Fjölrit RALA - 10.10.1994, Page 69

Fjölrit RALA - 10.10.1994, Page 69
59 Kornrækt Ökrum, í meira lagi á Korpu og Þorvaldseyri, við hæfi í Miðgerði, en of lítill á hinum stöðunum. Einkunnarkvarða fyrir hrun hefur verið lýst hér nokkrum blaðsíðum framar. Einungis hrynur af sexraðaafbrigðum. Af staðalafbrigðunum er þar um að ræða VoH2845 og þó fyrst og fremst Nord. Þegar meðaleinkunn afbrigðanna fimm er 0,8-1,0 er fullvíst, að Nord hefur verið alveg í rúst og séð hefur á VoH2845. Hrun í hundraðshlutum er ekki ábyggileg tala. Hún er reiknuð af röð afbrigða eftir uppskeru í óskemmdum tilraunum og fráviki sexraðaafbrigðanna frá þeirri röð í fokskemmdum tilraunum. Tölur um hrun í hundraðshlutum eru óháðar metnu hruni, en falla þó í svipað far. Síðasti dálkurinn sýnir frostskemmdir staðalafbrigða. Korn voru talin í 20 aðalöxum úr hverjum reit. Frostið hefur orðið mest í uppsveitum Arnessýslu og minnkað þegar austar dró. Tilraunin á Sámsstöðum slapp, enda stóð hún hátt og var í brekku. Austan Markarfljóts urðu ekki skemmdir. Uppgjör á afbrigðatilraunum fyrri ára. Afbrigðasamanburður fyrri ára var gerður upp með aðferð sennilegustu frávika (REML). Tíndar voru til niðurstöður úr tilraunum allt frá 1984. Tilraunir, þar sem viðmiðunarafbrigði, oftast Mari, náði ekki 10 hkg korns á ha, voru taldar misheppnaðar og ekki teknar með. Eins voru skildar frá tilraunir með frostskemmdum og einstaka aðrar, sem athugaverðar þóttu. I nýtanlegum tilraunum komu fyrir 55 afbrigði, þar af 33 íslensk. Tilraunimar voru 42 talsins, gerðar á ýmiss konar landi í þremur landshlutum. Vægi einstakra tilrauna var látið ráðast af skekkju hverrar tilraunar. Þannig vega tilraunir með litla skekkju meira í lokatölum en tilraunir með mikla skekkju. Notað var vægið 3S,2 /(3S,2+Se2) þar sem Sc2 er mat á tilraunaskekkjunni, (endurtekningar vom 3 í nær öllum tilraununum) og S,2 er mat á dreifnihluta vegna samspils stofna og tilrauna. Þegar fjallað var um tölumar mátti sjá, að sexraðaafbrigðin 13 talsins réðu miklu um skekkju. Þau hafa stundum misst mikinn hluta komsins í haustveðrum. Þær veðurskemmdir era stór tilviljanakenndur þáttur, sem bætist við annan breytileika. Því var bragðið á það ráð að gera tvíraða afbrigðin upp sér, og þó einungis þau, sem verið höfðu í tilraunum tvö ár eða meira. Þá kom í ljós, að skipta mátti tilraununum í eina þrjá flokka og fá fram nokkuð mismunandi röðun í hverjum fyrir sig. í einum þessara flokka voru tilraunir norðanlands og austan og í öðram tilraunir á söndum sunnanlands, þar sem þurrkur hafði sett strik í reikninginn. í þriðja flokkinn, það er tilraunir á Suðurlandi utan sanda, féllu svo flestar tilraunirnar og þær vora gerðar upp sérstaklega. Samspil milli afbrigða og ára reyndist afgerandi þáttur í breytileikanum. I tilraunum sunnanlands var það nánast jafnmikið og munur milli afbrigða (dreifni 3,7 á móti 4,1). I eftirfarandi töflum era uppskerutölur gefnar upp samkvæmt svokallaðri BLUP-spá. I spánni er tekið tillit til samspils afbrigða og ára, því að árferði komandi sumra er að sjálfsögðu óvissuþáttur. Uppskeramunur í spánni verður því oft næsta lítill og aðeins í fáum tilvikum marktækur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.