Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 62

Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 62
64 Á sýningunni 1238, Baráttan um Ísland fær sýningargesturinn tæki- færi til að ganga til liðs við Sturlu í Örlygsstaðabardaga, bókstaflega að stíga inn í sögu Sturlungaaldar og taka þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar, eins og segir á heimasíðu sýningarinnar. Bardaginn er sviðsettur í gegnum sýndar- veruleika og er gesturinn staðsettur innan varnarmúrs, vopnaður grjóti og spjótum, og tekur virkan þátt í orrustunni eftir upplýsingar sögumanns sýndarveruleikans um hlutverkið í bardaganum. En nú er ég kominn ögn fram úr mér því sýningin byrjar hvorki né endar í sýndarveruleikanum. Hún byrjar í sýningarsölum þar sem sögusviðið er búið til. Þar er sagt frá Sturlungu í stuttu máli með teikningum og myndum. Gripir og búningar eru svo látnir búa til tilfinningu um líf fólks á Sturlungaöld. Þar er stuðst við hefðbundnar aðferðir til að koma upplýsingum á framfæri. Viðbótarveruleikatækni hefur ekki verið nýtt í sýningum á Íslandi, að því ég best veit. Í sýningunni er hún notaður til að gefa gestinum tæki- færi á að taka þátt í Flóabardaga með því að nota spjaldtölvu sem haldið er yfir leikjaborði. Þessi tilraun gengur því miður ekki upp því það er töluvert erfitt að spila leikinn. Skipin láta illa að stjórn og enduðu stundum upp á fjalli og grjótið Á Sturlungaslóðum í Skagafirði Rýni á tvær sýningar Sturlungaöld er sögusvið tveggja sýninga sem nýverið opnuðu í Skagafirði. Á annarri þeirra er fjallað um Sturlungaslóðir með sýndar- veruleikatækni, en á hinni er greint frá Sturlungaöld með augum mynd- listarlistamanna og sögumanns. Á Sauðárkróki er sýningin 1238, Bar­ áttan um Ísland þar sem Örlygstaðabar- dagi er í forgrunni. Tilkoma sýningar- innar hefur ekki verið átakalaus og aðkoma sveitarfélagsins Skagafjarðar að henni hefur verið pólitískt bitbein. Mikið hefur verið lagt undir enda sýningin ekki síst hugsuð sem liður í baráttu „um túristann á Íslandi.“ Hún er því hrein og bein markaðsað- gerð fyrir Sauðárkrók og Skagafjörð og, hugsuð sem eitthvað nægilega dramatískt, stórt og tilþrifamikið til þess að fanga athygli ferðamanna, fá þá til að beygja af leið inn í Skagafjörð eða ferðast sérstaklega norður í þeim tilgangi einum að berja sýninguna augum eins og segir á vef eigenda sýningarinnar hn.is. Væntingar mínar voru nokkuð mikl- ar miðað við áherslur í markaðssetn- ingu sýningarinnar, sem segir sýn- inguna gera meira en hefðbundnar sýningar og sögusöfn. Það kom því á óvart hversu hefðbundin sýningin er í raun og veru þrátt fyrir tölvuleikja- töfrabrögð, sem eru vel gerð enda þungamiðja sýningarinnar. RÝNI / Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri 1238, Baráttan um Ísland.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.