Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 19
Kirkjugarðurinn á Völlum, um
langt skeið fyrirmynd að um-
gengni, og þar eru tré til skjóls
og prýði, er gera hann að unaðs-
reit.
húsa könnumst við vel við, sem þekkjum
Velli á þessari öld.
í þessari úttekt kemur í ljós, að kúgildi
staðarins, sem voru 26 árið 1748, eru nú að-
eins 20V2, þó jarðir stólsins séu hinar sömu
og við fyrri úttekt.
Þórarinn sonur séra Kristjáns var aðstoð-
arprestur föður síns frá 1842 til 1846, vel
gefinn maður og vel látinn. Hans son var
séra Kristján Eldjárn, síðasti prestur á
Tjörn. Er sú ætt vel kunn.
Eftirmaður séra Kristjáns var Páll Jóns-
son sálmaskáld. Hann sat staðinn frá 1858—
1878 og hann stóð fyrir byggingu þeirrar
kirkju, sem enn stendur, auk þess sem hann
byggði nýja baðstofu. Kirkjusmíðin hófst
vorið 1861 og var lokið síðla um haustið. Er
kirkjan því 106 ára á þessu hausti og heldur
að verulegu leyti sinni upprunalegu mynd,
nema hvað hvelfing var sett í austurenda
hennar þrjátíu árum eftir að hún var
byggð. Einnig má segja, að hún geymi
nokkurn svip hinna eldri kirkna, svo sem
það, að gluggar eru á austurstafni, einn yfir
altari og tveir til hliðar, neðan bita. í kórn-
um eru líka fastir bekkir umhverfis og
milligjörð með pílárum milli kórs og
kirkju.
Séra Páll var vel að sér og kenndi mörg-
um piltum undir skóla, kennimaður góður
og skyldurækinn, en lengst munu sálm-
arnir, sem hann orkti halda nafni hans á
lofti. Nægir að nefna nokkra þeirra, svo
sem, „Ó, Jesú bróðir bezti“, „Enn í trausti
elsku þinnar“, „Fögnum, bræður, frelsis-
degi“, „Sólin hylst í hafsins djúpi“, „Sigur-
hátíð sæl og blíð“, „Sjá nú er runninn nýj-
ársdagur“. — Sálmar hans eru flestir lof-
gjörð til lífsins herra og gæzku hans.
Árið 1878 tekur séra Hjörleifur Gutt-
ormsson við Völlum og er þar til 1883. Hann
var mjög vel látinn maður og út af honum
er komið margt ágætt og merkilegt fólk.
Ein dætra hans var Petrína Soffía, kona
séra Kristjáns Eldjárns, önnur var Þórunn,
kona Arngríms málara Gíslasonar og er af
þeim skemmtileg ástarsaga. Tvær dætur,
Anna og Björg, giftust bræðrum að Lóni í
Kelduhverfi, Árna og Guðmundi Kristjáns-
sonum og Oddný varð kona Björns Björns-
sonar á Breiðabólstað á Álftanesi.
Séra Tómas Hallgrímsson fékk staðinn
1884 og gegndi honum til ársins 1901. Séra
Tómas var glæsimenni, skáldmæltur, söng-
maður með afbrigðum, enda hrókur alls
fagnaðar á mannfundum. Hann var ást-
F R E Y R
481