Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 47

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 47
Vatnskötturinn í túlkun Ránar Flygenring. Jarðfræðin hefur sinn sess í sýn- ingunni þar sem er fallegt safn holufyllinga og kristalla úr náttúru Íslands auk flettiskjáa. Holufyllingar eru síðsteindir sem verða til þegar heitt vatn leikur um holrými ofan í berggrunninum. Þarna gefst kostur á að fræða nemendur um drauga- steina og silfurberg og segja frá tengingu holufyllinga við vatn og hlutverki silfurbergs í þróun smá- sjárinnar en íslenska silfurbergið er óvenjutært og var áður fyrr notað við rannsóknir í ljósfræði. Í lok heimsóknar fá nemendur á efsta stigi að sjá nýlega fræðslu- mynd í teiknimyndaformi um vatn, eðli þess og uppruna. Myndin er einstaklega myndræn og auðskilin. Hún er framleidd af BBC og talsett af Stjörnu-Sævari (Sævar Helgi Braga- syni) fyrir Náttúruminjasafnið. Gam- an hefur verið að fylgjast með hversu vel myndin fangar athygli nemendanna. Úr mörgu að velja  Viðfangsefni fyrir skólahópa eru í stöð- ugri þróun. Eftirfarandi viðfangsefni standa eldri nemendum til boða: – Vatnið – Ár og árgerðir – Veður og loftslag – Votlendi – Líf í ferskvatni – Líffræðilegur fjölbreytileiki – Þingvallavatn Eins og sjá má á þessari upptalningu eru efnistök í fræðslunni fjölbreytt með ferskvatnið, eina dýrmætustu aðlind landsins, í forgrunni. Fræðslan byggist á því að virkja gesti til að horfa, hlusta, spyrja, leika og kanna. Að lokinni heimsókn á sýninguna er það von safnkennara að nemend- ur séu fróðari og áhugasamari um undraveröld vatnsins og mikilvægi þess sem undirstöðu lífs á jörðinni. börn fá opin verkefni sem tengjast lífríki ferskvatns þar sem áherslan er á teikningu. Kennarar geta valið sérstök efnistök fyrir nemendur sína í 5.–10. bekk grunnskóla. Verk- efnablöðin eru á formi spurninga sem þarf að svara eða krossa við. Á bakhlið er lítil þraut, völundarhús eða orðarugl sem er valkvætt. Flestir nemendur taka verkefninu fagnandi en þau sem minni áhuga hafa upplifa ákveðið frelsi að fá að sleppa því. Í fimm vatnsbúrum sýningarinnar eru lifandi dýr og jurtir. Lífríkið í búrunum er breytilegt, stundum má finna þar vatnskött ásamt fullorðn- um vatnabjöllum eða vatnatítum, allt eftir því hvað veiðst hefur á hverjum stað og tíma. Raunstærð vatnskatt- ar er um 1–2 cm og geta nemendur fylgst með honum í stækkunargleri þar sem hann skríður eftir botninum eða syndir um. Fyrir framan búrin er stórt vatnsborð. Í vatninu er líkan af vatnabjöllu og rykmýslirfu í 20-faldri stækkun sem gefur gestum kost á að skoða sérkenni dýranna sem ekki sjást í raunstærð með berum aug- um. Vatnsborðið býður upp á marga möguleika. Í því er hægt að hand- fjatla lifandi dýr og vatnagróður og einnig er hægt að spá í eðliseiginleika vatns með því að fylla á og leika sér með vatn í sérútbúnum vatnstönk- um. Með aðstoð stækkunarglerja, víðsjár og tölvuskjás er hægt að rýna betur í lífríkið í vatnsborðinu. 49 Allir finna eitthvað við sitt hæfi á sýningunni. Hér er það bleikjuleikurinn og Þingvallavatn. Ljósm. Vigfús Birgisson. Kristín Harðardóttir, safnkennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.