Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Síða 80
Árið 1992 var fyrsta uppskeruárið. Þau mistök urðu að ber voru ekki tínd í
júlímánuði. Hver planta var ræktuð í 7,5 1 potti, sem er 510 cnr að ofan. Hvert
afbrigði var ræktað í þremur "samreitum”, hver með 6 pottum. I hverjum potti
var ein planta. Það komu ekki fram mygluskemmdir eða aðrar skemmdir á
plöntunum.
Umsagnir um afbrigðin:
Bogota. Uppskera byrjaði 5. júní og síðasta uppskera vai' 24. september.
Plönturnar virtust vera þróttmiklar og berin bragðgóð.
Elsanta. Uppskera byrjaði 11. maí og síðasta uppskera vai' 22. júní. Berin þóttu
mjög góð, ekki ósvipuð berjum af Glima. Blaðlýs virtust sækja á plönturnar.
Um 90% af öllum jarðaberjum sem eru á markaði í Hollandi eru af þessum
stofni og eru þau nær einráð hjá þeim sem rækta ber í gróðurhúsum. Þó er
kvartað um að þau séu næm fyrir sjúkdómum.
Elvira. Uppskera byrjaði 13. maí og síðasta uppskera var 2. október. 1 október
1992 voru enn að koma ber á plönturnar. Plöntumar virðast kröftugar. Berin
þykja ekki mjög góð, lítið sæt og dálítið súr.
Rapella. Uppskera byrjaði 25. júní og síðast var uppskorið 13. október og von
er á fleiri berjum. Haustið 1991 blómstruðu plönturnar fram á vetur og nokkrar
plöntur dóu um veturinn. Plönturnar hafa ekki myndað renglur og því hefur
ekki verið hægt að fjölga þeim. Berin eru smá, illa löguð, en ekki bragðvond.
Ræktun hindberja í óupphituðu plasthúsi. Ath. XII-92
Hindberjaplöntur af stofninum Baldur, sem gróðursettar voru sumarið 1990
dafna vel í gróðurhúsinu. Hins vegar var berjauppskeran nánast engin, eða
aðeins örfá ber.
Ræktun á líni. Ath. XXII
32 tafla. Uppskera af iíni.
Afbrigði Fyrirtæki Uppskera kg á 1 m! Lengd á plöntu cm
Henryk (SV 63110) Ham. 1,70 73
Natasja Z.P.C. 1,52 63
Nike Ham. 1,10 75
Nynke Z.P.C. 1,55 69
Saskia Z.P.C. 1,65 67
71