Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 74
– Nafn:
Brynja Björk Harðardóttir.
– Árgangur:
1975.
– Fjölskylduhagir:
Gift Halldóri Skúlasyni. Við eigum
þrjú börn; ellefu, þrettán og fimmtán
ára.
– Búseta:
Garðabær.
– Hverra manna ertu og hvar
upp alin?
Foreldrar mínir eru Anna Sigurðar-
dóttir og Hörður Karlsson. Ég er
alin upp í Njarðvík.
– Starf/nám:
Tannlæknir.
– Hvað er í deiglunni?
Hlýðum Víði.
– Hvernig nemandi varstu í
grunnskóla?
Ég var ágætis nemandi.
– Hvernig voru framhaldsskóla-
árin?
Mjög skemmtileg. Ég var í FS. Það
var voða gaman. Ég var í góðum
félagsskap þar.
– Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór?
Hmmm. Man það ekki. Ég tók
stefnuna á tannlækningar þegar
ég var í FS og fór á Háskóladaginn
þar sem allar deildir voru kynntar.
Ég fékk að bora í fyrsta skipti þá.
– Hver var fyrsti bíllinn þinn?
Daihatsu Charade.
– Hvernig bíl ertu á í dag?
Volvo.
– Hver er draumabíllinn?
Ég held ég haldi mig bara við Volvo.
Finnst hann æðislegur. Tesla er
reyndar alveg fín líka. Rafmagn er
auðvitað framtíðin.
– Hvert var uppáhaldsleik-
fangið þitt þegar þú varst
krakki?
Kubbar.
– Hvernig slakarðu á?
Kósíkvöld með fjölskyldunni. Góð
bíómynd og bland í poka. Og, jú!
Yoga hjá Heiðbrá.
– Hver var uppáhaldstón-
listin þín þegar þú varst u.þ.b.
sautján ára?
George Michael allan daginn.
– Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
GDRN. Svöl og allt flott sem kemur
frá henni.
– Horfirðu mikið á sjónvarp og
hvernig?
Ég horfi eiginlega eingöngu á
seríur. Netflix og RÚV-appið
– Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu?
Fréttunum á RÚV.
– Besta kvikmyndin:
Get ekki gert upp á milli Thelma &
Louise og Bridesmaids.
– Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili?
Ég er þolinmóðust.
– Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu?
Pavlova.
– Hvernig er eggið best?
Soðið ... í nákvæmlega sjö mínútur
og 30 sekúndur (borða a.m.k. tvö
á dag).
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra?
Óstundvísi.
– Uppáhaldsmálsháttur eða til-
vitnun:
Lærðu að segja nei. Það reynist þér
gagnlegra en að kunna latínu.
– Ef þú gætir farið til baka í
tíma, hvert færirðu?
Ef ég gæti tekið með mér áreiðan-
lega vitneskju um upphaf Covid-19
... stoppa það.
– Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
Of mikið súkkulaði er ekki nóg.
– Þú vaknar einn morgun í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera og
hvað myndirðu gera?
Donald Trump. Segja af mér í
hvelli!
– Hvaða þremur persónum
vildirðu bjóða í draumakvöld-
verð?
Mömmu, pabba og Dóra mann-
inum mínum.
– Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Óraunverulegt en ég get ekki
kvartað.
– Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu ...
... til Ástralíu. Langar rosalega að
koma þangað.
74 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
ti
m
ar
it
.is
Ö l l t ö l u b l ö ð V í k u r f r é t t a
f r á 1 9 8 0 o g t i l d a g s i n s í d a g
e r u a ð g e n g i l e g á
timarit.is