Víkurfréttir - 19.08.2020, Síða 26
Viðureign toppliðanna á sunnudag
Kvennaliði Keflavíkur hefur gengið ákaflega vel í Lengjudeild kvenna í sumar. Stelpurnar eru efstar í
deildinni með eins stigs forskot á Tindastól sem er í öðru sæti. Liðin mætast í toppslag á Nettóvellinum
á sunnudagi. Fyrri leikur liðanna fór 1:1 fyrir norðan svo það má búast við hörkurimmu þessa tveggja
sterkra liða.
Gunnar M. Jónsson, þjálfari
Keflavíkur, ræddi við blaðamann
Víkurfrétta um komandi leik og
stöðuna á sínum leikmönnum.
Keflvíkingar voru að bæta við
nýjum leikmanni, sú heitir Claudia
Nicole Cagnina og er perúsk lands-
liðskona sem er ætlað að fylla
skarð Anitu Lindar Daníelsdóttur
sem er farin í nám erlendis.
– Ég sá að þið voruð að
bæta við ykkur leikmanni,
perúskri landsliðskonu.
„Já, við vorum að missa
sterkan leikmann. Hún Anita
Lind var að fara út í skóla og
því þurftum við að bæta við
okkur og reyna að fylla hennar
skarð. Hún er í sóttkví svo við
eigum eftir að sjá hvernig hún
fittar inn í liðið. Hún heitir Claudia
Nicole Cagnina og er bandarísk
með ítalskt vegabréf og hefur
leikið með landsliði Perú. Hún
verður með okkur út tímabilið
og er komin með leikheimild. Við
eigum eftir að sjá hvernig hún er
en ef hún stendur sig vel þá verður
líklega samið við hana áfram.“
– Verður hún klár í næsta leik?
„Hún á að fara í seinni sýnatöku á
föstudaginn svo vonandi nær hún
æfingu með okkur á föstudag og
laugardag – og verður svo klár í
leikinn á sunnudag.“
– Eru allar heilar hjá þér?
„Já, það eru búið að vera svolítið
meiðsli hjá okkur en þær eru að
skríða saman. Ég held að þær séu
bara allar heilar núna. Það er bara
fínt stand á hópnum svo við verðum
klár í toppslaginn á sunnudaginn.
Þetta er mjög gott lið sem við
erum að fara að mæta með sterka
útlendinga, mjög góðan markmann,
mjög góðan leikmann á miðjunni
og svo hefur framherjinn hjá þeim
vakið mikla athygli og mörg úrvals-
deildarlið vildu fá hana en hún er
núna á þriðja tímabili hjá Tindastóli
– vill bara vera á Króknum.“
Anita Lind hefur
leikið sinn síðasta leik
í bili fyrir Keflavík.
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
26 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár