Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 64

Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 64
66 sýningu Sjóminjasafns Amsterdam. Inni í einum sýningargripnum, eftirgerð af kaupskipi frá 1749, er sýndarveruleiki notaður til að sýna umhverfi hafnarinnar á tíma skipsins. Þetta er greinilega sýning sem er komin til ára sinna en bætir samt heilmiklu við í þeirri sögu sem sögð er í skipinu. Í sýndarveruleik- anum flýgur þú yfir höfnina og sérð umhverfi hennar á tíma skipsins og færð um leið sögu þess og lífinu við höfnina. Flugið yfir höfnina í Amsterdam var álíka langt og sýndarveruleikinn í Skagafirði en skilur eftir sig meiri upplifun þó þetta hafi verið ógagnvirk sýning. Hverju bætir sýndarveruleikinn við í sýningunni 1238? Sýningin býður einmitt upp á svo marga möguleika á að gera óhefð- bundna hluti en kannski var hug- myndin ekki dýpri en raun ber vitni. Hvers vegna ekki að fara alla leið? Láta gestinn fá að velja sér lið í bar- daganum, jafnvel strax frá upphafi í miðasölunni með því að merkja sig í hvoru liðinu hann ætlar að vera. Segja honum þá frá liðinu sem hann er í, persónum og leikendum. Leyfa hon- um/henni að skoða og prófa hluti sem hans persóna myndi hafa notað. Taka af sér mynd og allur sá pakki. Boðið er reyndar upp á myndatöku af gestum í sýningunni og var mjög vinsælt, eins og það er alltaf. Kannski er hið raun- verulega og áþreifanlegra mesta og besta upplifunin og sú sem til framtíð- ar gestir sækjast meira eftir. Nóg er af skjám í hversdagsleikanum. Hugmyndin er í grunninn spennandi og skemmtileg. Að stíga aftur í tímann og taka þátt í sögulegum atburð um er frumleg nálgun. Það er augljóslega búið að verja miklum upphæðum í húsnæði og sýningu. Að koma sýningu á laggirnar er bara hálfur sigur og fyrir sýndarveruleikasýningu hlýtur það að vera mikilvægt til framtíðar að endurnýja innihald tölvuleiksins með reglubundnum hætti til að halda í við framþróun í tölvuleikjageiranum. Það er af þessum sökum sem fá íslensk söfn hafa haldið inn á lendur staf- rænnar miðlunar sem þessarar enda sjaldnast til fjármunir til að endurnýja tæknivæddar sýningar nema á áratuga fresti. Í heimi tölvuleikja er áratugur sem þúsund ár. Leikir eins og sýningin býður upp á úreldast hratt, jafnvel hraðar en „hefðbundnar“ sýningar. Annars staðar í Skagafirði, í Kringlu- mýri, er einnig sýning um sögusvið Sturlungu, þar sem sögð er saga Þórðar Kakala og Haugsnesbardaga í og við Kakalaskála. Hugmyndin er sett fram á einfaldari og minna tæknivæddan hátt en á sýningunni 1238 á Sauðárkróki. Sýningin er hugarfóstur Sigurðar Hansen, sem ásamt eiginkonu sinni, Opið daglega: kl. 10-17 1. júní til 31. september / kl. 13-16 1. október til 31. maí Aðalstræti 58, Akureyri • Sími 462 4162 minjasafnid.is Tónlistarbærinn Akureyri Aðeins kr 2.200 Eigandi korts: 10% Afsláttur í safnbúð / 10% Discount in the Museum Shop Minjasafnið á AkureyriNonnahús Leikfangahúsið Davíðshús Gamli bærinn Laufás Allt árið 2020

x

Safnablaðið Kvistur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.