Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 7
FREYR
BÚNAÐARBLAÐ
Freyr nr. 23—24 — desember 1967
63. árgangur
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
PÁLMI EINARSSON
Ritstjárn:
AGNAR GUÐNASON
GÍSLI KRISTJÁNSSON
(ábyrgðarmaður)
Helmilisfang:
PÓSTHÓLF 390, REYKJAVÍK
BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Reykjavík - Sími 38740
Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og
auglýsingar:
Bœndahöllinni, Reykjavík — Sími 19200
EFNI:
Það er yfir oss vakað
Vellir í Svarfaðardal
Frá byggðum Breiðafjarðar
Myndir úr norskum sveitum
Sœnskur búskapur í myndum
Jarðrœktarframkvœmdir 1966
Tékkar og notkun þeirra
Slœ með gamla laginu
Tilraunastöð Skógrœktar ríkisins
Molar
HARALDUR NÍELSSON:
Það eryfir oss vakað
Er vetrar geisar stormur stríður,
þá stendur hj'á oss friðarengill blíður,
og þegar Ijósið dagsins dvín,
ojí drottins birta kring um skín.
V. Br.
ADFANGADAGSKVÖLD
Jólin eru að koma. Það er engu líkara en vér heyrum
með einhverju innra eyra þytinn af ósýnilegu, hljóðu
vængjataki. Og alveg sérstakur geðblœr læsir sig um
hug vorn við þá tilhugsun. Minningar bernskuáranna
kunna tök á oss þennan dag, öllum dögum betur..
í kvöld tengjast heil belti jarðarinnar samhygðar-
böndum. Þess sér merki með auðugum og snauðum, i
fjölmenninu og þar sem einstæðingurinn elur manninn.
í kvöld heilsa menn hver öðrum blíðlegar en ella, og á
barnaheimiliunum má lesa það úr geislandi augum barn-
anna, að nú er hin Ijúfasta hátíð að breiða faðminn móti
þeim. í kvöld syngja þeir jólasálma, sem aldrei hafa ann-
ars slíkt um hönd.
Og ef vér leitum uppsprettunnar, þaðan sem jólahug-
urinn á upptök sín, nemum vér staðar við lítinn bæ, sem
liggur milli tveggja grasi vaxinna hœða. Húsin eru full
af fólki, sem komið hefur víðsvegar að úr héruðum Gyð-
ingalands. Gistihúsið fær jafnvel ekki hýst fleiri. En nú
er allt sigið í fasta blund, og friður og kyrrð hvílir yfir
öllu. Þó er vakað, að minnsta kosti á tveim stöðum. Ann-
ar staðurinn er peningshús. Þar liggur nýfætt barn, vaf-
ið reifum----í jötu, og timbursmiðurinn Jósef frá Naz-
aret vakir yfir barninu og móður þess. Hinn staðurinn
er úti í haga, þar sem fáeinir fjárhirðar gæta um nótt
hjarðar sinnar. En birta drottins Ijómar kring um þá og
engill drottins flytur þeim þá fregn, að nú sé frelsari
fœddur.
Óþrotleg hefur reynzt, öld 'eftir öld, þessi fagnaðar-
uppspretta. Aldrei hefur frostið orðið svo hart, að hana
hafi þrotið. Aldrei hafa hitarnir orðið svo miklir, að hún
hafi þornað upp. Mikið fagnaðarflóð er úr svo lítilli upp-
sprettu runnið. Og enn er nóg í þeim nægtabrunni.
Fœðingarsaga fátæka sveinsins birtir oss svo margt, og
meðal annars þetta: Þ að e r v akað.
F R E Y R
469