Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 73
75
Úthlutað var úr Barnamenningarsjóði í annað sinn þann
24. maí síðastliðinn. Alls hlutu 42 verkefni styrki að
heildarupphæð 92 milljónir kr.
Söfn áttu hlut að máli í nokkrum verk efnum, þar á meðal
hlutu söfnin í Kópavogi hæsta styrkinn upp á sex og hálfa
milljón. Söfnin í Kópavogi skáru sig reyndar úr í ár með
fjölda verkefna sem hlutu háa styrki.
Það verkefni Menningarhúsanna í Kópavogi sem hlaut hæsta
styrkinn í ár, er samstarfsverkefni við H.C. Andersen safnið
í Óðinsvéum, Múmín-safnið í Tampere og Undraland Ilon í
Haapsalu. Um er að ræða 3 ára verkefni sem byggir á vinnu-
smiðjum, sýningum og viðburðum fyrir almenning þar sem
skólabörn eru í helstu hlutverkum.
Það verður spennandi að sjá hvaða söfn fá styrki í Barna-
menningarsjóði á næsta ári og afrakstur þeirra verkefna
sem nú þegar hafa hlotið styrki úr sjóðnum.
Það er alltaf mikilvægt að eiga virkt samtal um fagleg
mál. Ekki má heldur gleyma að tala um líðan í starfi,
ekki síst á tímum sem þessum. Facebook býður upp á
þægilegan vettvang fyrir fólk að nálgast hvort annað
án þess að brjóta reglur á tímum samkomubanna.
Flestir þekkja hóp FÍSOS, Safnmenn og hóp safna-
fræðinnar, Umræðuvettvangur um Safnafræði.
En fleiri hópar eru til sem safnmenn hafa stofnað.
Til dæmis má nefna Fræðslusérfræðingar á söfn-
um og Sarpur – Umræðuvettvangur fyrir skrá-
setjara. Allt eru þetta vettvangar þar sem hægt
er að leita aðstoðar og ræða flókin og einföld mál
innan sérsviða safna.
Vonandi sjá fleiri safnmenn sér hag í að stofna eða
taka þátt í hópum utan um málefni sem þeir brenna
fyrir. Ekki væri vitlaust að stofna hóp utan um lobbý-
isma fyrir söfn. Nú þegar líður að kosningum gæti
þannig hópur verið stór hjálp í að efla hag safna. Eins
gæti áhugafólk um safnbúðir átt samtal í sér hóp. En
fleiri grasrótarhópar gætu orðið til, samtöl myndast og
safnmenn orðið mun þéttari hópur en þeir eru núna.
Nú þegar þriðja bylgja Covid skellur á landsmönnum
er komin góð reynsla á að nýta stafræna miðla í
tengslum við ýmiskonar miðlun. Mikill fjöldi ráð-
stefna og námskeiða í boði í gegnum netið.
Safnasamtök nágrannalanda okkar bjóða upp
á margt spennandi efni:
Bresku safnasamtökin eru með margt á sinni könnu.
Ráðstefna eins og A Meeting place: Leading Digital at
a Time of Uncertainty gæti verið lærdómsrík:
www.museumsassociation.org/events/#
Norsku samtökin bjóða upp á Facebook live og Zoom
viðburði: www.museumsforbundet.no/
Danir eru með ýmislegt að skoða:
www.dkmuseer.dk/efteruddannelse-arrangementer/
Margir kannast við Nemo – Evrópsku safnasamtökin,
þar fer árleg ráðstefna þeirra fram á netinu:
www.ne-mo.org/about-us/european-museum-con-
ference-2020.html
Úthlutun úr
Barnamenningarsjóði
Samvinna og samtal safnafólks
Endurmenntun og heimsfaraldur
FRÉTTIR ÚR SAFNAHEIMINUM
Gefðu þér tíma
og staldraðu við
í Glaumbæ
Gaktu inn í horfinn tíma og upplifðu húsakynni og heimilismuni sem
algeng voru á Íslandi um margra alda skeið.
Sýningin „Mannlíf í torfbæjum“ er í gamla bænum í Glaumbæ, sem
er gangabær úr torfi og grjóti líkur þeim sem tíðkuðust á stórbýlum
á Íslandi fram á fyrri hluta 20. aldar. Í Áshúsi, timburhúsi frá 19. öld,
eru sýningar um heimilishald á fyrri hluta 20. aldar.
GLAUMBÆ 561 VARMAHLÍÐ | S: 4536173 | BYGGDASAFN@SKAGAFJORDUR.IS |WWW.GLAUMBAER.IS