann,“ segir Magnús Geir
Þórðarson, sem um áramótin var
skipaður þjóðleikhússtjóri til næstu
fimm ára. Magnús Geir hefur víð-
tæka leiklistarreynslu sem leikstjóri
og leikhússtjóri, því hann hefur stýrt
þremur öðrum leikhúsum, þ.e. Leik-
félagi Íslands 1995-2001, Leikfélagi
Akureyrar 2004-2008 og Borgarleik-
húsinu 2008-2014, þar til hann var út-
varpsstjóri 2014-2019.
„Mér þykir afskaplega vænt um að
hafa fengið tækifæri til að stýra RÚV
og er afskaplega stoltur af árangr-
inum sem náðst hefur þar. En það var
kominn tími til að breyta til, enda var
ég búinn að hrinda flestu af því sem
ég ætlaði mér í framkvæmd. Ég er
óendanlega þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að koma aftur inn í
leikhúsið og halda áfram á fyrri veg-
ferð,“ segir Magnús Geir og bendir á
að þótt RÚV hafi verið ákveðinn út-
úrdúr á ferlinum eigi RÚV og leik-
húsið margt sameiginlegt sem nýtist
honum í nýja starfinu. „Báðir miðlar
eru að segja sögur og rýna í sam-
félagið til að skoða hvaða viðfangsefni
þarf að takast á við hverju sinni. Ég
held að leikhúsið hafi gott af því að
hlusta meira á samfélagið en það hef-
ur gert, enda snýst þetta allt um er-
indið,“ segir Magnús Geir og tekur
fram að sú fjarlægð sem hann hafi
fengið frá leikhúsinu í starfi sínu sem
útvarpsstjóri nýtist vel til að skoða
hlutina með ferskum augum.
Taka áhættu og kafa á dýptina
„Nú þegar ég er aftur kominn í
leikhúsið finn ég að ástríðan fyrir
leikhúsinu er jafnvel enn meiri en
áður,“ segir Magnús Geir og rifjar
upp að svo skemmtilega vilji til að
fyrstu leiksýningarnar sem hann sá á
unga aldri hafi verið í Þjóðleikhúsinu.
Aðeins níu ára lék hann í Tyrkja-
Guddu í Þjóðleikhúsinu og ári síðar í
Ríkharði þriðja sem ýtti svo sann-
arlega undir leikhúsbakteríuna sem
fyrir hendi var. „Ég þekki Þjóðleik-
húsið því mjög vel þótt það vilji svo til
að ég hef aldrei leikstýrt hér í hús-
inu,“ segir Magnús Geir og tekur
fram að hann reikni með að leikstýra
hjá Þjóðleikhúsinu reglulega, en samt
hóflega, frá og með leikárinu 2021-22.
„Ég tel það gott fyrir leikhúsið að
hafa leikstýrandi leikhússtjóra,“
segir Magnús Geir og tekur fram að
hann sjái það sem kost að leikhús-
stjórinn komist reglulega út af skrif-
stofunni og í bein tengsl við listræna
starfið í húsinu.
„Skipulagsbreytingarnar sem við
kynntum nýverið miða að því að efla
listrænt starf og aðgreina það betur
frá rekstrarlegum þáttum. Þannig á
leikhússtjórinn og listræna teymið í
auknum mæli að geta einbeitt sér að
stefnumörkun og listrænni stjórnun,“
segir Magnús Geir og vísar þar til nýs
skipurits Þjóðleikhússins sem kynnt
var í síðustu viku. Í nýju skipulagi
verður til nýtt rekstrarsvið og mun
framkvæmdastjóri sviðsins bera
ábyrgð á daglegum rekstri, sem færist
af hendi leikhússtjóra. Í síðasta mán-
uði voru fjórir listrænir stjórnendur
fastráðnir við Þjóðleikhúsið til að skipa
teymi listrænna stjórnenda við leik-
húsið ásamt leikhússtjóra, þ.e. þau
Hrafnhildur Hagalín, Ólafur Egill
Egilsson, Ilmur Stefánsdóttir og
Björn Bergsteinn Guðmundsson, sem
koma í stað verkefnaráðinna listrænna
stjórnenda áður. Þá var kynnt að Unn-
ur Ösp Stefánsdóttir kæmi á samning
sem leikstjóri og leikkona.
„Markmið teymisins er að efla sam-
tal og framtíðarsýn í listrænni stefnu-
mörkun leikhússins,“ segir Magnús
Geir og tekur fram að það sé ávallt
hlutverk nýs stjórnanda að horfa á
hlutina með ferskum augum, leggja
við hlustir og koma með ábendingar
um hvað megi bæta og efla í rekstr-
inum. Rifjar hann upp að hann hafi
gert þó nokkrar breytingar bæði hjá
Borgarleikhúsinu og RÚV þegar hann
tók þar til starfa. „En breytingarnar
eru aldrei bara breytinganna vegna.
Þær breytingar sem hér er verið að
gera eru allar með það að markmiði að
efla listrænt starf þannig að það sé
meiri ró og næði til að sinna listrænni
stefnumörkun og hlúa að sýningunum
sjálfum. Mín trú er að það gerist fyrst
og fremst með því að skerpa á skipu-
laginu, þannig að framleiðslan, rekst-
urinn og markaðssetningin fái skýrari
umgjörð með öflugri stjórnun og bætt-
um verkferlum undir stjórn nýs fram-
kvæmdastjóra. Með því skapast meira
næði fyrir þjóðleikhússtjóra til að huga
að stóru myndinni, listrænu sýninni,
verkefnavalinu, erindinu og valinu á
listrænum stjórnendum og þroska
leikhópinn ásamt því að styðja við
hverja og eina sýningu þegar hún er í
mótun. Með því að aðgreina þessa
þætti og gera hluta starfseminnar
skýrari og formfastari gefst aukið
svigrúm til sköpunar þar sem hægt er
að taka alvöru áhættu og kafa á dýpt-
ina. Teymi öflugra fastráðinna list-
rænna stjórnenda skapar auk þess
nýja möguleika til aukins samtals um
framtíðarsýn og stefnu.“
Vill efla íslenska leikritun
Hluti af skipulagsbreytingunum
felst í því að breyting hefur orðið á
ráðningarformi fimm stöðugilda leik-
ara, sem áður voru fastráðnar stöður,
en nú verða stöðugildin nýtt til ráðn-
ingar til skemmri tíma til að auka
sveigjanleika. Það hlýtur að vera erfitt
að þurfa að segja upp fólki?
„Já, algjörlega. Það þýðir samt ekki
að skorast undan því. Auðvitað getur
verið freistandi að hreyfa ekki við
neinu, en nýr stjórnandi er ekki ráðinn
til þess. Það er ætlast til þess að nýr
stjórnandi horfi á hlutina ferskum aug-
um og geri þær breytingar sem þarf
að gera – en auðvitað reynir maður að
gera þessar strúktúrbreytingar þann-
ig að þær séu sem sársaukaminnstar
fyrir alla. Nýkynntar skipulagsbreyt-
ingar eru heildstæðar og stefnumið-
aðar. Í tilviki leikaranna fimm er verið
að breyta ráðningarforminu úr fast-
ráðningu í lausráðningu og ég geri mér
vonir um að þau muni öll halda áfram
að vinna fyrir Þjóðleikhúsið þótt það sé
á öðru formi en verið hefur.“
Af öðrum breytingum má nefna að
stofnuð hefur verið ný deild sem hefur
það að markmiði að bæta þjónustu við
börn og ungt fólk, en í síðasta mánuði
auglýsti Þjóðleikhúsið eftir nýjum
íslenskum leikritum fyrir börn. Um
liðna helgi var auk framkvæmdastjóra
auglýst eftir forstöðumanni samskipta,
markaðsmála og upplifunar og þjón-
ustu- og upplifunarstjóra, en um er að
ræða nýjar stöður og samhliða voru
þrjár eldri stöður lagðar niður.
„Við erum að leggja aukna áherslu á
upplifunarþáttinn og þjónustuna sem
tengist miðlun á starfinu, samskipti og
samtali við áhorfendur, frekar en
beina markaðs- og sölumennsku. Auð-
vitað vil ég að Þjóðleikhúsið sé fjölsótt
leikhús, en þetta snýst ekki bara um að
selja leikhúsmiða heldur miklu meira
um samtalið við samfélagið – bæði að
leggja við hlustir og að samfélagið sé
meðvitað um það sem er að gerast hér
og upplifi að Þjóðleikhúsið sé aðgengi-
legt og taki á móti því opnum örmum.
Þó að Þjóðleikhúsið sé musteri
íslenskrar tungu sé það ekki ókleifur
klettur, heldur alþýðlegt og opið lands-
mönnum. Annað mikilvægt atriði er að
líta á það sem við höfum fram að bjóða
ekki sem bara tveggja klukkustunda
einingar. Upplifunin hefst við fyrstu
snertingu þegar leikhúsgestir hafa
samband við miðasöluna, upplifun
þeirra af húsinu fyrir sýningu og í hléi,
leikskránni og myndböndum um sýn-
inguna sem aðgengileg eru á netinu,
sýningunni sjálfri og loks því hvernig
hún lifir með áhorfendum eftir að heim
er komið. Ég sá sem dæmi Karde-
mommubæinn sem barn, en ég hélt
áfram að upplifa sýninguna í tíu ár þar
sem hún var aðgengileg á plötu. Tæki-
færin í dag eru miklu fleiri en áður,“
segir Magnús Geir og jánkar því að
spennandi væri að taka upp fleiri leik-
sýningar til varðveislu og að reynsla
hans af RÚV geti nýst ágætlega í
þessu sambandi.
Í lögum um sviðslistir kemur fram
að aðalverkefni Þjóðleikhússins sé
flutningur íslenskra og erlendra leik-
verka, jafnt eldri verka sem nýrra, og
að stuðla að frumsköpun í íslenskum
sviðslistum. Verkefnaval skuli vera
fjölbreytt og tryggt að á hverju leikári
séu frumflutt íslensk leikverk og sett
upp verk ætluð börnum og ungu fólki.
Í raun má segja að Borgarleikhúsið
starfi eftir sömu forskrift, þó að það
falli ekki undir lögin. Er það kostur
eða galli að þínu mati?
„Þjóðleikhúsið hefur verið með
þjóðinni í 70 ár og á þeim tíma hafa
skyldurnar verið meira eða minna þær
sömu. Mér finnst skilgreiningin á hlut-
verki Þjóðleikhússins í lögum í dag
bæði eðlileg og skynsamleg. Hins veg-
ar er mjög mikið svigrúm innan þess.
Það er okkar verkefni að uppfylla
þetta hlutverk með framúrskarandi
hætti, þannig að áhorfendur upplifi
leikhústöfra sem aldrei gleymast. Það
urðu umtalsverðar áherslubreytingar í
Borgarleikhúsinu 2008 sem skiluðu
miklum árangri og leikhúsinu hefur
gengið vel síðan innan þess ramma.
Sannarlega eru ákveðin líkindi milli
leikhúsanna tveggja. Nú erum við að
móta hvernig við ætlum að þróa Þjóð-
leikhúsið áfram til næstu ára og ég sé
endalaus tækifæri til að sækja fram.
Við erum með ótal skemmtilegar nýj-
ungar í farvatninu sem við hlökkum til
að kynna.
Það sem ber hvað hæst í áherslu-
breytingum er að við viljum efla nýja
íslenska leikritun og í auknum mæli
segja sögur sem eiga beint erindi við
íslenska áhorfendur í dag. Eitt helsta
hlutverk Hrafnhildar Hagalín er að
efla hér höfundastarf og styðja við
íslenska leikritun. Við munum kapp-
kosta að Þjóðleikhúsið eigi ríkt erindi
við áhorfendur þannig að sögurnar
sem hér eru sagðar standi okkur
sannarlega nærri. Ég vil líka að við
hlúum að sérstöðu leikhússins sem
listforms, því sameiningarmáttur leik-
hússins hefur sjaldan verið verðmæt-
ari en nú á tímum tvístrunar í miðlun
og tækni. Það er verðmætara nú en
oftast áður að ná hópi fólks til að upp-
lifa sögu saman án annars utanaðkom-
andi áreitis. Núið hefur sjaldan verið
dýrmætara en nú og það munum við
virða. Við viljum líka að Þjóðleikhúsið
sé opið og aðgengilegt fyrir breiðan
hóp áhorfenda,“ segir Magnús Geir og
nefnir jafnframt að Þjóðleikhúsið muni
leggja aukna áherslu á samstarf og
gagnsæi. „Á dögunum auglýsti Þjóð-
leikhúsið í fyrsta skipti formlega eftir
hugmyndum að samstarfsverkefnum.
Hjá RÚV settum við stóraukna
áherslu á samstarf og samtal og þar sá
ég hvað slíkt getur skilað miklum sam-
félagslegum verðmætum. Þar verða
tveir plús tveir ekki endilega fjórir
heldur fimm eða eitthvað miklu meira.
Þessa reynslu langar mig að nýta í
leikhúsinu.“
Jafnrétti mér hjartans mál
Misjafnt er við leikhússtjóraskipti
hversu fljótt nýr stjórnandi getur sett
mark sitt á efnisskrána. Hvernig verð-
ur þetta hjá þér?
„Ég ákvað að gera engar breytingar
á yfirstandandi leikári, en þegar ég tók
hér við var ekki búið að móta leikárið
2020-21 þannig að við höfum frá ára-
mótum unnið að því að stilla upp dag-
skrá næsta leikárs,“ segir Magnús
Geir og tekur fram að ánægjulegt sé
að geta strax mótað stefnu leikhússins
þó að tíminn til stefnu sé vissulega
skammur. „Næsta leikár lítur af-
skaplega vel út og verður gríðarlega
spennandi. “
Nýverið bárust fréttir af því að Þor-
leifur Örn Arnarsson leikstjóri væri
genginn til liðs við Þjóðleikhúsið og
myndi þar leikstýra einni sýningu á ári
næstu fimm ár. Samtímis myndi hann
vinna með Þjóðleikhúsinu að því að
efla alþjóðlegt samstarf leikhússins og
veita því listræna ráðgjöf á tímabilinu.
Hvernig er samstarfið til komið?
„Hlutverk leikhússtjóra er alltaf að
raða saman mest spennandi verkefn-
unum og öflugasta listafólkinu sem völ
er á hverju sinni. Þorleifur er auðvitað
einn þeirra sem ég hef verið að ræða
við og falast eftir kröftum hans til
framtíðar. Við erum auðvitað í skýj-
unum yfir því að Þorleifur vilji taka
þátt í þessu ævintýri með okkur og
gera samkomulag til lengri tíma.
Þannig verður hann fastur hluti af
starfsemi Þjóðleikhússins og þeirri
framþróun sem hér á sér stað.“
Meðan þú varst útvarpsstjóri var
gert mikið átak í því að jafna hlut
kynjanna í hópi yfirstjórnar, milli-
stjórnenda, þáttastjórnenda og við-
mælenda. Munt þú sem leikhússtjóri
gæta að jafnræði kynjanna?
„Jafnrétti er mér hjartans mál og ég
mun gera mitt allra besta til að Þjóð-
leikhúsið verði til fyrirmyndar á þess-
um vettvangi. Ég er mjög stoltur af ár-
angrinum sem náðist hjá RÚV,“ segir
Magnús Geir og bætir við að auk ofan-
greindra atriða hafi kynjasjónarmið
verið tekin inn þegar ákveðið var
hvaða sögur skyldi segja. „Hollywood
er mjög karllæg og því var það liður í
því að auka hlut kvenna í dagskrá
RÚV að leggja aukna áherslu á innlent
efni, efni frá Norðurlöndum og Evr-
ópu,“ segir Magnús Geir og segist hafa
jafnvægi kynja að leiðarljósi nú þegar
hann stilli upp nýju teymi í leikhúsinu.
Stefnt sé að því að jafnvægi verði í
starfsmannahópnum, í sögunum sem
sagðar verða og jafnframt í hópi list-
rænna stjórnenda. „Við stefnum að því
að ná þessum árangri eins hratt og
mögulegt er – vonandi strax á næsta
ári,“ segir Magnús Geir að lokum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Ástríðan fyrir leikhúsinu er meiri“
Magnús Geir Þórðarson nýráðinn þjóðleikhússtjóri segir gott að vera kominn aftur í leikhúsið
Gerir skipulagsbreytingar til að efla listrænt starf Vill efla samtalið við þjóðina og opna húsið
Ævintýri Magnús Geir segir spennandi
tíma fram undan í Þjóðleikhúsinu.