Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 24
góðum kaffibolla að sögn Sigurðar
en bætir því við að það sé samt
misskilningur að vegan-vörur
séu eitthvað hollari, þar sé t.d.
sykur. Hrafnhildur dregur fram
„Brownies“-kökur sem innihalda
í hefðbundinni uppskrift talsvert
af smjöri og eggjum. „Ég þurfti
nokkrar tilraunir til að finna réttu
vegan-uppskriftina en það tókst
mjög vel.“
Sigurður segir að vegna margra
nýjunga sem þau séu að bjóða upp
á þá sé plássið stundum of lítið í
bakaríinu. Því þurfi að huga að því
og skipuleggja vinnuna því ekki sé
hægt að bjóða upp á allt alla daga.
„Hrafnhildur, varstu búinn að sýna
honum töfluna okkar? Sjáðu, hér
sérðu pantanir næstu vikuna.
Svona er þetta. Ánægjulegt en
við þurfum að vera skipulögð og
biðjum því viðskiptavini um að
panta tímanlega hjá okkur ef þau
vilja fá sitt bakkelsi á ákveðnum
degi,“ segir Siggi.
– En þið hafið verið að fram-
leiða vegan-vörur fyrir verslun
í Reykjavík?
Sigurður jánkar því og segir að
það hafi gerst í framhaldi af því að
viðskiptavinur hafi prófað vegan-
vörur hjá þeim og hann hafi látið
verslunina vita. Í framhaldi af því
hefur Hérastubbur bakað vegan-
vörur og sendir búðinni í borginni
þrisvar sinnum í viku. „Bakkelsið
er með límmiðum frá Hérastubbi
því það þarf að vera innihalds-
lýsing á öllum vegan-vörum,“ segir
Siggi.
Hrafnhildur segir að það berist
mikið af sérpöntunum og þá meira
í tertum. „Núna er Þristakakan
og saltkaramellukakan vinsælar
en svo bökum við líka mjög oft
marsipan tertu með jarðarberja-
fyllingu. Svo prófuðum við nýja
blöndu með jarðarberjum, kókos-
bollu og vanillurjóma og hún hefur
fengið góðar móttökur. Við erum
hér til að þjónusta fólk og hvetjum
fólk til að panta t.d. deginum áður,“
segir bakaradóttirin með brosi á
vöru og jánkar spurningu blaða-
manns um það hvort þau baki
eitthvað gamaldags eins og fransk-
brauð. Pabbi hennar svarar þessu
nokkuð ákveðið líka og kinkar kolli.
„Jú, við erum í þessu hefðbundna
og sumir segja gamaldags brauðum
og kökum að sjálfsögðu líka. Ég get
bætt normalbrauðinu við í þá um-
ræðu. Það er svakalega gott hjá
okkur. Já og gömlu formkökurnar,
sandkaka, jólakaka og möndlukaka.
Við eigum dyggan viðskiptavin,
eldri mann í Vogum sem pantar
svona reglulega,“ segir hann.
Hrafnhildur er alger
meistari þegar kemur að
bakaralistinni,
hún hefur útbúið fjölmargar
vegan-uppskriftir að
gómsætu bakkelsi.
Núna er Þristakakan
og saltkaramellu-
kakan vinsælar en svo
bökum við líka mjög
oft marsipan tertu
með jarðarberjafyll-
ingu. Svo prófuðum
við nýja blöndu með
jarðarberjum, kókos-
bollu og vanillurjóma
og hún hefur fengið
góðar móttökur ...
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
24 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár