Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 68

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 68
Námskeið voru lögð af og sömuleið- is varð ekki frekara samstarf við Listahátíð í Reykjavík. Árið 2017 var byrjað að hafa nokkuð ákveðið þema fyrir skólana, og myndlistin valin samkvæmt því. Þemað það árið var fjaran en nokkrir þátttakenda notuðu hafið eða vatn enda þemað sveigjan- legt og einungis hugsað sem einhvers konar utanumhald. Þáttaskil í fræðslustarfsemi Listasafnsins Sýningarröðin hefur átt sinn samastað í Ketilhúsinu / sal 11 eftir að Listasafnið tók við henni. Húsið er hentugt fyrir þessa tegund sýningar þar sem hægt er að skoða stærri sal þess bæði frá gólfi og af efri hæðinni, nokkuð sem börn- unum finnst merkilegt. Árið 2018 var farið að greiða starf- andi myndlistarmönnum samkvæmt gjaldskrá og hækkaði þóknunin mik- ið frá því sem áður var. Í framhaldi af því var ákveðið að hafa tvo myndlist- armenn í stað fjögurra; karl og konu, annan frá suðvesturhorninu og hinn úr heimabyggð. Þemað það árið var tröll og vakti risastórt veggmálverk Siggu Bjargar Sigurðardóttur, annars myndlistarmannsins, á vegg Ketil- hússins / salar 11, mikla lukku. Eftir endurgerð og stækkun Listasafnsins það ár þurfti að hafa Ketilhúsið til- búið til útleigu fyrir samkomur og því ekki hægt að vera með verk á gólfi. Það gilti þó ekki um efri hæð Ketilhússins og voru því minni gólf- verk sýnd þar. Nokkrar breytingar urðu enn á skipulagi sýningarinnar árið 2019. Þá var í fyrsta skipti haldin listsmiðja á opnuninni og var Jónborg Sigurðar- dóttir (Jonna) myndlistarmaður, fengin til að sjá um hana í sjálfu sýningarrýminu. Borð og stólar voru sett upp fyrir sýningargesti til að skapa myndverk inni í salnum meðan á sýningunni stóð. Þema sýn- ingarinnar var heimurinn­geimurinn og mál þróuðust þannig að í nýju tengibyggingunni var sett upp einka- sýning annars myndlistarmannsins, Kristins E. Hrafnssonar og hinn, Rósa Kristín Júlíusdóttir, sýndi verk á efri hæð. Leikfangasafnið var ekki með að þessu sinni vegna breytinga á eignarhaldi. Einum leikskóla í stað tveggja hafði verið boðin þátttaka með 25 fimm ára börnum. Listasafnið tók að sér umsjón með sköpunar- vinnu þeirra og í fyrsta sinn var starfandi myndlistarmaður, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, að leiðsegja börnunum. Fram að þessu höfðu listamenn og börn ekki unnið saman að sköpun fyrir sýninguna. En verk þeirra einungis verið sýnd saman. Listasafnið fékk eigið kennslurými eftir breytingarnar á húsnæðinu og mun eftirleiðis sjá um listsköpun fimm ára barna úr völdum leikskól- um í verkefnum sem tengjast Sköpun bernskunnar. Öndvegisstyrkur Safnaráðs til þriggja ára Árið 2020 kom Leikfangasafnið aftur inn sem þátttakandi nú í umsjón Minjasafnsins á Akureyri. Þemað það árið var hús­heimili­skjól með undirþemanu hamfarahlýnun eða hlýnun jarðar. Kanadísku myndlistarmennirnir Natalie Lavoie og Steve Nicoll dvöldu í gestavinnustofu Gilfélagsins í Lista- gilinu árið 2018. Þau unnu verkefni 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.