Víkurfréttir - 02.09.2020, Page 68
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Tjarnargötu 3 - sími 421-3855
„Óhætt er því að segja að sú kú-
vending sem varð á stefnu stjórn-
valda hvað varðar frjálsa för fólks
til og frá landinu hafi komið flatt
upp á marga. Ákvörðun um að loka
nánast landinu með því að skylda
alla í tvær skimanir og sóttkví
virðist hafa verið tekin án samráðs
við atvinnulífið í landinu og án
þess að lagðir hafi verið fram út-
reikningar og rökstuðningur fyrir
þeirri ákvörðun,“ segir í álykktun
stjórnar Samtaka Atvinnurekenda
á Reykjanesi.
„Frá upphafi faraldursins hefur
sóttvarnarlæknir talað fyrir því að
í raun og veru séu það Íslendingar
sem eru líklegastir til þess að bera
smit inn í landið. Erlendir ferðamenn
séu ekki líklegir til að smita mikið,
enda ekki í jafn nánum samskiptum
inn í samfélagið. Jafnframt hefur
sóttvarnarlæknir talað fyrir því að
það sé ekki markmið út af fyrir sig
að fá engin smit inn í landið, heldur
getum við búist við smitum af og til
á meðan faraldurinn geysar á heims-
vísu.
Ríkisstjórn Íslands hefði hæg-
lega geta valið mildari útgáfu við
skimun á landamærum án þess að
loka fyrir flæði ferðamanna með
svo íþyngjandi sóttvörnum. Til að
mynda hefði verið hægt að skima
alla, jafnvel tvisvar en látið duga að
setja Íslendinga í sóttkví. Ef þær ráð-
stafanir gæfu ekki tilætlaðan árangur
hefði á seinni stigum alltaf verið
hægt að herða sóttvarnir í takt við
þær reglur sem nú eru í gildi.
Eftir gjaldþrot WOW Air og í
kjölfar COVID-19 faraldursins hefur
atvinnuleysi í landinu stóraukist
og einna verst er ástandið hér á
Suðurnesjum eins og fréttir undan-
farinna daga sýna og telur stjórn
SAR að botninum sé ekki náð. Með
ákvörðun ríkistjórnarinnar fyrir
tæpum tveimur vikum síðan, þá er
fyrirséð að ferðaþjónusta í landinu
kemur að mestu leyti til með að
leggjast af, allavega tímabundið með
auknu atvinnuleysi og Stjórn SAR
skorar á Ríkisstjórn Íslands að end-
urskoða þær sóttvarnarreglur sem
nú gilda á landamærum án tafar til
að auðvelda erlendum ferðamönnum
að heimsækja Ísland og um leið tak-
marka efnahagsleg áhrif veirunnar.“
Samþykkt á stjórnarfundi SAR 31.
ágúst 2020.
Nemendur Gerðaskóla og Sand-
gerðisskóla opnuðu formlega
nýjan göngu- og hjólastíg á milli
Garðs og Sandgerðis í Suður-
nesjabæ í síðustu viku. Um er að
ræða rétt rúmlega 4 km. langan
stíg sem er 2,5 metrar á breidd en
framkvæmdir hafa staðið yfir allt
þetta ár. Stígurinn er upplýstur
með tæplega 100 ljósastaurum
og samtals er malbikið sem fór á
stíginn yfir 10.000 fermetrar.
Nemendur skólanna vígðu stíginn
með því að hlaupa eða ganga og
mættust á miðri leið á móts við
golfvöllinn að Kirkjubóli. Með reglu-
legu millibili var svo marglitu dufti
kastað yfir skólafólkið í anda þess
sem gert er í litahlaupinu. Samtals
fóru nemendurnir 3004,5 kíló-
metra.
Nýi stígurinn er þegar orðinn
mjög vinsæll og margir hafa nýtt
hann til útivistar og heilsubótar í
sumar, þó svo framkvæmdum hafi
ekki verið lokið. Stígurinn eykur
líka öryggi gangandi vegfarenda til
muna á leiðinni milli Garðs og Sand-
gerðis.
Eins og fyrr segir eru rétt um
100 ljósastaurar sem lýsa leiðina
yfir heiðina og á nokkrum staurum
eru skilti með upplýsingum um
vegalengdir og hvatningarorðum
til þeirra sem ferðast eftir stígnum.
Það var verktakafyrirtækið Ellert
Skúlason sem var aðalverktaki við
lagningu stígsins.
Nemendur
gengu 3004 km.
Göngu- og hjólastígurinn í Suðurnesjabæ opnaður formlega
Lokun landamæra,
aukið atvinnuleysi
... og þú færð þær inn um lúguna
Sjá nánar á síðu 23
Víkurfréttir
í áskrift!
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár