Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 12

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 12
14 Safnasafnið á Svalbarðsströnd í Eyjafirði á 25 ára afmæli í ár og af því tilefni brá Kvistur sér norður og skoðaði sýningar sumarsins og hitti stofnendur þess, Níels Hafstein, myndlistarmann, og Magnhildi Sigurðardóttur, geðhjúkrunarfræðing. Það er alltaf sérstaklega ánægjulegt að koma í Safnasafnið. Á hverju ári eru skipulagðar margbreytilegar og áhuga- verðar sýningar sem kallast á við þann sérstaka anda sem ríkir í húsunum þar sem birta, spennandi og frjó list og fögur blóm móta umhverfið með útsýn til fjalla og fjarðar. Safnið er miðsvæðis á Svalbarðsströnd í Eyjafirði, það starfar í þremur húsum, þinghúsi Sval- barðshrepps sem jafnframt var barna- skóli og samkomuhús, kaupfélagshús- inu Gömlu-Búð og Norðurálmu. Þessar byggingar eru tengdar saman með tveimur glerskálum og hefur einstak- lega vel tekist til hjá Ragnheiði Þóru Ragnarsdóttur arkitekt. Salirnir eru tíu, hver með sinn sjarma og flæði sem leiðir gestina áfram, einnig anddyri og stór bókastofa. Á milli hæða eru stigar og lyfta. Safnið er með fjargeymslu og þrjú lítil hús á lóðinni undir garð- húsgögn, efnivið og tæki og fyrir for- ræktun grænmetis og blóma. Í stuttu spjalli daginn fyrir opnun sum- arsýninganna kom í ljós að samskipti safnsins við íbúa hreppsins hafa ætíð verið góð og velvilji er ríkjandi innan sveitarstjórnar og nýr sveitarstjóri, Björg Erlingsdóttir, safnfræðingur, skilur þarfir og mikilvægi rekstrar og verkefna safnsins betur en flestir. Þess má svo geta að þegar safnið er opnað á vorin birtast konur úr sveitinni, og aðrar sem búa fjarri, með veitingar til að bjóða gestum upp á. Talið berst að gestum safnsins, Níels og Magnhildur segja að samsetning þeirra hafi breyst talsvert á tímabil- inu. Í fyrstu komu aðallega hópar kvenna og biðu karlarnir þá oft úti í bílunum á meðan. Síðan bættust barna fjölskyldur við og þegar farið var að sýna verk nýútskrifaðs listafólks birtist unga fólkið. Safnið hefur alltaf átt dyggan hóp fastagesta og er áætlað að um fimmhundruð þeirra heimsæki safnið árlega. Í könnunum síðustu árin kom fram að yfir 40% gesta heim- sækja safnið vegna orðspors þess og álíka hátt hlutfall vegna ábendinga og hvatningar. Aðrir hafa fengið upp- lýsingar á netinu eða gististað sínum. Sýningar safnsins eru einn af grunn- þáttum starfseminnar og eru opnaðar 10–12 nýjar sýningar á hverju vori í húsunum. Þar fyrir utan eru fasta- sýningar sem breytast lítið milli ára, en þær eru Verslun Ásgeirs G. Gunn- laugssonar & Co, textíldeildin, þar sem til sýnis eru búningareftir Magnhildi, hannyrðir og smáhlutir, og Brúðu- stofan, fjölbreytt og falleg kynning á gripum hvaðanæva að úr heiminum. Samsetning sýninganna er mis- munandi en leitast er við að sýna eins mörg verk úr safneigninni og unnt er, auk aðfenginna sýninga, með verkum eftir einfara eða jaðarlistamenn. Einnig eru fengnir starfandi listamenn til að sýna og nýútskrifað listafólk sem hefur tengingar við megináherslur safnsins. Um samsetningu sýninganna segir Níels: „Þær þurfa allar að vinna saman. Í ár er það umhverfið og léttleikinn, í fyrra var heldur þyngra yfir og form- fastara, en slíkt er ekki beint skilgreint fyrirfram heldur gerist það ósjálfrátt í ferlinu. Undirvitundin stýrir þessu að einhverju leyti. Uppsetningarnar eru hugsaðar í heild fyrir öll húsin, að það séu ákveðnar sjónlínur, hlutir kallist á, að það sé samspil milli hæða. Allt úthugsað, hvergi tilviljun, og reynt að velja verkin þannig að kynjahlutföllin séu jöfn.“ Sýningarnar í ár eru sérlega áhugaverðar og skemmtilegar og kennir að venju margra grasa í orðsins fyllstu merkingu, útskýrðar svona með orðum safnstjórans: „Gróður leikur stórt hlutverk á sýningunum, einnig sögur og myndlýsingar, umhverfismál, huldufólk, barnslegt hugarfar, kjarnar, innsæi og fagurfræði.“ Sýningar á afmælisárinu eru þessar: Gróður jarðar sem Níels setti upp, að mestu úr safneigninni, fjölbreytileg og gerð af miklu innsæi og frjórri hugsun, og mynda verkin spennandi og áhrifaríka heild. Önnur sýning úr safneigninni er Í mannsmynd, skemmtileg sýning um ýmsar táknmyndir mannslíkamans, hönnuð af Unnar Erni J. Auðarsyni. Harpa Björnsdóttir bjó til sýningu á verkum eftir Sölva Helgason, eða Sólon Íslandus eins og hann kallaði sig sjálfur. Á þessari fallegu sýningu eru sýnd sextán verk sem ekki hafa sést áður, þar af fimm í safneign. Auk þess má sjá skemmtileg verk eftir Helenu Ósk Jónsdóttur af hestum í ýmsum myndum, Gunnhildur Hauksdóttir samdi seiðandi hljóðverk við uppdrætti að vefnaði og uppsetningum í vefstóla eftir Jóhönnu Jóhannsdóttur. Fræg og fögur útsaumsverk Guðrúnar Bergsdóttur eru þarna, sýningar á nýjum verkum safnstjórans, Hreins Friðfinnssonar og Magnúsar Loga Kristinssonar, einnig gleðirík listaverk frá Sólheimum. Að venju eru sýnd verk frá samstarfi safnsins við Leikskólann Álfaborg á Svalbarðseyri en Valsárskóli gat ekki verið með að þessu sinnu vegna Covid-19. Um upphaf söfnunar þeirra Magn- hildar og Níelsar, sem varð grunnur eignarinnar, segja þau hjónin að hún hafi byrjað þegar þau unnu bæði í Víði- hlíð, deild á Kleppsspítala, en þar var Safnasafnið 25 ára SAFNARÝNI / Sigrún Kristjánsdóttir, deildarstjóri Borgarsögusafni Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.