Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 32
34
AlmaDís Kristinsdóttir
Safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í nýju starfi?
Ef ég tek óvissuástand vegna Covid-19
út fyrir sviga þá er mín helsta áskorun
að efla faglegt starf safnsins og vinna
á skapandi hátt með þá annmarka
sem því eru settir. Markmiðið er að
koma starfseminni í þann farveg að
hún samræmist betur kröfum sem
gerðar eru til safna á 21. öld. Mér
finnst spennandi áskorun að sam-
þætta ólík rými safnsins: sýningarsali,
íbúð sem er eins og lítið minjasafn og
höggmyndagarðinn.
Hverjar verða helstu áherslur á
næstu 2–3 árum?
Ég sé fyrir mér að halda í þá jákvæðu
þætti í starfseminni sem fyrirrennar-
ar mínir hafa skapað safninu eins og
öflugt samstarf og áform um að reisa
samtengda þjónustubyggingu sem
teiknuð var fyrir áratug síðan. Stóra
verkefnið framundan, fyrir utan að
glíma við fjölmargar áskoranir, er að
halda upp á 100 ára afmæli safnsins
á Jónsmessu 2023. Það blasir við að ný
þjónustubygging væri safninu til sóma
á afmælisárinu og ég mun gera mitt
allra besta til að hreyfa við því máli.
VIÐTÖL VIÐ NÝJA SAFNSTJÓRA
Kvistur hefur oft spurt nýtt starfsfólk safnanna
um störfin, áskoranir og áætlanir og það er líka gert
núna. Það er handleggur að taka við nýju safni og
í mörg horn að líta. Þessir fjórir safnstórar gáfu sér
tíma til að svara þremur spurningum.
Verður bryddað uppá
einhverjum nýjungum?
Í Listasafni Einars Jónssonar eru
fjölmörg tækifæri til að brydda upp
á nýjungum ef viðmiðið er safnið
sjálft, garðurinn og turníbúðin.
Margt af því sem þykir sjálfsagt í
nútíma safnastarfi er hins vegar enn
óunnið eða óskýrt. Safn er stærra og
meira en viðfangsefni þess og hjarta
mitt brennur fyrir því að þetta
fallega og rótgróna safn eigi aukið
erindi í lífi fólks sem spennandi við-
komustaður í miðborginni.
Zuhaitz Akizu
Forstöðumaður Tækniminjasafns
Austurlands
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í nýju starfi?
Helstu áskoranirnar sem ég stend
frammi fyrir sem nýr safnstjóri
Tækniminjasafns Austurlands er að
uppfæra stefnu þess og gera aðgerða-
áætlun fyrir næstu ár. Það er jafn-
framt áskorun að fá góða yfirsýn yfir
fjármál safnsins og sjá út fjármögn-
unarleiðir svo hægt sé að bæta um-
gjörð safnsins og möguleika þess til
að koma nýrri stefnu í framkvæmd.
Stærsta áskorunin sem ég stend
frammi fyrir sem safnstjóri Tækni-
minjasafnsins er að skipuleggja og
forgangsraða verkefnum þannig að
vinnuálagið verði ekki yfirþyrm-
andi, ná að hafa í huga þann árang-
ur sem náðst hefur og vera jákvæður
og bjartsýnn á framtíðina.
Hverjar verða helstu áherslur
á næstu 2–3 árum?
Það eru nokkur markmið sem við
höfum fyrir safnið á næstu 2–3
árum: að meta ástand safnkostsins
og safnabygginganna, að uppfæra
safnastefnuna, að koma á kerfi svo
við höfum yfirsýn og getu til að
vinna faglega með safnkostinn; að
grisja safnkostinn á faglegan hátt,
að vinna að endurbótum húsa sem
eru í slæmu ásigkomulagi, að leita að
traustum fjármögnunarleiðum og al-
mennt að vinna að því að gera safnið
sjálfbært fjárhagslega og koma til
móts við þarfir samfélagsins.
Verður bryddað upp
á einhverjum nýjungum?
Gamla Skipasmiðastöðin fær löngu
tímabæra andlitslyftingu og sett
verður upp trésmíðaverkstæði þar
með áherslu á endurgerð gamalla
timburhúsa og báta. Ný sýning
verður sett upp um sögu Seyðisfjarð-
ar. Þá munum við hanna fræðslu-
prógramm þar sem stofnanir og
einstaklingar fá tækifæri til að læra
handverk og aðferðir sem tengjast
tæknisögu Seyðisfjarðar, Austur-
lands og Íslands alls.