Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 17

Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 17
til Sveinsstaðamerkis og Trjónubakki fyrir handan á og 2 teigar fyrir neðan Sökku á bökkunum, er heita Nautateigur og Breiða- teigur og einn hólmi í ánni, er Lambhagi heitir og annar er heitir Hrúthólmur þar uppfrá. Þetta er í rekum í Þorgeirsfirði: fyrir vestan árós áttung í hval frá árósi til Torfdæla, en fjórðung þaðan vestur til Súlna, en þessu bæta máldagar Auðunnar og Péturs biskups við: hálfa reka alla og flutning við Birnunes. Séra Jón hafði setið staðinn tvö ár þegar þessi visitasía fór fram og tekjur hans fyrir þann tíma eru taldar þessar: Fasteignatí- und 114 álnir, lausafjártíund 163V2 alin, ljóstollur 204 álnir og legkaup 130 álnir. Á móti leggur prestur fram reikninga fyrir því, sem hann hefur lagt kirkjunni, svo sem vín, bakstur og ljós, og að lokum lýsir hann því yfir, að kirkjan „behaldi“ óátalið hálf- um reka hvals fyrir Gunnólfsá í Ólafsfirði og að hún eigi Kóngsstaðadal og á honum hafi jafnan verið brúkuð selstaða frá staðn- um. Þó að þetta kunni að hafa verið sæmileg- ar tekjur, þá var séra Jón jafnan fátækur maður, enda var ómegðin mikil. Tólf börn hans komust upp og var eitt þeirra séra Þórður Jónsson, eftirmaður hans á Völlum. Séra Þórður var aðstoðarprestur hjá föð- ur sínum frá 1765, en tók við staðnum eftir andlát hans og sat þar sína ævitíð til 1814. Hann var afburða raddmaður og frábær að næmi. Sonur hans var Páll Melsted amt- maður, en dóttir Páls var fyrri kona Péturs Eggerz. Séra Þórður var þríkvæntur, og hafði síðasta kona hans, Elín Halldórsdóttir frá Skógum, líka verið tvígift áður en þau gengu að eigast. Hún var ekkja eftir Þor- stein prest Hallgrímsson í Stærra-Árskógi, sem kallaður var prestafaðir, og var afi Jónasar skálds Hallgrímssonar. Móðir séra Þorsteins prestaföður var Ólöf dóttir séra Jóns Halldórssonar á Völlum, hálfsystir séra Þórðar. Sigurður Sigurðsson var aðstoðarprestur hjá séra Þórði ein þrjú ár. Hann var vel að sér, skáldmæltur og drengur góður og mik- ill búmaður, en nokkuð forn í skapi. Annar aðstoðarprestur séra Þórðar var Ingjaldur Jónsson og gegndi hann kallinu eftir lát séra Þórðar veturinn 1814—15. Hann var mikill gáfumaður og kennimaður góður, en hvikull í ráði, drykkfelldur og kvenhollur. Næstur kemur í Velli, árið 1815, séra Stefán Þorsteinsson Hallgrímssonar prests í Stærra-Árskógi. Hann var mikill gáfu- maður og vel að sér, hagmæltur og hneigð- ur til fræðistarfa og eru til eftir hann all- mörg handrit í söfnum. Sonur hans var Skapti Tímótheus stúdent, sem drukknaði í Kaupmannahöfn tæplega þrítugur og var meðal gáfuðustu og ástsælustu manna í hópi Hafnarstúdenta. Frá 1838—1844 var Sig\irður Arnórsson aðstoðarprestur séra Stefáns, gáfaður og skáldmæltur, en nokkuð slarkfenginn. Kona hans var einnig skáldmælt, Elínborg Pétursdóttir frá Víðivöllum, svo ekki er ó- líklegt að vísnaskemmtun hafi verið um hönd höfð á Völlum þau misseri. Eftir andlát séra Stefáns 1846 fékk bróðir hans, Kristján, Velli. Hann er sagður drjúg- ur að gáfum og allgóður kennimaður, en mikill búhöldur, gestrisinn og vel metinn. Þegar séra Kristján tók við staðnum, var að sjálfsögðu gerð rækileg úttekt á bæ og búi, er ekki verður öll rakin hér. Þá er húsa- kostur sá, að baðstofa er llVs alin á lengd neðan stafnþilja og breidd milli áfella 5% alin liðug. Að hæð er hún af bita til mænis 2V2 alin, en stafir undir langholtum eru 2% alin. Baðstofan er í fjórum stafgólf- um, öll lögð með reisifjöl gagnlegri, fjala- gólf í þremur stafgólfum, en í dyrastaf- gólfi ekki nema að hálfu leyti. Þrjú staf- gólf. eru með þiljum umhverfis, en það fjórða óþiljað. í suðurenda er afþiljið hús og loft uppyfir. Átta rúmstæði fylgja bað- stofunni og sjö glergluggar misstórir. Suður úr göngum fyrir framan baðstofu- dyr er klefi — það mun vera búr — 4% alin á lengd og 2x/2 alin á breidd, hálf lé- legur og með gömlu árepti. F R E Y R 479
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.