Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 39
hraða en stundum hægar þegar
mikill mótvindur er.
- Hvernig er að upplifa nátt-
úruna hjólandi?
„Ég á ekki orð yfir það. Að upp-
lifa náttúruna á þennan hátt og
kyrrðina á morgnana og að vera
einn með sjálfum sér. Landið er
bara yndislegt. Ég er að njóta
hverrar einustu mínútu.“
Svanur hefur sloppið við
blöðrur og allt vesen á ferða-
laginu. Hann segist hafa fengið
góð ráð áður en haldið var í
ferðina frá reynsluboltum en
m.a. hafa nokkrir Suðurnesja-
menn farið svona ferðir áður.
Þá segir Svanur að Birna hugsi
vel um hann á ferðinni. Hann sé
stoppaður reglulega til að borða
og drekka. Svanur segist borða
góðan morgunmat, hafragraut,
skyr og döðlur. Þá fær hann
núðlusúpu
og lifrar-
pylsu þegar
hann er
hálfnaður
hverja dag-
leið. „Orkurík
fæða er það
sem gildir,“
segir hann, enda
sé brennslan mikil þegar það er
hjólað.
Suðurströndin er nokkuð
flöt til að hjóla en þegar komið
er á austufirðina og á norður-
landið þá er meira um brekkur.
Svanur sagði þær vera tilhlökkun,
því þegar búið er að hjóla upp
brekku, þá sé líka hægt að láta
sig renna niður og þá geti maður
farið hratt.
Svanur segir að fyrir svona
hringferðalag þurfi að undirbúa
sig vel bæði líkamlega og and-
lega. Það þarf að hafa orkuríka
fæðu og mjög gott að hafa góðan
ferðafélaga, það skipti öllu máli.
Svanur gerir svo ráð fyrir að enda
ferðalagið um komandi helgi en
hann og Birna stoppuðu auka-
nótt á Akureyri um miðja
vikuna, þar sem þau
eiga bæði fjöl-
skyldu.
Félagar Svans
úr 3N ætla að
taka formlega
á móti þeim
þegar þau
koma aftur
til Reykja-
nesbæjar á
laugardag eða
sunnudag.
Myndirnar með
umfjölluninni eru af
Face book-síðum þeirra
Svans og Birnu og birtar með
góðfúslegu leyfi.
Hjóla og synda hringinn
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 39