Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1970, Page 13
RÆKTUN KARTAFLNA 11
vart minni áburðarskömmtum. Sé þetta
Jullnægjandi skýring varðandi frávik
stærsta áburðarskannntsins miðað við fyrri
ár, virðist sem uppskerulínurit minni
áburðarskammtanna ættu að koma fram á
svipaðan liátt. Svo er þó ekki, og því verð-
ur þetta ekki skýrt til fullnustu hér.
Korpúlfsstaðir.
Upphafsár tilraunarinnar, árið 1964, fór
tilraunin mjög illa í arfa, jafnframt því
sem kartöflugras féll mjög snemma, eða 2-
—3. ágúst, af völdum næturfrosta. Þó urðu
Ijós við upptöku greinileg jákvæð áhrif
fosfóráburðarins, og aðeins vottaði fyrir
áhrifum af kalí. Greinileg jákvæð áhrif
fengust líka fyrir köfnunarefni, þannig þó,
að mest fékkst fyrir minnsta skammt þess.
Árið 1965 fylgdi uppskeran sömu megin-
dráttum og fram komu árið áður. Fosfór-
áburður hafði mjög mikil jákvæð áhrif og
einnig minnsti skammtur köfnunarefnis.
Samáhrif fosfórs og köfnunarefnis voru
mjög greinileg, enda þótt engin viðbótar-
uppskera hafi fengizt við stærri köfnunar-
efnisskammtana. Nokkur en jöfn aukning
uppskeru fékkst líka fyrir kaliskammtana.
Oll eru þessi áhrif raunhæf (> 95%) og
ótvíræð.
Niðurstaða ársins 1966 varð mjög á sama
veg, enda þótt uppskeran í heild sinni yrði
töluvert minni en árið á undan. Komu því
engin ný atriði fram til íhugunar af þeinr
sökum.
Uppskerutölur frá Korpúlfsstöðum, er
sýna bæði samáhrif fosfórs og köfnunar-
efnis og tölur varðandi áhrif einstakra
áburðarefna á uppskeru án tillits til ann-
arra áburðarefna, eru skráðar í töflum 3
og 4.
UPPSKERUMAGN
Áhrif áburðarins á uppskerumagnið eru
eðlilega mjög breytileg eftir árferði. Hita-
TAFLA 4 - TABLE 4
Áhrif kalís á uppskeru að Korpi'dfsstöðuni.
Grömm á 15 kartöllugrös
Influence of potash (K20) in kg/ha on
yield of potatoes at Korpúlfsstadir in 1964
—1966. Grams per 15 plants
Ár 1964 1965 1966
kg KoO 0 566 3948 3116
150 576 4199 3367
250 621 4279 3505
350 656 4454 3726
stig ræður að líkindum þar langmestu um
og þá ef til vill fyrst og fremst sem hita-
stig jarðvegsins að vori annars vegar og
hins vegar síðla sumars, er næturfrost vofa
ætíð yfir. Þetta kemur t. d. skýrt fram í
Þykkvabæ, þegar bornar eru saman niður-
stöður ársins 1965 við árin 1966 og 1967
á myndum nr. 4 og 5. Á þeirn myndum
eru sýnd áhrif köfnunarefnis án tillits til
annarra áburðarefna (mynd 4) og áhrif
fosfórs án tillits til annarra áburðarefna
(mynd 5).
Rétt er að taka fram, að hin litla upp-
skera ársins 1964 í Þykkvabæ er ekki sam-
bærileg við niðurstöður hinna áranna
vegna mistaka, sem áður er getið, við fram-
kvæmd tilraunarinnar.
Á Korpúlfsstöðum koma Iram sams kon-
ar tíðarfarsáhrif og í Þykkvabæ. Þau eru
þó ef til vill enn skýrari, með því að nætur-
frost eyðilagði snemma alla möguleika til
uppskeru árið 1964, eins og sjá má á mynd-
um 6 og 7.
Þessar samanburðarmyndir benda til, að
í flestum árum muni 200—250 kg N/ha
vera nægilegt magn köfnunarefnis til að
ná hámarksuppskeru í Þykkvabæ (mynd 4).
Á Korpúlfsstöðum er hægt að komast af