Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 66
Síðasta veiðiferðin er fyrsta leikna kvik-mynd félaganna Arnar Marinós Arnar-sonar og Þorkels Harðarsonar sem áðurhafa gert vandaðar og áhugaverðar heim-
ildarmyndir. Hér er á ferðinni gamanmynd um hóp
miðaldra karlmanna, vina sem halda saman norður
á land í laxveiði. Mun handrit Arnar og Þorkels að
stóru leyti byggt á sönnum sögum og þær eru flest-
ar lyginni líkastar.
Sagan er ekki flókin og best að segja sem minnst
til að skemma ekki grínið. Í stuttu máli er hún á þá
leið að vinahópur kemur saman til að veiða lax og
fljótlega fer allt úr böndunum sökum ofneyslu
áfengis. Óvæntar uppákomur og eignatjón koma
við sögu og menn muna í flestum tilfellum ekkert
eftir því hvað gerðist. Mestur er óttinn við eigin-
konur og kærustur, hvernig á að útskýra þetta fyrir
þeim þegar heim er komið? Þær fáu konur sem
koma við sögu eru rödd skynseminnar, biðja karl-
ana að haga sér vel eða refsa þeim fyrir slæma
hegðun. Sumir karlar hafa gott af því að fá spark í
punginn endrum og eins.
Persónur eru kynntar stuttlega til sögunnar í
upphafi myndar. Þorsteinn Bachmann leikur Val,
snobbarann í hópnum sem er auðugur fjárfestir
með stjórnunaráráttu. Valur gerir ítrekað lítið úr
vinum sínum og þá einkum mági sínum, Magga,
sem er með í för en hann leikur Halldór Gylfason.
Hilmir Snær leikur Jónsa sem virðist vera töffarinn
í hópnum, setur strax í lax og lætur fátt á sig fá.
Hann hittir fyrrverandi verkfræðikennara sinn,
Óla, sem leikinn er af Jóhanni Sigurðarsyni, í veiði-
búð og býður honum með í veiðina. Óli þessi virðist
í fyrstu ekki mjög áhugaverður en annað kemur í
ljós þegar hann segir frá ferðalögum sínum og
ævintýrum yfir fyrstu kvöldmáltíð veiðihópsins.
Óborganlegt atriði. Hjálmar Hjálmarsson leikur
Kolla sem maður fær lítið að vita um og Þröstur
Leó er sá drykkfelldasti í vinahópnum og vílar ekki
fyrir sér að stela úr búðum og sækja mat í rusla-
gáma. Þröstur og Hjálmar eru frábært dúó og
ófeimnir við að spranga naktir um árbakkana.
Síðasta veiðiferðin minnir að vissu leyti á aðra
gamanmynd um félaga sem fara í fyllirísferð og
gera mikinn óskunda. Hangover heitir hún og segir
af vinum sem fara til Las Vegas til að steggja einn
þeirra en týna honum og þurfa að rekja spor sín til
að komast að því hvað gerðist. Neysla áfengis og
vímuefna hefur algjörlega rænt þá minninu, líkt og
í Síðustu veiðiferðinni. Hörmungarnar eru að vísu
ekki alveg jafnsvakalegar í Síðustu veiðiferðinni og
þær eru í Hangover og nær því að vera trúverð-
ugar. Enda mun þetta allt hafa gerst í ónefndum
veiðiferðum ónefndra manna, ef rétt er skilið, og
handritið að stórum hluta byggt á flökkusögum.
Nú kann einhver að spyrja hvort þessi gaman-
mynd tveggja miðaldra karla um miðaldra karla í
veiðiferð eigi eitthvert erindi við aðra en miðaldra
karla? Jú, hún á erindi og hafa leikstjórarnir sagt
frá því að konur hafi hlegið mest á prufusýningum á
myndinni. Sjálfur fór ég með syni mínum á tánings-
aldri á myndina og honum þótti hún bæði fyndin og
bráðskemmtileg. Hún er ekki bönnuð börnum og
óþarfi að hafa áhyggjur af því að hún hafi skaðleg
áhrif á unga áhorfendur. Karlar sem haga sér eins
og fífl hafa löngum þótt góð skemmtun, sjá til að
mynda þá Klovn-félaga, Frank og Kasper. Hand-
ritshöfundar Síðustu veiðiferðarinnar hefðu jafnvel
mátt ganga enn lengra í svörtum húmor og bæta í
dramatíkina og hörmungarnar. Annars er hand-
ritið gott á heildina litið, samtöl vel skrifuð og
skondin og leikarahópurinn er frábær. Þessir þaul-
reyndu menn ná afar vel saman og kitla hressilega
hláturtaugarnar.
Ekki get ég dæmt um hversu sannfærandi veiði-
atriðin eru, þóttist reyndar sjá steindauðan fisk
dreginn á land en það skipti litlu máli. Mikið grín er
gert að því að veiðimenn noti fluguna Rauður Fran-
ces sem mér skilst, af mér fróðari mönnum um lax-
veiði, að sé oft skráður í veiðibækur þegar veiði-
menn hafa í raun notað maðk. Í einu atriða myndar-
innar laumar einmitt einn veiðimannanna maðki
upp á slíka flugu, sem styður þessa kenningu.
Upphafi og endi sögunnar er svo skemmtilega
hnýtt saman með sjálfum Bubba Morthens sem
verður að hálfgerðu átrúnaðargoði og sameiningar-
tákni hinna ólíku veiðifélaga. Hið stórkostlega
rokklag Bubba og GCD, „Sumarið er tíminn“, er
spilað á leiðinni norður og hressilega tekið undir og
myndinni lýkur einnig á laginu. Bubbi kemur þá við
sögu og er ég ekki að ljóstra upp um neitt, þar sem
fjallað var um þátttöku hans í kvikmyndinni í fjöl-
miðlum í fyrra. Þetta er skondin hugmynd hjá
handritshöfundum og sterk því ef einhverjir eru
aðdáendur Bubba í dag þá eru það karlar um og
rétt yfir miðjan aldur. Karlar sem horfðu á Bubba
beran að ofan og öskrandi á sviði með Utangarðs-
mönnum og hugsuðu með sér, já, þetta er sko töff-
ari! Bubbi verður í myndinni að einhvers konar
táknmynd karlmennskunnar, poppstjarnan og
veiðimaðurinn sem heldur sér í formi með hnefa-
leikum og ræktar rósir á sumrin. Bæði mjúkur og
harður. Bubbi hnýtir síðustu fluguna listilega og
aðdáunarfull augnaráð leikaranna þegar hann hef-
ur upp raust sína eru fullkominn endir á þessu
spaugilega sumarævintýri. Sumarið er jú tíminn
þegar miðaldra karlar fara í veiðiferð og fá útrás
fyrir allar þær tilfinningar sem kraumað hafa innra
með þeim, tilfinningar sem þeim var ungum kennt
að bera ekki á torg og halda fyrir sjálfa sig.
Sumarið er tíminn þegar konur springa út en karl-
ar springa á limminu.
Sumarið er tíminn …
Óþekktarormar Vinahópurinn á veggspjaldi Síðustu veiðiferðarinnar sem er vel heppnuð gamanmynd.
Laugarásbíó, Háskólabíó og
Sambíó Keflavík
Síðasta veiðiferðin bbbbn
Leikstjórn og handrit: Örn Marinó Arnarson og Þorkell
Harðarson. Aðalleikarar: Þorsteinn Bachmann, Halldór
Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson,
Hjálmar Hjálmarsson og Þröstur Leó Gunnarsson.
Ísland, 2020. 80 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Ásta Marý Stef-
ánsdóttir sópran-
söngkona og
Snorri Sigfús
Birgisson píanó-
leikari koma
fram á hádegis-
tónleikum í Frí-
kirkjunni í
Reykjavík í dag,
fimmtudag, og
hefjast þeir
klukkan 12. Yfirskrift tónleikanna
er „Vorar samt“ og eru þeir í tón-
leikaröðinni Á ljúfum nótum í Frí-
kirkjunni.
Á efnisskránni eru verk eftir
norska tónskáldið Edvard Grieg
(1843-1907).
Tónleikarnir standa í um hálfa
klukkustund.
Tónleikar um að
það vori samt
Snorri Sigfús
Birgisson
Margverðlaunuð tónlist Hildar
Guðnadóttur við kvikmyndina
Joker, sem færði henni bæði Ósk-
ars- og Bafta-verðlaun, verður flutt
á tveimur tónleikabíósýningum hér
á landi af Kvikmyndahljómsveit
Íslands, SinfoniaNord. Stjórnandi
verður Guðni Franzson, faðir tón-
skáldsins. Fyrri bíótónleikarnir
verða í Eldborgarsal Hörpu 31. maí
og hinir seinni í Hofi á Akureyri 13.
júní. Kvikmyndinni verður varpað
á stórt tjald, með tali og áhrifa-
hljóðum um leið og stór sinfóníu-
hljómsveitin leikur hina áhrifaríku
tónlist Hildar.
Tónlist Hildar við kvikmyndina
verður flutt víða í tónleikasölum í
Evrópu í vor undir heitinu Joker -
Live in Concert.
AFP
Tónskáldið Hildur Guðnadóttir með Ósk-
arsverðlaunin fyrir tónlistina við Joker.
Tónlist Hildar á
bíótónleikum
Hinni vinsælu tónlistarhátíð Coach-
ella í Suður-Kaliforníu, sem stóð til
að halda um tvær helgar í apríl eins
og vant er, hefur verið frestað
vegna kórónuveirufaraldursins.
Skipuleggjendur hafa boðað að há-
tíðin verði haldin í október en ekki
fylgir sögunni hvort sömu lista-
menn komi fram og áttu að
skemmta gestum í apríl, með Trav-
is Scott, Frank Ocean og Rage
Against the Machine efst á blaði.
Áður var búið að aflýsa South by
Southwest tónlistar- og tæknihátíð-
inni sem átti að hefjast í Austin í
Texas í dag í 34. skipti. Alls kyns
viðburðir eru venjulega úti um
borgina þá níu daga og hafa skipu-
leggjendur lýst yfir að þar sem þeir
hafi ekki tryggingu sem hjálpi þeim
við að standa straum af kostnað-
inum verði þeir nú að segja upp
stórum hluta starfsfólks hátíðar-
innar. Og enn fleiri tónlistarhátíðir
hafa verið blásnar af vestanhafs;
kántríhátíðin Stagecoach, sem
haldin er árlega í Indigo í Kali-
forníu í apríl, mun verða í október.
Ljósmynd/Goldenvoice
Vinsæl Frá síðustu Coachella-hátíð.
Coachella verður
haldin í október
Hinni vinsælu og árlegu hönnunar-
hátíð HönnunarMars mun verða
seinkað í ár vegna kórónuveiru-
faraldursins. Í tilkynningu frá
Hönnunarmiðstöð segir að í ljósi
fordæmalausra aðstæðna hafi
„stjórn og stjórnendur Hönnunar-
Mars ákveðið að færa hátíðina fram
í lok júní. Ákvörðunin er tekin að
vel ígrunduðu máli og í nánu sam-
tali við þátttakendur og samstarfs-
aðila.“
HönnunarMars er tólf ára hátíð
„sem fæddist í
miðju hruni,“
segir í tilkynn-
ingunni, „og hef-
ur því frá upp-
hafi verið
boðberi bjart-
sýni, nýsköpunar
og nýrra leiða.
Hann mun því
koma inn með
krafti, veita inn-
blástur, gleði og varpa ljós á
kraumandi skapandi kraft hönn-
unarsamfélagsins hér á landi.
Það eru bjartari tímar fram-
undan, mætum tvíefld til leiks með
hækkandi sól!“
HönnunarMars
frestað fram í júní
Frá sýningu á Hönn-
unarMars 2018.