Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 9

Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 9
Barnið veit jyrsta æviskeið minnst um það, með hve dásamlegri umhyggju móðir- in vakir yfir því, einmitt þá er því ríður mest á. Vera má, að því eins sé farið um oss. í jarðlífinu erum vér á bernskustigi til- verunnar. Þegar vér eldumst og komumst hærra upp í eilífðarstigann, greinum vér allt glöggvara. Líkindi eru fyrir því, að guðleg for- sjón hafi komið heiminum svo fyrir, að œðri verur stig af stigi vaki yfir þeim, sem enn eru styttra komnar. Bæri ekki slík nið- urröðun vott um vísdómsfullan kærleika? í kvöld eigum vér hægast með að trúa þessu. Jólaboðskapurinn hefir frá bernsku vanið oss við þá hugsun. Og hún er hverri hugsun huggunarmeiri. Þú ert aldrei látinn afskiptalaus, aldrei einn. Það er yfir þér vakað. Það er alltaf einhver að hugsa um þig i œðri tilveru. — — Einhver sem er kœrleiksríkari en mennirnir og meira hef- ur séð af Guðs dýrð. Og bænin er hinn þráðlausi sími, sem ber hugsanir þínar og óskir til æðri heima. Og Guð sjálfur er uppi yfir tilverustig- anum og boðar enn sem fyrir: „Sjá, eg er með þér og varðveiti þig, hvert sem þú fer. Víða í sveitum þessa lands hélzt lengi sá siður að láta Ijós loga alla jólanóttina í baðstofunni. Ljósið, sem logaði meðan allir sváfu, var ímynd gæzku Guðs og speki, sem vakir yfir oss öllum. Við þá hugsun sofna börnin róleg í kvöld, með gleði og frið í hjarta. En vér, sem eldri erum, getum vér ekki líka orðið börn í þeim skilningi-------- um jólin? F R E Y R 471
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.