Fjölrit RALA - 10.10.1994, Page 5
Formáli
Starf Rannsóknastofnunar landbúnaðarins að jarðæktarrannsóknum hefur breyst mikið
á undanfömum árum. Einkum á það við um tilraunastöðvamar. Tilraunastöðin á Möðru-
völlum hefur verið stórefld og starfsemin á Korpu stendur traustum fótum, en á Sámsstöðum
hefur starfsemin dregist saman, og tilraunastöðvarnar á Reykhólum og Skriðuklaustri hafa
verið lagðar niður. Enn fremur hefur stofnunin starfsaðstöðu í Gunnarsholti og hefur starf-
semin þar farið vaxandi. Því þótti tilefni til að taka útgáfu á skýrslu um jarðræktartilraunir til
umræðu innan jarðræktardeildar RALA. Niðurstaðan varð, að rétt þótti að halda þessari útgáfu
áfram, en í breyttu formi.
Skýrsla um jarðræktartilraunir var upphaflega skýrsla um tilraunir á tilraunastöðv-
unum. Upphaf þessarar útgáfu var um 1950. Hún var í svipuðu formi 1972-1992, þótt niður-
stöður frá Korpu væm ekki í sömu skýrslu og frá hinum stöðvunum fyrr en 1979-80. Að sjálf-
sögðu urðu smám saman nokkrar breytingar eftir því sem starfsemin breyttist og útgáfutækni
þróaðist. Allan þennan tíma var tilraunum raðað eftir tilraunastöðvum í skýrslunni.
Þessari skýrslu, sem hér birtist, er ætlað að ná til allra rannsóknaverkefna í jarðræktar-
deild, auk nokkurra verkefna í öðmm deildum, sem eiga samleið með þeim. Heiti skýrslunnar
er því breytt í Jarðræktarrannsóknir. Hún er sundurleitari en fyrri skýrslur, bæði að efni og
efnistökum. I mörgum verkefnum er fylgt sömu reglu og áður. Leitast hefur verið við að hafa
skýrsluna því sem næst tæmandi um útiverk við tilraunir og birta helstu niðurstöður þeirra.
Úrvinnsla og túlkun á niðurstöðum kom ekki fram í fyrri skýrslum, en nú er vikið frá þessari
reglu á báða vegu. Sum verkefni em aðeins kynnt í örstuttu máli, en í öðmm er um nokkra úr-
vinnslu að ræða. Við það verða skil milli ára í birtingu á niðurstöðum ekki eins eindregin og
áður. T.d. birtast niðurstöður efnagreininga á sýnum frá fyrra ári. Ábyrgðarmenn verkefna hafa
unnið efnið í hendur ritnefndar, en í henni em Hólmgeir Bjömsson og Þórdís Anna Kristjáns-
dóttir. Sara Elíasdóttir hefur að mestu séð um ritvinnslu og frágang skýrslunnar.
Form og uppsetning skýrslunnar er í mótun, og má búast við, að svo verði næstu ár.
Meðal nýjunga nú er íslensk-enskur og ensk-íslenskur orðalisti, tegundalisti með latneskum
tegundaheitum og skrá um verkefni með nöfnum ábyrgðarmanna og nokkurra þeirra, sem að
þeim hafa unnið.
Stefnt er að útgáfu á skýrslu um jarðræktarrannsóknir árlega og að efni til hennar verði
safnað strax í upphafi árs, svo að hún geti komið út fyrir vetrarlok. Þetta getur orðið til þess,
að einhverjar niðurstöður komist ekki með í skýrsluna og verði að bíða næsta árs.
Hólmgeir Björnsson