Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 58

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 58
NÝJUNGAR Í SAFNFRÆÐSLU auk Þjóðminjasafnsins, Borgarsögu- safn Reykjavíkur, Listasafn Reykja- víkur og Listasafn Íslands. Lykilatriði í samvinnunni er að öllum dagþjálf- unarstofnunum á höfuðborgarsvæð- inu var boðið að taka þátt, en ekki aðeins einstökum stofnunum eins og áður var. Það sýndi sig að allar vildu þær njóta góðs af þessari dagskrá og er það til mikilla bóta að geta nú boðið öllum stofnununum að senda sína skjólstæðinga í uppbyggjandi heimsókn á söfnin. Halldóra setti upp miðlæga dagskráráætlun og skv. henni tók hvert safn á móti tveimur hópum á mánuði yfir vetrar- mánuðina og fékk skjólstæðinga allra stofnananna í heimsókn. Þetta starf hefur verið í mótun undanfarin ár á söfnunum sem taka þátt í því og mun eflaust þróast áfram. Engin vafi er á því að það er styrkur fyrir söfnin að vera í þessu verkefni sem teymi. Þannig hafa safnfræðslu- sérfræðingarnir stuðning hver af öðrum og skjólstæðingarnir njóta fjölbreytts safnkosts og fræðslu. Nýjar miðlunarleiðir í kóvid-lokun Þegar Þjóðminjasafninu, eins og öðrum söfnum, var gert að loka sýn- ingarsölum í vor lagðist starfsfólk safnfræðslu, munasafns, kynningar- mála og ljósmyndasafns á eitt við að miðla fjölbreyttu efni í gegnum vefsíðu safnsins. Einnig voru samfé- lagsmiðlar safnsins virkjaðir á nýjan máta og í huga undirritaðra ber þar hæst beina útsendingu á Facebook á Döff fjölskylduleiðsögn á sunnudegi Alþjóðleg baráttuvika Döff 2019 var 21. til 29. september. Að frumkvæði safnkennara tók Þjóðminjasafn Ís- lands þátt í þessari viku og bauð upp á döff fjölskylduleiðsögn um grunnsýn- ingu safnsins Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár. Var sú leið valin að fá táknmálstúlk til að vera með leiðsögn einungis á táknmáli. Þannig voru döff gestirnir settir í fyrsta sæti í stað þess að tal væri túlkað fyrir þau. Safnkennarar fengu táknmálstúlkin- um handrit að leiðsögn fyrir börn og hittu hana einu sinni á sýningunni til undirbúnings. Það mættu 13 börn og 15 fullorðnir á þennan viðburð. Fylgdi safnkennari hópnum og var til staðar ef upp komu spurningar um sýn- inguna sem táknmálstúlkur gat ekki svarað. Það að leiðsögnin fór einungis fram á táknmáli ýtti undir skemmti- lega stemmingu í hópnum enda var leiðsögnin þannig algjörlega þeirra. Safnkennarinn varð að eins konar aukastærð og skildi ekki það sem fram fór en sá um leið áhugann og ákafann skína úr andlitum og táknmáli gest- anna. Var þetta mjög skemmtilegur viðburður og er þetta eitthvað sem vonandi er komið til að vera. Leiðsögn fyrir blind eða sjón- skert börn, fjölskyldustund á sunnudegi Í mars sl. buðu safnkennarar Þjóðminjasafnsins blindum eða sjónskertum börnum og ungmenn- um og fjölskyldum þeirra að heim- sækja grunnsýningu safnsins með leiðsögn sem sniðin var að þeirra þörfum. Var ýmsum brögðum beitt til þess að draga fram efni sýningar- innar án þess að reiða sig á sjónina. Snertigripir af fjölbreyttum toga gegndu lykilhlutverki en einnig gafst gestunum tækifæri til að þreifa á raunverulegum sýningargripum með hanskaklæddum höndum. Safnkennarar gáfu stærð knarrar til kynna með hljóði úr stefni og skut, baðstofuna var hægt að ganga í kringum og þannig átta sig á stærð hennar. Rímur og munkasöngur sem óma á viðeigandi stöðum í sýn- ingunni gáfu réttu stemmninguna. Gafst leiðsögnin vel og er fullt tilefni til að bjóða hana árlega. Hittumst í Þjóðminjasafninu – dagskrá fyrir Alzheimersjúklinga Hittumst í Þjóðminjasafninu, verkefni sem innleitt var í Þjóðminjasafninu 2018 undir handleiðslu Halldóru Arnardóttur, listfræðings, hélt áfram með nýju sniði frá og með hausti 2019. Markmiðið með verkefninu er að veita Alzheimersjúklingum inni- haldsríka og gefandi stund innan um safngripi á sýningum og bæta þannig líðan þeirra og geð. Í kjölfar fundar um þetta verkefni sl. haust, með m.a. safnfræðslusérfræðingum fjögurra safna í Reykjavík sem þátt taka í verkefninu, var ákveðið að söfnin fjögur hefðu með sér sam- vinnu um dagskrána. Söfnin eru, 60 Safnfræðsla í Þjóðminjasafni Íslands veturinn 2019–2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.