Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 29
Rosmhvelingur, Nýlenda eða Steinuður gætu orðið þekkt nöfn á Suður-
nesjum og jafnvel víðar. Eigendur þeirra eru alla vega bjartsýnir og stefna
á að koma þeim á Íslandsmarkað á næstu vikum. Við erum að tala um nýjar
bjórtegundir bruggaðar á Suðurnesjum. Í fyrsta brugghúsi svæðisins.
Fyrstu Suðurnesjabjórarnir!
Nafnið á brugghúsið hafði lengi
staðið í stofnendunum. Svo þegar
þeir fjárfestu í húsi í Garðinum
í Suðurnesjabæ kom það. Litla
brugghúsið er í húsnæði sem Litla
leikfélagið í Garðinum byrjaði að
byggja fyrir margt löngu síðan.
Stofnendurnir eru þrír, allir með
tengingu í Garðinn og heita Davíð
Ásgeirsson, Markús Arnar Finn-
björnsson og Kristinn Bergsson.
Þeir Davíð og Markús fóru saman
á kornsuðunámskeið árið 2016
sem konur þeirra gáfu þeim og ekki
löngu seinna hittu þeir Kristinn
sem er eins og þeir, mikill áhuga-
maður um bjór og bjórgerð. Hann
sagðist ekki geta beðið lengur með
að fara að framleiða bjór og eftir
smá spjall smullu þremenningarnir
saman og stofnuðu fyrirtækið.
Smullu saman
„Við vorum búnir að sanka að
okkur eitthvað af búnaði fyrir
brugghús og byrjaðir að undirbúa
þegar við hittum Kristinn á ein-
hverri bjórhátíð,“ segja þeir Davíð
og Markús og Kristinn segir að
hann hafi bara heimtað að vera
með. „Það er auðvitað svolítið
skrýtið að fara í svona verkefni á
tímum Covid en við vildum ekki
bíða lengur,“ segir Kristinn sem
hafði verið í svipuðum pælingum
og þeir og dundað sér við iðjuna í
bílskúrnum.
Góður mjöður úr Garðinum
Þar sem áhugafólk um leiklist
í Garðinum hafði séð fyrir sér
geymsluhúsnæði fyrir leikmuni
og æfingapláss er nú snyrtileg
bjórgerð. Við komuna inn í Litlu
bjórgerðina taka við manni bjór-
dælur á standi og auglýsingatafla
þar sem sjá má nöfn fimm bjór-
tegunda sem eru á upphafslista
félaganna. Kútar og fleiri tæki til
bjórgerðar eru inni í húsinu. Allt
bara nokkur snyrtilegt. Ekki mikil
bjórlykt en smá. Auk fyrrnefndra
nafna má sjá kunnugleg nöfn sem
tengjast svæðinu á töflunni, Ný-
lenda og Keilir en það síðasta er
líka skemmtilegt; Gaurinn. Víkurf-
réttamenn fengu að smakka og fé-
lagarnir sötruðu aðeins líka. Dóm-
nefnd Víkurfrétta gaf bjórunum
góða einkunn. En hvernig velur
maður bjórtegundir og hvað tekur
þetta langan tíma?
Keilir uppseldur
„Möguleikarnir eru margir og við
erum búnir að setja Keilisbjórinn
í prufukeyrslu á kránni Paddy’s í
Keflavík. Honum var vel tekið sem
var ánægjulegt og við kláruðum
það sem við áttum af Keili. Næsta
Markús, Davíð
og Kristinn í Litla
brugghúsinu.
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 29