Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 10

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 10
og arkitekts. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel, gestir kunna að meta það að hitta og spjalla við starfsmann safnsins og eins hafa gestir miðlað til okkar upplýsingum varðandi gripina sem verið er að skrá og rannsaka. Þetta er gott dæmi um nýtingu á grunni sem safnið hefur að geyma (safneign, þekk- ing, húsnæði, heimasíða og samfélags- miðlar) til þess að skapa líf og samtal. Alls voru 9 einstaklingar sem fengu „lykla” að safninu í tengslum við Safnið á röngunni árið 2019: þrír sumarstarfsmenn, prófessor á eftir- launum, listkennslunemi frá Lista- háskóla Íslands, vöruhönnuður, tveir starfsnemar frá HÍ, og MA nemi í safnafræði við HÍ, sem hafði aðstöðu í safninu til að skrifa lokaritgerð sína um Einar Þorstein Ásgeirsson. Á árinu komu fjórir nemendur frá Worcester Polytechnic Institute í Massachusetts í Bandaríkjunum, ásamt tveimur prófessorum, sem unnu skólaverkefni í samstarfi við safnið yfir sjö vikna tímabil. Auk þess höfðu tveir íslenskir fræði- menn vinnuaðstöðu í safninu á árinu. Hönnunarskóli Hönnunarsafnsins tók til starfa. Í hann voru skráðir 8 nemendur á aldrinum 13–16 ára í 10 vikna nám- skeið. Samtals voru því 30 einstaklingar sem fengu „lykla” að safninu í meira en 4 vikur hver á árinu 2019, auk einstak- linga sem komu að uppsetningu sýn- inga og þróun og umsjón viðburða. Nú er varla þverfótað hér fyrir samtölum og hugmyndum og að sjálfsögðu skynja gestir safnsins það. Það er galdur að skapa góða stemmningu og maður gerir það ekki einn. Öll söfn geta nýtt sér þessa aðferða- fræði. Markmiðið þarf að vera skýrt. Þá þarf að kortleggja grunninn og út frá honum möguleikana til að ná markmiðinu. Muna að ekkert er asnalegt, setja allt í pottinn. Sjóða svo niður með samtölum og tilraunum, samtölum og tilraunum, þar til bragð- mikill kjarninn situr eftir. Það sem þarf að varast er að sökkva sér um of í allt sem er ómögulegt. Þá stíflast allt, sköpunargleðin fjarar út og vonleysið tekur völdin. Einbeitum okkur frekar að tækifærunum, þau eru til staðar þó svo þau blasi ekki alltaf við. Ég sit og skrifa þessar hug- leiðingar á dásamlegum stað, Óbyggða­ setrinu í Fjarðarbyggð. Í sumar hafa komið hingað þrjú- til fjögurhundruð gestir á dag! Setrið er eins mikið úr alfaraleið og hægt er að ímynda sér en það geta greinilega verið tækifæri í því þegar fólk á sér draum, hefur markmið og vinnur vel úr því sem er til staðar. AÐ SKAPA SAMTÖL Sigríður Sigurjónsdóttir, safnstjóri og vöruhönnuður 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.