Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 53
VÍÐTÆKT SAMSTARFSVERKEFNI MEÐ SÖFN Í FORGRUNNI
þessara barna var lýst í áhrifamiklum
fyrstu persónu frásögnum þar sem
komið var inn á mismunandi málefni
sem tengjast heimsmarkmiðum sam-
einuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun,
s.s. fátækt, hungur, heilsu, menntun,
jafnrétti, aðgang að vatni, sjálfbæra
orku, atvinnumöguleika og nýsköp-
un. Sögurnar voru frumsamdar en
byggðar á heimildum um aðstæður
barna þá og nú. Frásagnirnar voru
myndskreyttar með ljósmyndum,
annars vegar af barni í nútímanum
og hins vegar af þessu sama barni í
„fortíðinni“. Til að ná fram einkenn-
um gamalla ljósmynda var myndin
af barninu í fortíðinni tekin með
gömlum ljósmyndabúnaði á Tækni-
minjasafni Austurlands. Til að auka
á upplifun voru bæði til sýnis gripir
úr safnkosti safnanna og gripir úr
nútímanum sem tengdust umfjöllun-
arefnunum auk þess sem gestir voru
hvattir með margvíslegum hætti til að
líta í eigin barm og spegla sínar eigin
aðstæður við aðstæður barnanna og
heimsmarkmiðin.
Austfirskt fullveldi –
sjálfbært fullveldi?
Minjasafn Austurlands, Tækniminja safn Austur-lands, Sjóminjasafn Austur-
lands ásamt Gunnarsstofnun á
Skriðuklaustri hlutu tilnefningu til
íslensku safnaverðlaunanna fyrir
verkefnið „Austfirskt fullveldi – sjálf-
bært fullveldi?“ sem söfnin tóku þátt
í í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis
Íslands árið 2018. Í umsögn dóm-
nefndar kom fram að verkefnið „[væri]
fordæmisgefandi um hvernig söfn af hvaða
stærðargráðu sem er geta gert sig gildandi
í samfélagsumræðunni og verið leiðandi í
samstarfi við fleiri stofnanir“. Hér var um
að ræða viðamikið samstarfsverkefni
þar sem söfn og fleiri stofnanir tóku
höndunum saman til að minnast
tímamótanna en um leið að staldra
við, líta í eigin barm og horfa til fram-
tíðar nú þegar loftslagsbreytingar af
mannavöldum er ein hlesta ógnin
sem mannkynið stendur frammi
fyrir. Aðdragandinn var tiltölulega
stuttur en með samstilltu átaki tókst
að búa til eftirtektarvert verkefni sem
bæði minnti fólk á hvaðan við kom-
um og hvatti það til að íhuga hvert
við stefnum.
Aðdragandi og útkoma
Sumarið 2017 kölluðu fulltrúar Aust-
urbrúar saman hóp fólks úr safna- og
menningargeiranum á Austurlandi
til að ræða hvernig staðið skyldi
að hátíðarhöldum í fjórðungnum í
tilefni af 100 ára afmæli fullveldis
Íslands. Austurbrú er þverfagleg
stoðstofnun sem vinnur að hags-
munamálum íbúa á Austurlandi og
að þróun samfélags, atvinnulífs, há-
skólanáms, símenntunar, rannsókna
og menningarstarfs í landshlutanum.
Ljóst var að margar stofnanir voru
áhugasamar um að gera eitthvað í
tilefni tímamótanna en fáar höfðu
aðstæður, bolmagn eða ráðrúm til að
standa fyrir viðamiklum hátíðarhöld-
um upp á eigin spýtur. Niðurstaðan
varð að stofnanirnar myndu sameina
krafta sína og taka höndum saman
um verkefni sem myndi ramma inn
hátíðarhöld í fjórðungnum í tilefni
tímamótanna.
Af stað fór mikið hugarflug og hug-
myndin tók að mótast. Úr varð að
verkefnið myndi snúast um að skoða
með gagnrýnum hætti hugtökin
fullveldi annars vegar og sjálfbærni
hins vegar. Það var gert með því að
bera saman aðstæður barna árið 1918
og 2018 og spegla þær við heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun. Fleiri stofnanir voru
kallaðar að borðinu, aðrar heltust úr
lestinni og á endum urðu þær níu:
Austurbrú, Minjasafn Austurlands
á Egilsstöðum, Sjóminjasafn Aust-
urlands á Eskifirði, Tækniminjasafn
Austurlands á Seyðisfirði, Gunnars-
stofnun á Skriðuklaustri í Fljótsdal,
Héraðsskjalasafn Austfirðinga, Land-
græðslan, Skólaskrifstofa Austurlands
og Menntaskólinn á Egilsstöðum.
Stærsti hluti verkefnisins var fjórskipt
sýning sem sett var upp á söfnunum
þremur auk Skriðuklausturs. Sýn-
ingarnar voru þannig byggðar upp
að á hverjum stað voru tvö börn í
forgrunni, annars vegar barn árið
1918 og hins vegar barn af sama kyni
og á sama aldri árið 2018. Aðstæðum
55