Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 33

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 33
35 Jóna Símónía Forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða Hverjar eru helstu áskoranirnar í nýju starfi? Helsta áskorunin er að taka á geymslumálum safnsins og skráningu muna. Fyrsti veturinn fór í að skipu- leggja skráningu og tiltekt ásamt því að skipuleggja sumarstarfið. Hverjar verða helstu áherslur á næstu 2–3 árum? Helstu áherslur verða á skráningu en líka á að breyta aðeins opnun safns- ins sem hingað til hefur verið bara yfir sumarið. Við viljum gjarnan hafa opið t.d. í desember og koma til móts við íbúa með jóladagskrá sem og um páska. Safnkennsla er líka eitt sem við leggjum áherslu á að komist í gagnið. Verður bryddað uppá einhverjum nýjungum? Nýjungarnar hjá okkur verða helst í formi lifandi safns og að sýna gamalt verklag. Við erum t.d. núna að setja upp aðstöðu til beitningar þar sem sjá má hvernig það hefur breyst í tímans rás og stefnum á að fá menn til að kenna beitningu, hnýta net og seinna að verka salt fisk og þurrka. Aukið samtal við nær- umhverfið er þannig mál málanna hjá okkur. Kristín Scheving Safnstjóri Listasafns Árnesinga Hverjar eru helstu áskoranirnar í nýju starfi? Að komast inn í öll mál þar sem safn- stjóri í litlu safni þarf að geta gengið í flest störf í safninu þannig að það er margt að læra. Svo er mikilvægt að ná eyrum samfélagsins og mynda góð tengsl. Mér fannst líka mikilvægt að kynnast safneigninni og það var eitt af fyrstu verkefnum mínum að skoða hana frekar. Hverjar verða helstu áherslur á næstu 2–3 árum? Listasafn Árnesinga mun áfram vera með fjölbreyttar sýningar eins og áður og við munum einnig vinna í að kynna safneignina. Við byrjuðum strax á því á covid tímum. Stefnan er að vinna í skráningum til að geta miðlað enn frekar upplýsingum um verkin okkar og við erum að skoða ýmsa fleti á því starfi. Við erum einnig að vinna að því að efla vefsíðuna okkar og stefnum t.d. á að gera allar katalógur sem safnið hefur gefið út aðgengilegar þar, sem og meiri upplýs- ingar um sýningar safnsins. Fræðslu- starfið mun áfram vera mikilvægur hluti af starfi okkar. Verður bryddað uppá einhverjum nýjungum? Við munum örugglega gera það, erum mikið að hugsa um hvernig safnið nær til fleiri aðila og viljum nota tæknina enn frekar. Andri Guðmundsson Forstöðumaður Skógasafns Hverjar eru helstu áskoranirnar í nýju starfi? Það er auðvitað margt nýtt að takast á við þegar tekið er við sem forstöðumað- ur safns. En þar sem ég hafði unnið á safninu í nokkur ár áður, kynntist ég safninu vel og faglegu starfi þess og hafði því ákveðna reynslu. Engu að síður var nauðsynlegt að setja sig inn í margt nýtt í sambandi við fjármál og rekstur ásamt viðhaldi húsa. Þetta hef- ur verið lærdómsríkt ferli og ég er enn að læra og tileinka mér nýja hluti. Hverjar verða helstu áherslur á næstu 2–3 árum? Í ár fengum við úthlutað öndvegisstyrk frá Safnasjóði til ársins 2022 í sam- bandi við frágang og endurskipulagn- ingu í geymslum safnsins. Á næstu árum verður lögð áhersla á þetta verkefni samhliða öðrum verkefnum tengdum safnkosti safnsins. Einnig þarf að bregðast við breyttum aðstæð- um eftir heimsfaraldur kórónuveiru og erfitt er að segja um hvort gengið verði að sama rekstrarumhverfi. Verður bryddað uppá einhverjum nýjungum? Það eru margar spennandi hugmyndir í gangi hjá okkur um þessar mundir í sambandi við miðlun. Við höfum verið dugleg að miðla efni frá okkur á vef- og samfélagsmiðlum og munum halda því áfram. Þá erum við að vinna að útfær- slu á ýmsum miðlunarleiðum svo sem hljóðleiðsögn um hluta safnsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.