Fjölrit RALA - 10.10.1994, Síða 53
43
Kynbætur
GRASAKYNBÆTUR (132-1051).
Markmiðið er að kynbæta aðhæfða stofna ýmissa grastegunda til sáningar í tún, til uppgræðslu
og í garðflatir og koma þeim í frærækt.
A undanfömum árum hefur verið unnið við kynbætur á vallarfoxgrasi, beringspunti,
snarrót, vallarsveifgrasi, túnvingli og língresi. I öllum þessum tegundum eru nú til kynbóta-
línur sem eru komnar mislangt í fjölgun og prófun. Lögð hefur verið áhersla á að koma
þessum línum í frærækt og stefnt er að því að öll stofnfræræktin verði í Gunnarsholti. Ekki
hafa farið af stað ný kynbótaverkefni í þessum tegundum nema í tengslum við NORDGRAS
kynbótaverkefnið með vallarfoxgras.
Eftirfarandi kynbótalínur eru nú til á stofnuninni: Vallarfoxgras (RlPhp 9101),
beringspuntur (RlDb 8901; TUMI), snarrót (RlDc 8701; TEITUR, RlDc 8901; FLÓI, RlDc
9001; JÖKULDALUR), vallarsveifgras (RlPop 8901, RlPop 8902, RlPop 8903, RlPop 8904,
RlPop 8905, RlPop 9101, RlPop 9102, RlPop 9103, RlPop 9104, RlPop 9301; SÆLINGUR,
RlPop 9302; DALABRANDUR), túnvingull (RlFr 9101, RlFr 9102, RlFr 9103, RlFr 9104,
RlFr 9105), língresi (RlAc 8801). Til viðbótar þessum línum eru til línur af axhnoðapunti
(RlDg 8701) og pólgresi (RlAl 8701).
ERFÐAFRÆÐILEGUR STÖÐUGLEIKI VALLARFOXGRASS VIÐ MISMUNANDI
VEÐURFAR OG RÆKTUN (132-9279).
Markmið verkefnisins er tvíþætt. í fyrsta lagi að skýra áhrif mismunandi veðurfars og
meðferðar á erfðafræðilega samsetningu og stöðugleika vallarfoxgrass og að meta vöxt og
þroska einstakra arfgerða við þessi skilyrði. í öðru lagi að lýsa hugsanlegum breytingum á
ræktunareiginleikum og erfðafræðilegri samsetningu vallarfoxgrass þegar fræ er ræktað við
önnur skilyrði en þau sem stofninn er aðlagaður.
í samnorrænu verkefni - NORDGRAS -, sem styrkt var af Norræna genbankanum, var
búin til fjölvíxlun þar sem var víxlað 60 arfgerðum af vallarfoxgrasi frá norðurhéruðum
Norðurlandanna og íslandi. Fræi af öllum hálfsystkinalínunum var blandað saman og búinn til
einn massastofn (mass population). Fræi úr stofni þessum var sáð út vorið 1987 á tilrauna-
stöðinni Korpu, Holt og Vágpnes, Noregi, Röbacksdalen, Svíþjóð, Apukka, Finnlandi og Hpj-
bakkegaard, Danmörku. Árin 1988-1992 voru tilraunareitir meðhöndlaðir á venjulegan máta
og undir miklu álagi m.t.t. sláttutímameðferðar og áburðargjafar. Haustið 1992 voru 50
arfgerðir valdar af handahófi úr hvomm tilraunareit á öllum tilraunastöðvunum (POP IIj_J2)-
Þessum einstaklingum var fjölgað á hverjum stað og þeir sendir til hinna tilraunastöðvanna
vorið 1993.
Til þess að meta hugsanlegar breytingar á fjölvíxlunarefniviðnum vegna fræræktar í
Danmörku var massastofninn ræktaður til fræs í þrjár kynslóðir á Hpjbakkegárd 1987-1992.
POP ffl er samsett úr 50 arfgerðum sem valdar voru af hendingu 1992 úr síðustu fjölguninni.
Á sama tíma vom 50 arfgerðir valdar af hendingu úr upphaflega massastofninum frá 1986
(POP I) og vom þessir tveir stofnar sendir út á allar tilraunastöðvamar vorið 1993.
Sumarið 1993 var öllum plöntunum skipt upp á hverri tilraunastöð. Var þeim síðan
plantað út sem stökum plöntum í tilraunareiti eftir ákveðnu tilraunaplani og em samanburðar-
stofnar 14 talsins eða 2100 einstaklingar á hverjum stað. Þetta var m.a. gert á tilraunastöðinni
á Korpu og fóm í það verk rúmir 2 mannmánuðir auk umhirðu plantna í gróðurhúsi. Tilraun-
irnar verða meðhöndlaðar á sama hátt alls staðar fram á sumar 1995 og eftirfarandi eiginleikar
verða m.a. metnir: vetrarþol, ýmis útlitseinkenni, þurrefnisframleiðsla og sjúkdómaþol.