Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 65

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 65
67 sveitarfélagið leggur félaginu sem á sýninguna til húsnæði til 15 ára sem annars hafði verið ætlað Byggðasafni Skagfirðinga, ekki að það hafi átt að færa torfbæinn úr Glaumbæ, heldur sýningar safnsins á Sauðárkróki og vinnuaðstöðu starfsfólks. Einnig leggur sveitarfélagið til starfsfólk sýningarinnar ef ég hef skilið þetta rétt. Vonandi leggur þetta ekki stein í framtíðargötu byggðasafns- ins. Af þessum sökum vonaði ég að sýningin 1238 yrði flugeldasýning. Flugeldasýning sem réttlætti þessa markaðssókn sveitarfélags og aug- lýsingastofu til að ná í ferðafólk inn í Skagafjörð. Reyndar finnst mér alltaf fullt af bílum, rútum og fólki í Glaumbæ, en það má alltaf blómum á sig bæta. Á mig leitar samt spurn- ingin hvort ekki hefði verið hægt að gera það í samvinnu við Byggðasafn Skagfirðinga? Sýningin 1238 var ekki flugelda- sýning, ekki heldur ömurleg. Hún stendur bara ekki undir markaðs- setningunni. Þegar til kastanna kemur er eitthvað raunverulegra og ferskara við sýninguna í Kakala- skála. Kannski er það vegna þess að þar hefur verið lögð ástríða svo ekki sé minnst á blóð svita og tár á vogar- skálarnar. Það skín í gegn á meðan að markaðshyggjan er undirliggj- andi í sýningunni 1238. Maríu Guðmundsdóttur, er eigandi Kakalaskála. Ástríða Sigurðar gagn- vart verkefninu skín í gegn en hann hefur unnið að því frá 2008. Ýmsir úr fjölskyldu og vinahópi Sigurðar og Maríu hafa lagt hönd á plóginn og gera enn. Hluti sýningarinnar er utan- húss þar sem Sigurður hefur sett upp umfangsmikið útilistaverk úr grjóti þar sem dregin er upp „stillimynd af sviðinu að morgni 19. apríl 1246, augnabliki áður en herfylkingunum lýstur saman í orrustu. “Sérvaldir steinar túlka þá sem helst koma við sögu og hafa verið festir litlir járn- krossar á 111 steina til marks um þá sem létu lífið í bardaganum sjálfum.“ Eins og segir á kakalaskali.is. Verkið er tilkomumikið og Sigurður dregur ekki dul á að þetta er hans sýn á atburðina, þó hann hafi nýtt sér rannsóknir að einhverju marki. Raunar hefur hann verið í samvinnu við Árnastofnun og Háskóla Íslands og haldið reglulega málþing um Sturlungu. Í Kakalaskála er boðið upp á myndskreytta hljóðleiðsögn! Þetta hljómar eins og þversögn en þetta raunverulega virkar. Hér stígur sögu- maðurinn Sigurður fram á sviðið en þó ekki. Því þó hann hafi sett saman sína Þórðar sögu Kakala þá er það rödd Sturlungu sem hana les. Einar Kárason rithöfundur er eiginlega Sturla Sighvatsson þegar hann les textann. Og myndskreytingarnar? Þar nálgaðist Sigurður verkefnið á óvenjulegan hátt. Í samstarfi við Jón Adólf Steinólfsson, myndhöggv- ara, bauð hann alþjóðlegum hópi listamanna til listamannabúða í Kakalaskála. Hópurinn gerði svo afar fjölbreytt listaverk sem myndskreyta hljóðleiðsögnina. Úr hópi 80 umsækj- enda voru valdir 14 listamenn frá 10 þjóðlöndum sem gerðu fjölbreytt listaverk út frá sögubrotum Sigurðar. Hljóðleiðsögnin leiðir gesti um söguna en fyrir augun ber 30 lista- verk og enn og aftur er það grjótið sem tengir þessar tvær sýningar sitt- hvoru megin í Skagafirði. Í Kakala- skála er umgjörð sýningarinnar fallega hlaðnir veggir. Myndskreytta hljóðleiðsögnin í Kakalaskála gengur fullkomlega upp. Listaverkin eru misgóð og spennandi, eins og gengur. Vissu- lega reynir á athyglisbrest nútíma- gestsins að hlusta í 30 mínútur en einhvern veginn virkar þetta og heldur gestinum hugföngnum. Það átti bæði við leiðsögn fyrir börn og fullorðna. Það er ekki síst ólík sýn og nálgun listafólks frá Jórdaníu, Bandaríkjunum, Tyrklandi, Hvíta Rússlandi og ýmsum Evrópuríkjum á íslenskan menningararf sem gerir sýninguna. Eða er íslenskur sagna- arfur ekki alveg eins alþjóðlegur? Svo er það ástríða sögumannsins Sigurðar sem verður áþreifanleg í sýningunni. Augljóslega hafa sýningarnar haft úr mismiklum fjármunum að spila en þegar til kastanna kemur þá breytir það ekki upplifun þess sem þetta ritar að af sýningunni í Kakalaskál- anum var raunverulegri. En hvað finnst þér í raun og veru? Í upphafi skyldi endi skoða. Þegar ég tók að mér að skrifa um þessar sýningar hugsaði ég með mér hvort ég gæti verið hlutlaus í svona rýni. Ef það er þá til hlutlaus rýni! Hins vegar er það þetta pólitíska bitbein, sem minnst var á í upphafi greinar- innar, sem sat á öxlinni á mér, það er nefnilega líka safnapólitískt. Get ég skrifað grein eins og þessa og ver- ið sanngjarn? Ég hef svo sannarlega leitast við að vera það gagnvart báð- um sýningum en sérstaklega gagn- vart sýningunni 1238. Af hverju? Sýningin er í húsnæði sem sveitar- félagið Skagafjörður tók í skiptum fyrir húsnæði Byggðasafns Skag- firðinga. Sveitarfélagið skipti hins vegar um hest í miðri á og gerði húsið upp til að koma þar inn sýn- ingunni 1238. Pólitíska bitbeinið snýr sem sagt að því annars vegar að Frá Kakalaskála.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.