Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 76
Safnafræði
BA-nám, diplómanám, MA-nám og fjarnám
hi.is/safnafraedi
Diplóma í safnafræði, 30 ECTS
Diplómanám í safnafræði veitir nemendum hagnýta
þekkingu á safnastarfi og hentar m.a. fólki sem starfar
á söfnum eða við varðveislu og miðlun menningararfs
og lokið hefur háskólagráðu. Námið tekur tvö misseri
og samanstendur af þremur skyldunámskeiðum
í safnafræði. Í framhaldi af diplómanáminu geta
nemendur sótt um í MA-námi í safnafræði og
lokið MA-prófi kjósi þeir það. Diplómanám fæst að
fullu metið hjá þeim nemendum sem samþykktir
eru inn í MA-nám í safnafræði. Hægt er að stunda
diplómanám í safnafræði í fjarnámi.
Meistaranám í safnafræði, 120 ECTS
Námið er 120 einingar, þar af 30 eininga lokaverkefni,
og lýkur með MA-prófi. Full námsframvinda á
einu misseri viðast við 30e. Allir sem lokið hafa
BA- eða BS-prófi með fystu einkunn (7,25) eða
sambærilega prófgráðu geta sótt um að innritast
í MA-nám í safnafræði. Auk námskeiða í safnafræði
geta nemendur tekið námskeið á sínu sérsviði í
öðrum greinum eða deildum háskólans í samráði
við umsjónarkennara en margir snertifletir eru
við safnafræði. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að
nemendur í MA-námi í safnafræði til 120e taki hluta
námsins við erlendan háskóla.
FÉLAGSFRÆÐI-, MANNFRÆÐI-
OG ÞJÓÐFRÆÐIDEILD
Gimli við Sæmundargötu - 101 Reykjavík
Sími 525 4500
fom@hi.is
hi.is/safnafraedi