Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 31

Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 31
33 11 listasöfnum, 24 minjasöfnum og sjö náttúruminjasöfnum eða öðrum söfnum (sjá mynd 5). Könnunin leiddi í ljós að um 65% þátttakenda sinna safnfræðslu í hlutastarfi. Það er umhugsunarvert að aðeins um 9% þátttakenda starfa við fræðslu í fullu starfi og rúmlega 16% þátttakenda sinna einnig skipulagningu og fram- kvæmd viðburða í sínum söfnum. Annir við önnur verkefni virðast því hamla fræðslustarfinu (sjá mynd 3). Hvað á starfið að heita? Frá örófi alda hefur fræðsluhlutverk safna verið samofið starfsemi þeirra. Fagið safnfræðsla er hins vegar rétt rúmlega 50 ára gamalt. Grunnur og skilningur á starfi (fagvitund) er mikil vægur þáttur í þróun fags af hvaða tagi sem er. Dæmi um slíkt eru starfsheiti. Í safnfræðslu er tölu- vert misræmi á starfsheitum bæði í fræðum og framkvæmd. Svörun þátttakenda í ofangreindri tilraun leiddi í ljós að misræmið er enn til staðar. Fyrir utan safnstjóra/forstöðu- menn eru 10 starfsheiti í notkun fyrir safnfræðslufólk. Algengustu starfsheitin eru verkefnastjóri og/ eða sérfræðingur fræðslu en innan þeirra mátti greina ýmsar útfærslur og viðbætur við störfin. Orðið safn- kennari er mjög lýsandi fyrir kenn- ingarlegan grunn starfsins en aðeins 11% þátttakenda nota það starfsheiti (sjá mynd 4). Þá er umhugsunarvert að safnstjórar /forstöðumenn eru 35% þátttakenda sem, auk stjórnunarstarfa, eru að sinna fræðsluhlutverki á sínum vinnustöðum. Gefur sú niðurstaða til kynna að full ástæða er til að endur- skoða stöðugildi í fræðslu á íslenskum söfnum. Fjölgun stöðugilda kallar á meira fjármagn og mætti þá skoða menningarstefnur og menntastefnur ríkis og sveitafélaga til að finna sam- starfsfleti safnfræðslu til framdráttar. Andrými til athafna Starfsumhverfi safna virðist hamlandi fyrir safnfræðslu – sagan ber merki um innri átök og þöggun. Það vantar endingarbetri ramma fyrir safn- fræðslustarf hér á landi, sem hægt væri að ná fram með því að horfa til framtíðar í fræðslumálum safna og tryggja faglega stöðu fræðslu innan skipulagsheilda safna þegar hugað er að víðtæku menningarhlutverki þeirra, festa fræðslustefnu í sessi þegar horft er til menntunarhlut- verks safna og styðja betur við faglega nálgun safnfræðslufólks í stað þess að horfa á framkvæmd safnfræðslustarfs- ins sem þjónustu og á ábyrgð fárra aðila. Fræðslustarf er sérstakt fræða- svið sem þarf að efla og næra í safna- samhengi. Safnkennarar þurfa að öðlast sterkari fagvitund með því að gerast breytingasinnar (change agents) og fá skýrt umboð til að þróa og efla safnfræðslustarfið. Síðast en ekki síst yrði það söfnum til hagsbóta að víkka út sína kenningarlegu ramma og huga að safnfræðslu til framtíðar, tengja saman kynslóðir og samfélög. Safnkennarar eru í lykilstöðu í því verkefni fái þeir til þess andrými. Þátttakendur í könnun eru: Borgarsögusafn Reykjavíkur Bókasafn Kópavogs Byggðasafn Árnesinga, Eyrarbakka Byggðasafn Hafnarfjarðar Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna Byggðasafn Reykjanesbæjar Byggðasafn Skagfirðinga Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla (Norska húsið) Byggðasafn Vestfjarða Byggðasafnið Hvoll, Dalvík Byggðasafnið í Görðum, Akranesi Flugsafn Íslands, Akureyri Gerðarsafn, Kópavogi Grasagarður Reykjavíkur Gljúfrasteinn, Mosfellsbæ Hafnarborg, Hafnarfirði Heimilisiðnaðarsafnið, Blönduósi Hönnunarsafn Íslands, Garðabæ Hvalasafnið, Húsavík Iðnaðarsafnið, Akureyri Landbúnaðarsafn Íslands, Hvanneyri Listasafn ASÍ Listasafn Árnesinga, Hveragerði Listasafn Einars Jónssonar Listasafn Íslands Listasafn Reykjavíkur Listasafnið á Akureyri Menningarmiðstöð Þingeyinga Minjasafn Austurlands Minjasafnið að Hnjóti Minjasafnið á Akureyri Náttúrufræðistofa Kópavogs Náttúruminjasafn Íslands Nýlistasafnið Safnahús Borgarfjarðar Safnasafnið, Svalbarðsströnd Sagnheimar, Vestmannaeyjum Síldarminjasafn Íslands Skógasafn Tækniminjasafn Austurlands Veiðisafnið, Stokkseyri Þjóðminjasafn Íslands 1 Þjónustuhugsun hefur staðið safnfræðslu fyrir þrifum vegna þess að í henni er einblínt á fram- kvæmd starfsins en horft framhjá fræðilegum (kenningarlegum) grunni þess. 2 Verkefnið var ritað á ensku: Toward Sustainable Museum Education Practices: A Critical and Reflect­ ive Inquiry into the Professional Conduct of Museum Educators in Iceland. Ensk hugtök eru því sett í sviga vilji lesendur kynna sér þau betur. 3 Íslenskun á veirufaraldrinum Covid-19. 4 Sjá t.d.: Kley, R. 2009. „Recessionary Layoffs in Museum Education. Survey Results and Implications.“ Journal of Museum Education 34(2): 123–128. 5 Greinarnar eru aðgengilegar hér: www.hi.academ ia.edu/AlmaDisKristinsdottir 6 Nánar um smástundarsafnshugmyndina í MA-ritgerð Eddu Björnsdóttur frá 2013. fræðslufulltrúi, 6% kynningarfulltrúi, 2% deildarstjóri, 2% leiðsögumaður, 4% safnfræðslufulltrúi, 2% safnkennari , 11% safnvörður, 19% sérfræðingur (fræðslu og/eða annað), 26% sjálfboðaliði, 2% verkefnastjóri (fræðslu og/eða annað), 26% Starfsheiti safnfræðslufólks fyrir utan safnstjóra (47 svör) fræðslufulltrúi, 6% kynningarfullt úi, 2% deildarstjóri, 2% leiðsögumaður, 4% safnfræðslufulltrúi, 2% safnken ari , 11% safnvörður, 19% sérfræðingur (fræðslu og/eða annað), 26% sjálfboðaliði, 2% verkefnastjóri (fræðslu og/eða annað), 26% Starfsheiti safnfræðslufó ks fyrir utan s fnstjóra (47 svör) AlmaDís Kristinsdóttir, doktor í safnafræði og safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar Mynd 4 – Hvað á starfið að heita? Mynd 5 – Söfnin 42

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.