Safnablaðið Kvistur - 2020, Síða 25

Safnablaðið Kvistur - 2020, Síða 25
27 Um leið er dregið fram að starf margra listamanna er gjarnan nátengt skrif- um, textum og tungumáli ekki síður en myndmáli. Í samspili mynda og ólíkra texta er fólgin viðleitni til að ná utan um þá krossræktun milli listgreina sem einkennir starf margra samtímalista- manna og birtist einnig í þverfag legu starfi í akademísku umhverfi. Leiðang­ ur kallast þannig á við rannsóknar- tengdan þátt listsköpunar Önnu Líndal, sem var um árabil prófessor við Listaháskóla Íslands, en hugtakið „listrannsóknir“ hefur rutt sér mjög til rúms hin síðari ár. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur skrifar upplýsandi grein um feril Önnu, um listamanninn sem landkönnuð, rannsakanda og safnara, og um mynd- listina sem sérstaka gerð þekkingar- sköpunar. Í stuttum en áhugaverðum texta William Fox vefur höfundurinn saman þræði í listsköpun Önnu; hvern- ig hún staðsetur sig í heiminum, kort- leggur og markar spor sín og annarra um leið og hún tengir saman vísindi og list, heiminn og heimilið, hið ytra og innra. Guðrún Erla Geirsdóttir mynd- listarmaður gerir grein fyrir hinum femíníska þætti í verkum Önnu en hún vakti fyrst athygli fyrir verk sem fjölluðu með snörpum hætti um stöðu kvenna. Frá síðari hluta 10. áratugarins hefur ríki jökulsins, sköpunarverk náttúrunnar og tilhneiging mannsins til að kortleggja hana, flokka og safna, verið meginviðfangsefni hennar. Eins og fram kemur í viðtali Bjarka Braga- sonar myndlistarmanns við Önnu, þá er sjónarhorn hennar ávallt gagnrýnið: „Að handsauma landakort á léreft er femínískt steitment“ svo vitnað sé í orð listamannsins. Bókarformið hentar einnig vel verk- um Haraldar Jónssonar sem unnið hefur talsvert með texta og gefið út prósaverk og ljósmyndabókina TSOYL. Brot úr þessum verkum/bókum hans birtast í Rófi auk texta sýningarstjór- ans Markúsar Þórs þar sem farið er yfir feril listamannsins. En það er verkum hennar, áhugi á umhverfis- málum og tengslum menningar og náttúru eins og þau birtast í menn- ingarminninu og arfinum: Tungumál- inu, þjóðsögunum og byggingarlistinni – og í hinum ýmsu sérkennum og jafnvel furðufyrirbærum sem þar fyrir finnast. Didier Semin listfræðing- ur tekur skemmtilegan snúning á verk Ólafar í ritsmíðinni Franskt vegabréf sem fjallar um gagnrýnið inntak safna- þáttarins í verkum hennar. Þá er að finna ítarlega listfræðilega greiningu á verkum Ólafar í grein Æsu Sigurjóns- dóttur listfræðings. Í textum bókanna Leiðangur, Róf og Úngl er efnt til margháttaðrar sam- ræðu við feril Önnu, Haraldar og Ólafar. Verkin eru greind með hliðsjón af listsögulegu samhengi, hugað er að rödd listamannanna og sjónarhorni annarra skapandi einstaklinga í við- tölunum, og víddir opnast í forvitni- legum skrifum. Lesandinn þræðir sig í gegnum feril listamannanna út frá myndum af verkum og í gegnum texta og samsamar sig í þeim „leið- angri“ að ýmsu leyti menningarlegum birtingarmyndum verkanna; hvernig og á hvaða „rófi“ þau lifa í samfé- laginu og í huga viðtakenda þar sem stundum hrærast „úngl“. Þessi metn- aðarfulla ritröð, sem felur í sér vissa listrannsókn, varpar ljósi á listasafnið sem mikilvægan útgefanda í víðum skilningi þekkingar og merkingar. ekki hlaupið að því að gera skil þeim verkum hans – skúlptúrum, innsetn- ingum, gjörningum og vídeóverkum – sem fjalla um skynjun og kalla á lík- amlega og jafnvel tilfinningalega þátt- töku áhorfandans. Þar kemur grein Sigríðar Þorgeirsdóttur heimspekings um fyrirbærafræðilegan áhuga lista- mannsins að góðu gagni. Texti eftir skáldið Sjón, Og gátur, veitir einnig skilningarlykla að verkum lista- mannsins sem liggja á óhlutbundn- um mörkum – eða rófi – tungumáls, tjáningar og veruleikaskynjunar. Skemmtilega beinskeytt viðtal Krist- ínar Ómarsdóttur við listamanninn felur einnig í sér skáldlegt framlag. Þar ræðir listamaðurinn mikilvægi þess að vera á staðnum þegar gjörn- ingar eru annars vegar en eftirfarandi orð hans ná vel utan um inntak verk- anna: „Gjörningarnir snúast gjarnan um að virkja og brúa bilið á milli okkar. Ég býð áhorfendum til leiks og bilið breytist í eitthvað annað“. Samtölin sem birtast í bókunum eru iðulega samtöl tveggja listamanna og í Úngl er það Ragnar Helgi Ólafsson rithöfundur og myndlistarmaður sem leitar svara hjá Ólöfu. Hann leggur upp með tvö lykilhugtök í listsköpun Ólafar; söguna og safnið. Ólöf er senni- lega þekktust þremenninganna en hún á mörg verk í opinberu rými og má þar nefna Þúfuna á Grandagarði. Í Þúfunni sameinast, eins og í mörgum

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.