Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 9
11
– Grunnur/efniviður: Einstakur
safnkostur, húsnæði, þekking,
starfsfólk og traustur bakhjarl
í Garðabæ.
Þetta er okkar efniviður og við
skissum upp og gerum frumgerðir/
tilraunir til að finna út hvað virkar
og hvað virkar ekki til þess að ná
okkar markmiðum. Ég er mjög
þakklát samstarfsmönnum mínum,
þeim Ingiríði afgreiðslustjóra og Þóru
safnafræðingi, fyrir að vera til í alls
konar tilraunir og uppátæki. Við
höfum notað að leiðarljósi orð Einars
Þorsteins Ásgeirssonar, arkitekts og
stærfræðings að „ekkert er asnalegt”
maður þarf að þora að leggja á borðið
allar hugmyndir. Til þess að það sé
hægt, þarf að ríkja traust, opinn hug-
ur og svigrúm fyrir mistök.
Til þess að skapa líflegt safn var
augljóst að hingað þyrfti að fá fleira
starfandi fólk í húsið, einungis þannig
verður til samtal og líf. Það er hægara
sagt en gert að fá samþykkt auka
starfsgildi þannig að hugmyndin var
að bjóða fólki sem tengist viðfangsefn-
um safnsins „lykla” að safninu svo það
gæti starfað hér að sínum verkefnum í
samstarfi og samtali við safnið.
Vinnustofudvöl
Haustið 2017 var fatahengi í anddyri
safnsins breytt í lifandi vinnustofu
þar sem hönnuðum er boðið að
koma, setja upp vinnuaðstöðu og
vinna að sínum verkum, kynna þau
og selja. Rýmið er hluti af safnbúð-
inni og hver hönnuður dvelur hér í
um þrjá mánuði. Þetta verkefni hefur
gefist einstaklega vel og lífgar mikið
upp á safnið, veitir innblástur, er
fræðandi og skemmtilegt. Í tengslum
við vinnustofudvölina hafa skapast
hér óteljandi áhugaverð samtöl og
tengingar. Allir sem hér dvelja eru
sérfræðingar á sínu sviði og í gegnum
þá verður til þekking hjá starfsfólki
og gestum. Sköpunarkrafturinn veitir
innblástur og gleði.
Hönnuðirnir sem komu hingað í
vinnustofudvöl árið 2019 voru Þórey
Björk Halldórsdóttir, hönnuður og
frumkvöðull, Baldur Björnsson,
mynd- og raftónlistarmaður, Shu Yi,
grafískur hönnuður, Signý Þórhalls-
dóttir, fatahönnuður og Anna María
Pitt, sifursmiður.
Safnið á röngunni
Árið 2018 var innri sýningarsalur
safnsins tekinn undir skráningar og
rannsóknir sem að öllu jöfnu fara ekki
fram fyrir opnum tjöldum. Við köllum
þetta SAFNIÐ Á RÖNGUNNI en vísir
að slíku starfi hefur verið til staðar á
safninu í nokkur ár. Ákveðið var að
gefa þessu meira rými og sýnileika.
Þóra Sigurbjörnsdóttir, safnafræðing-
ur safnsins, hefur átt veg og vanda
að framkvæmd verkefnisins. Vinnu-
aðstaða hennar flyst að hluta til út
í sýningarsalinn. Þannig fá gestir
aðgang að starfsmanni safnsins sem
getur upplýst um þá vinnu sem er í
gangi. Á árinu 2019 voru tvö skrán-
ingarverkefni tekin fyrir, annars vegar
skráning á keramiksafni Önnu Eyjólfs-
dóttur myndlistarmanns og safnara og
hins vegar skráning á verkum Einars
Þorsteins Ásgeirssonar, stærðfræðings