Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 52

Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 52
54 Gettysburg. Við þurfum að nota sýndarveruleikann eins og er verið að gera á Sauðárkróki. Nú mættu breytingarnar í Skagafirði nokkurri andstöðu meðal safnamanna. Að mínu mati er best að hægt sé að tvinna þetta saman, sterkan fræði- legan grunn sem byggir á fjölbreyttri reynslu og þekkingu starfsfólks og það sem ég held að við munum líka sjá er að fólk er að fara á söfn til að njóta. Til að geta tengt við eitthvað sem fólk þekkir úr sínum veruleika. Við höfum sérstakt tækifæri til að gera söguna spennandi – hver hefur ekki áhuga á Sturlungaöld? Hvað með stöðu safnaráðs í stjórn- sýslunni, nú hefur oft verið rætt um að slíkar einmenningsskrifstofur eigi ekki framtíðina fyrir sér. Hvernig sjáið þið þróunina varðandi þessar einmenningsskrifstofur fyrir ykkur í þeirri umræðu sem nú á sér stað um breytingar í menningarstjórnsýslu á vegum ráðuneytisins? Ég sé fyrir mér að það sé ákveðin heildstæð stefna, en ef þú ætlar að vera með opinbera stefnumótun sem er byggð á góðum grunni þá verð- ur eignarhaldið að vera þeirra sem starfa innan málaflokksins til þess að þeir hafi trú á stefnunni. Það getur ekki komið frá okkur í ráðneytinu, þar sem við segjum bara „svona verður þetta“. Það sem við eigum að passa upp á er að stjórnsýslan sé vel rekin en um leið treysta faglegum bakgrunni fólksins sem þarna starfar og það er það sem við erum að gera. Taka samtalið, fá skýrslur og líka leita leiða til þess að styðja við þá sem vilja vera í samstarfi. Við vitum það að samstarf getur verið mjög gefandi sé það vel gert og snýst fyrst og fremst um samvinnu fólks. En ég er ekki á því að við eigum að gera það nema það sé ríkur samstarfsvilji og fólk sjái tilganginn. Við getum sett ákveðna gulrætur inn í þetta og ég held að fólk sjái einhvern vísi að því. En svo verðum við að horfast í augu við að við stöndum frammi fyrir allt öðrum veruleika í dag en við gerðum í upphafi árs. Ég er mjög meðvituð um það. Að lokum bað ég Lilju um að hugsa um veturinn framundan með mér, hvað gerum við. Draga söfnin sig í hýði eða sækja þau fram. Megum við eiga von á breytingum á styrk- veitingum hins opinbera til safna sem verða fyrir verulegu tekjutapi? Söfnin eiga að sækja fram, það er einstakt tækifæri til að efla heima- markaðinn þó það þurfi að reyna að halda aðgangseyri í lágmarki þannig að hann verði ekki hindrun, t.d. fyrir barnafjölskyldur. Við þurfum að ala upp kynslóðir áhugafólks um sögu og menningu og lykilfólk í þeirri vegferð er starfsfólk safnanna sjálfra. Þegar Lilja hafði svarað mínum nokkuð þurru spurningum áttum við spjall um ýmislegt varðandi söfn, sýningar og menningararfinn. Eins og kannski þú heyrir þá er ég mjög áhugasöm um söfn og við fjölskyldan skipuleggjum ferðir til útlanda í kringum safnaheimsóknir. Við bjuggum í Washington DC, þar sem er gríðarleg safnamenning, á meðan börnin okkar voru ung. Ókeypis er inn á öll söfnin í Washington og þau eru troðfull allar helgar, þú sérð alla þjóðfélagshópa þar. Það er inni í menningunni þar eins og víðar að fara á safn, það er partur af helginni hjá venjulegum fjölskyldum. Minn draumur er að það sé partur af helginni hér líka að þú farir á safn. Mér finnst íslensku söfnin flott og metnaðarfull, við erum með góða fagþekkingu sem hefur aukist mikið á síðustu 25 árum. Miðlunin er að verða öflugri og mér finnst það skemmtilegasta við að ferðast um Ísland það er að fara á söfn. Lilja sagði mér frá því að hún hefði heimsótt Cabinet War Rooms og sýninguna um Churchill í London, eftir heimsóknina sendi hún safninu athugasemdir um að ekkert væri minnst á tengsla hans við Ísland heimsókn hans hingað í ágúst 1941. Hún hefur síðan staðið í bréfaskipt- um við aðstandendur sýningarinnar. Ráðherrann er greinilega áhuga- samur safngestur. VIÐTAL VIÐ MENNTAMÁLARÁÐHERRA Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.