Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 16

Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 16
18 unglinga með markvissum hætti eða að einhverju leyti. Fram kom að flest höfðu reynt að ná til sem flestra hópa í gegnum samfélagsmiðla. „Líðan er náttúrlega óvissa um framtíðina.“ Í könnuninni var einnig leitast við að draga fram hvernig starfsfólk safna tókst andlega á við faraldurinn og hvaða áhrif hann hafði á dagleg störf starfsfólks út frá þeim þætti. Í svörum kom fram að það sem hvíldi einna mest á starfsfólki var hættan á smiti, hvort sem var á meðal starfsfólks eða gesta. Spurningar um sóttkví og hætt- una á að allur vinnustaðurinn yrði settur í sóttkví hvíldi einnig þungt á starfsfólki og almennt hve framtíðin var óljós þar sem framvinda sjúkdóms- ins var flestum hulin. Eftir því sem á leið faraldurinn snerust áhyggjur starfsfólk einkum að rekstri safnsins og mögulegum uppsögnum. Þá ríkti mikil óvissa um sumarstarf safnanna og hvernig átti að bregðast við kröfum um tveggja metra reglu, til að mynda í tengslum við viðburðahald. Stjórn- endur leituðust við að hafa gott upplýs- ingaflæði og voru sumir með reglulega starfsmannafundi og hópefli þar sem andleg líðan var á meðal umræðuefna. Almennt töldu svarendur að yfirvegun hefði þó ríkt á meðal starfsfólks og tekist á við þau vandamál sem veiran skapaði um leið og þau komu upp. „Eflt samheldni, aukin vitund um mikil vægi hreinlætis og aukinn skilningur á mikilvægi safna og sýningastarfs.“ Þó svo að Covid-19 sé búið að setja allt á hvolf um allan heim þá fundu svarendur ýmislegt jákvætt við þetta fordæmalausa ástand. Margir bentu á að það þetta hafi þurft til að sýna fram á að fjarfundarbúnaður virkar vel og er að margra mati kominn til að vera. Það sátu allir við sama staf- ræna borðið og var mikil stuðningur að geta leitað til kollega um land allt og heyra hvað þeir voru að gera. Samkvæmt svörum stjórnenda þá var tíminn nýttur til skráninga muna og ljósmynda og var góður gangur í þeim verkefnum þar sem minna var um annað áreiti eins og þegar opið er fyrir gesti. Einnig var tekið til hendinni í varðveisluhúsum og viðhaldi sýninga og safnhúsa sinnt. Mörg söfn nýttu tímann vel til að miðla stafrænt. Almennt má segja að starfsfólk safna hafi nýtt tímann vel og hugað að innra starfi en einnig unnið að verkefnum framtíðar og unnið þannig í haginn. Hlutverk safna í veiru og vá …að „opna“ dyrnar á safninu þó svo að það væri lokað. Það var svar margra að hlutverk safnsins í kófinu hafi einkum verið að miðla þeim mikla fróðleik sem söfn varðveita. Flestum svarenda þótti mikilvægt að miðla innihaldsríkri afþreyingu og vekja þannig áhuga áhorfenda/lesenda á safninu, í raun opna dyrnar á safninu þó svo að það væri lokað. Þá lögðu mörg söfn áherslu á að sinna innra starfi að kost- gæfni og minna þannig samfélagið á mikilvægi sitt. Þegar litið er í baksýnisspegilinn töldu flest söfn sig hafa gert eins vel og þau höfðu efni og aðstæður til. Þó tók einn svarandi fram að það hefðu verið mistök að nýta hluta- bótaleiðina. Sum nefndu þó að þau hefðu mátt nýta samfélagsmiðla enn betur. Fyrstu viðbrögð safna sýna þó, að mati svarenda, að þau hafi brugð- ist hratt og skynsamlega við þeirri vá sem við blasti. Starfsfólk safna er skapandi og var fljótt að aðlagast nýjum veruleika án þess þó að slá af faglegum kröfum. Allir settu ör- yggi gesta og starfsfólks í fyrsta sæti og sinntu áfram af elju og dugnaði þeim faglegum verkefnum sem söfnum er treyst fyrir, sama hvaða vandi steðjaði að. Þá voru tekin upp ný viðmið er kom að þrifum og um- gengni við gesti. sendingu á Facebook. Söfnin nefndu einnig að Instagram hefði verið not- að með ágætum árangri m.a. fyrir vefleiðsagnir og miðlun myndbanda. Nokkur söfn nýttu sér þann kost að miðla sýningum í gegnum Sarp. Samfélagsmiðlar eins og Snapchat, Twitter, Tik Tok eru lítið sem ekkert notaðir miðlar. Almennt virðist vera mikil þekking á Facebook en alls töldu 67.4% svo vera og 27.91% töldu að einhver þekking væri til staðar inn- an safnsins. Mjög fáir telja að engin þekking sé til staðar á samfélags- miðlum. Einnig kom fram að færni hefði aukist í notkun fjarfundaforrita sem auðvelduðu safnafólki samskipti bæði innan og á milli vinnustaða. Spurt var út í hvort að höfundarréttur kæmi í veg fyrir að hægt væri að miðla safnkostinum með stafrænum leiðum og kom í ljós að meirihluti safnkosts er utan höfundarréttar. Fram kom að tíu söfn hafa gert samn- ing við Myndstef um birtingar á safn- kosti sem varinn er höfundarrétti. Safnið í sófann Myllumerkið #safniðísófann fór á flug á samfélagsmiðlum. Það byrjaði á Akur- eyri en brátt fóru söfn um allt land að notað merkið. Líklega hefur rafræn miðlun safnanna glatt fólk á meðan á samkomubanninu stóð. Myllumerkið virkaði vel og var áhugavert að sjá hversu mörg söfn nýttu þennan kost. Miðlunarverkefnin á netinu voru mjög fjölbreytt t.d. voru sýningar í gegnum Sarp, lifandi leiðsagnir á samfélagsmiðlum, boðið var upp á heimsóknir í þrívídd, hægt var að fylgjast með daglegu starfi á söfnum, ljósmyndum og fræðslu var deilt á skapandi hátt. Mismunandi var hvort unnið var nýtt efni í samkomubann- inu eða annað efni sem var þegar til notað. Spurt var um hvort söfnin hefðu reynt að tengjast ákveðnum gestahópum/markhópum með miðlun sinni. Börnum og unglingum, eldri borgurum, fólki með fötlun og fólki af erlendum uppruna. Um helmingur svarenda reyndi að ná til barna og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.