Morgunblaðið - 12.03.2020, Síða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Njóttu þess að hvílast
í hreinum rúmfötum
Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Við þvoum og pressum rúmfötin
- þú finnur muninn!
Vök, Auður, Hildur Guðnadóttir, Kristín Anna,
Grísalappalísa, Páll Ragnar Pálsson, Ásta og
Ingi Bjarni Skúlason voru meðal vinningshafa á
verðlaunahátíð Íslensku tónlistarverðlaunanna
sem fram fór í Hörpu í gær og voru alls veitt 38
verðlaun auk heiðursverðlauna sem sópran-
söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
hlaut. Lokatónar kvöldsins voru til heiðurs
Ragnari Bjarnasyni söngvara, sem lést 25.
febrúar síðastliðinn.
Vök var tilnefnd til flestra verðlauna og hlaut
þrenn eins og tónlistarmaðurinn Auður sem var
valinn söngvari ársins og flytjandi og lag hans
„Enginn eins og þú“ hlaut verðlaun sem popp-
lag ársins. Vök átti poppplötu ársins, In the
Dark, og Margrét Rán, söngkona sveitarinnar,
var valin lagahöfundur ársins og söngkona árs-
ins í popp- og rokkflokki. Hildur Guðnadóttir
hlaut tvenn verðlaun fyrir tónlist sína við þætt-
ina Chernobyl og atriði Hatara í Eurovision í
fyrra var tónlistarviðburður ársins og hlaut
einnig verðlaun fyrir tónlistarmyndband ársins
við Eurovision-lagið „Hatrið mun sigra“.
Tómas R. Einarsson hreppti verðlaun fyrir
djass- eða blúsplötu ársins, Gangandi bassa, en
tónverk ársins í þeim flokki, „Avi“, átti djass-
gítarleikarann Andrés Þór. Lagahöfundur árs-
ins var Einar Scheving fyrir lög sín á plötunni
Mi Casa, Su Casa og í sígildri og samtímatónlist
var plata ársins Concurrence með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarna-
sonar og tónverk ársins „Crevace, konsert fyrir
flautu og fagott“ eftir Pál Ragnar Pálsson.
Tónlistarflytjandi ársins úr röðum ein-
staklinga í sama flokki var Bjarni Frímann
Bjarnason og Elektra Ensemble hlaut verð-
launin sem tónlistarflytjandi ársins úr flokki
tónlistarhópa, söngkona ársins Dísella Lárus-
dóttir og söngvari ársins Benedikt Kristjáns-
son.
Í flokknum Önnur tónlist voru verðlaunahaf-
ar úr röðum höfunda kvikmynda- og leikhús-
tónlistar sem og þjóðlaga- og heimstónlistar.
Hildur Guðnadóttir hlaut verðlaun í flokki kvik-
myndatónlistar fyrir tónlist sína við sjónvarps-
þættina Chernobyl og hlaut hún einnig verð-
laun ásamt Sam Slater fyrir upptökustjórn
ársins fyrir hljóðmynd þáttanna.
Hér hefur verið tæpt á nokkrum verðlaun-
anna en eftirfarandi er heildarlisti þeirra.
Önnur tónlist: opinn flokkur, þjóðlaga- og
heimstónlist, kvikmynda- og leikhústónlist
Útgáfa ársins - kvikmynda- og leikhústónlist
Hildur Guðnadóttir – Chernobyl
Plata ársins - opinn flokkur
Kristín Anna – I must be the devil
Plata ársins - Þjóðlaga- og heimstónlist
Ásta – Sykurbað
Lag/tónverk ársins - Önnur tónlist
Lára Rúnars – Altari
Upptökustjórn ársins
Hildur Guðnadóttir og Sam Slater – Chernobyl
Plötuumslag ársins
Kristín Anna – I must be the devil
Rokk, popp, raftónlist, rapp og hiphopp
Plata ársins - popp
Vök - In the Dark
Plata ársins - rokk
Grísalappalísa - Týnda rásin
Plata ársins - raftónlist
Bjarki - Happy Earthday
Plata ársins - rapp og hipp hopp
Cell7 - Is anybody listening?
Lag ársins - popp
Auður - „Enginn eins og þú“
Lag ársins - rokk
Hipsumhaps - „Fyrsta ástin“
Lag ársins - raftónlist
Sykur - „Svefneyjar“
Lag ársins - rapp og hipp hopp
Flóni - „Falskar ástir“
Söngkona ársins
Margrét Rán Magnúsdóttir (Vök)
Söngvari ársins
Auðunn Lúthersson
Lagahöfundur ársins
Margrét Rán Magnúsdóttir (Vök)
Textahöfundur ársins
Gunnar Ragnarsson og Baldur Baldursson
(Grísalappalísa)
Flytjandi ársins
Auður
Tónlistarviðburður ársins
Hatari í Eurovision
Bjartasta von Rásar 2 og Íslensku tónlist-
arverðlaunanna
Hipsumhaps
Tónlistarmyndband ársins 2019 – Albumm.is
og Íslensku tónlistarverðlaunin
Hatari – „Hatrið mun sigra“
Sígild og samtímatónlist
Plata ársins
Concurrence - Sinfóníuhljómsveit Íslands undir
stjórn Daníels Bjarnasonar
Tónverk ársins
„Crevace, konsert fyrir flautu og fagott“ eftir
Pál Ragnar Pálsson
Viðburður ársins – einstakur viðburður
Hljóðön – Sýning tónlistar í Hafnarborg
Viðburður ársins – tónlistarhátíðir
Myrkir músíkdagar
Flytjandi ársins – einstaklingar
Bjarni Frímann Bjarnason
Flytjandi ársins – hópar
Elektra Ensemble
Söngvari ársins
Benedikt Kristjánsson
Söngkona ársins
Dísella Lárusdóttir
Bjartasta vonin - sígild og samtímatónlist
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Djass og blús
Plata ársins
Tómas Ragnar Einarsson - Gangandi bassi
Tónverk ársins
Avi eftir Andrés Þór Gunnlaugsson
Tónlistarflytjandi ársins - hópar
ADHD
Tónlistarflytjandi ársins - einstaklingar
Sunna Gunnlaugsdóttir
Tónlistarviðburður ársins
Tónleikaröð Stórsveitar Reykjavíkur
Lagahöfundur ársins
Einar Scheving
Bjartasta vonin
Ingi Bjarni Skúlason
Heiðursverðlaun Samtóns og
Íslensku tónlistarverðlaunanna
Sigrún Hjálmtýsdóttir - Heiðursverðlaunahafi
Íslensku tónlistarverðlaunanna
Vök og Auður sigursæl
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í gær Hljómsveitin Vök og tónlistarmaðurinn Auður
hlutu þrenn verðlaun hvor Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona hlaut heiðursverðlaun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilkomumikið Hatari kom fram með Óháða kórnum
og GDRN við upphaf verðlaunahátíðarinnar.
Hin ástsæla sópransönkona Sigrún
Hjálmtýsdóttir – Diddú, hlaut í gær-
kvöldi heiðursverðlaun Íslensku tón-
listarverðlaunanna sem Samtón
veitir og var hyllt af viðstöddum.
„Það er svolítið skrýtið að fá svona
heiðursverðlaun, ég hef alltaf tengt
þetta mér eldra fólki,“ sagði Diddú í
samtali við blaðamann og hló sínum
dillandi hlátri.
„En ég er afskaplega þakklát fyrir
að vera sýndur þessi heiður. Senni-
lega er ég að uppskera fyrir sönginn
öll þessi ár,“ bætti hún við og sagði
að sér þætti nú samt alltaf aðrir eiga
slíkan heiður frekar skilinn.
„Þetta er nú samt orðinn ansi
langur tími sem ég hef verið syngj-
andi – bráðum fimmtíu ár! Ég hef
komið svo víða við, ég hef smakkað
poppið, sígilda sönginn – óperuna,
og allt þar á milli.“
Diddú syngur enn mikið og kemur
víða fram með reglulegum hætti.
„Það er satt, það er aldrei flóafriður
fyrir mér,“ sagði hún og hló. „Það er
bara Guðs gjöf. Ég hef líka reynt
gegnum tíðina að vera skynsöm í
verkefnavali, svo röddin endist
lengi,“ sagði heiðusverðlaunahafinn
lukkuleg.
Diddú ólst upp á tónlistarheimili í
Reykjavík og hófst söngferill hennar
snemma. Hún söng og lék í leikritum
í Melaskóla og söng inn á plötu árið
1969. Diddú lék árið 1972 í sjón-
varpsgerð Brekkukotsannáls eftir
Halldór Laxness og hefur upp frá
því leikið á sviði, í sjónvarpi og vin-
sælum kvikmyndum. Hún starfaði
lengi með Spilverki þjóðanna.
Diddú lauk söngnámi í London ár-
ið 1985 og hefur síðan einbeitt sér
einkum að óperusöng og er ein dáð-
asta óperusöngkona landsins. Hún
hefur líka sungið vísnalög og djass-
ópusa, auk ljóðasöngva, einsöngs-
laga og óperuaría á sviði og inn á
fjölda hljómplatna. Hún hefur áður
hlotið ýmsar viðurkeningar.
„Að uppskera fyrir
sönginn öll þessi ár“
Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú heiðruð
Dáð Diddu var fagnað þegar hún
tók við heiðursverðlaununum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg