Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 24

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 24
26 Undanfarin ár hefur Listasafn Reykja- víkur staðið fyrir yfirlitssýningum í Vestursal Kjarvalsstaða á verkum núlifandi íslenskra myndlistarmanna sem teljast hafa markað mikilvæg spor í íslenskri samtímalist. Anna Líndal (f. 1957) reið á vaðið með sýningunni Leiðangur árið 2017, því næst beindi safnið sjónum að ferli Haraldar Jóns- sonar (f. 1961) á sýningunni Róf 2018 og snemma á þessu ári lauk svo sýn- ingunni Úngl á verkum Ólafar Nordal (f. 1961) en hún var opnuð á Kjarvals- stöðum haustið 2019. Samfara sýn- ingarframtakinu hefur Listasafnið gefið út vandaðar, samnefndar bækur um feril listamannanna þriggja og eru þær til umfjöllunar hér. Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, annaðist sýningarstjórn og ritstjórn bókanna um Önnu Líndal og Ólöfu Nordal en í tilviki Haraldar var það Markús Þór Andrésson, deildar- stjóri sýninga og miðlunar hjá safninu. Þessi sýningar- og útgáfuröð Listasafns- ins hverfist – að minnsta kosti enn sem komið er – um að kynna og kortleggja ákveðna kynslóð í íslenskri myndlist. Anna, Haraldur og Ólöf eru af sömu kynslóð, eiga það sameiginlegt að hafa sótt nám við Myndlista- og handíða- skólann og eru félagsmenn í Mynd- höggvarafélaginu – leiðir þeirra lágu raunar fyrst saman á sýningunni Skúlp­ túr, skúlptúr, skúlptúr á Kjarvalsstöðum árið 1994. Þau hafa því verið samferða og mótast sem virkir þátttakendur í íslensku listalífi síðustu þrjá áratugina. Á hinn bóginn sóttu þau öll einnig nám til ólíkra stofnana erlendis; Anna til Bretlands, Belgíu og Þýskalands, Haraldur til Frakklands og Þýskalands og Ólöf til Bandaríkjanna og Hollands. Þau eru ólíkir listamenn og sem slíkir góð dæmi um tjáningarbreiddina í íslensku listalífi og um þá útvíkkun sem einkennt hefur myndlist síðustu áratuga og lýsir sér í blendingsformum og krossræktun milli miðla, listgreina og menningarsviða. Anna, Haraldur og Ólöf eru listamenn sem finna hug- myndum sínum farveg og form í því efni eða með þeirri aðferð sem hentar hverju sinni og leita eftir innblæstri og efniviði í til dæmis þjóðsögum, tungumálinu, jarðfræðirannsóknum, aðferðafræði safna og vísindastarfs, í byggingarvöruverslunum, söfnum af ýmsu tagi, hversdagshlutum, nátt- úrunni eða tilfinningalífi mannsins. Öll hafa þau fengist við skúlptúr og ljósmyndin hefur verið nokkuð fyrir- ferðarmikil í verkum þeirra. Þá hafa þau hvert um sig nýtt sér ýmsa miðla, svo sem útsaum, vídeó, teikningu, prent og texta. Yfirlitssýningarnar á verkum lista- mannanna voru prýðilegar og gáfu góða innsýn í feril þeirra. Færa má gild rök fyrir valinu á þessum þremur ágætu listamönnum í sýningar- og útgáfuröð safnsins þótt skiptar skoð- anir geti verið á því hvaða listamenn teljast, umfram aðra, hafa „markað afgerandi spor í íslenska listasögu“ (samanber inngang bókarinnar Róf). Með þessu framtaki eins helsta listasafns landsins er ljóst að listsögu- leg spor listamannanna eru í öllu falli orðin meira áberandi en ella, ekki síst fyrir tilstuðlan útgáfunnar sem hefur tekist afar vel. Bækurnar eru ekki aðeins heimild um sýningarnar og feril listamannanna, heldur eru þær skapandi vettvangur í sjálfum sér. Hvort sem lesandinn sá sýningarnar og þekkir til listamannanna eða ekki, þá geta bækurnar hver um sig falið í sér upphafið að nýjum eða ítarlegri kynn- um. Hafi til að mynda yfirlitssýningin kveikt áhuga á ferli listamanns – yfir- litssýningar eru einstakt tækifæri til að átta sig á þróun og samhengi milli verka og á samhenginu við ytri þætti Frá sýningum til bóka Útgáfa Listasafns Reykjavíkur: Leiðangur, Róf og Úngl – þá er bókin eigulegur gripur sem má hafa með sér heim til að rifja upp, glöggva sig betur á hlutunum, upp- götva eitthvað nýtt og sökkva sér ofan í heim listamannsins. Bækurnar eru allar harðspjalda og í handhægu broti; um hönnun þeirra sá Ármann Agnarsson. Kápa hverrar bókar gefur fyrirheit um inntakið: hæðarlínur á landakorti og slóðir af ýmsu tagi, saumaðar í léreft með mis- munandi lituðum tvinna, liggja þvers og kruss á kápu bókarinnar Leiðangur; ljósir og dökkir tónar mynda órætt samspil forma á kápu Rófs, og á kápu Úngls sést móta fyrir mynstri sem er á mörkum hins kunnuglega. Pappírinn er vandaður og í mismunandi lit eftir því hvort textinn er á íslensku eða ensku. Í Úngl er gengið lengst í hönnun bókarinnar sem sérstaks rýmis og prentverks þar sem litur, áferð og þykkt pappírsins er mismunandi eftir bókarhlutum eða verkum sem tengjast innbyrðis. Sú bók er sýnu stærst, um 250 blaðsíður. Prentið er fallegt í öllum bókum og mikið er um litmyndir af verkum listamannanna (þ. á m. eru myndir frá yfirlitssýningunum á Kjar- valsstöðum); stundum ná myndir yfir heila síðu eða opnu. Í öllum bókunum eru textar eftir ýmsa höfunda og fer vel á því að prenta þá á mattan pappír. Fyrir vikið eru myndirnar einnig allar á möttum grunni, en í Úngl hefur verið farin sú leið að prenta hluta myndanna á sérstakar myndasíður, þ.e. á pappír með meiri glans, og er það skiljanlegt sjónarmið. Í Úngl eru aðrar myndir og textar prentaðir á þykkari pappír með aðeins grófari áferð, utan textasafns Ólafar, Sögur, sem prentað er á þunn- an, gagnsæjan pappír. Tilfinning fyrir áferð og mismunandi blæbrigðum er fyrir vikið ríkust í Úngl. Í heild má segja að hér sé ekki um að ræða lista- verkabækur þar sem sérstök áhersla er lögð á litmyndir af listaverkum í stóru broti. Fremur er leitast við að flétta saman myndum af verkum og textum og leiða þannig lesandann inn í sam- fellu þar sem eitt tekur við af öðru er varpar ljósi á feril listamannanna. RÝNI / Anna Jóhannsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.