Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 37
Svona vinnubrögð voru algeng fyrrum eins og við þekktum þau.
Það var svo í Svíþjóð eins og hjá okkur, að fyrir
50 árum var unnið að bústörfum þar í landi á sama
hátt og gerzt hafði áður um áratugi eða jafnvel
árhundruð, og að minnsta kosti byggingarnar voru
í gömlum hefðbundnum stíl, því að árið 1917 var
tækni nútímans aðeins að örlitlu leyti komin á al-
mennan vettvang við bústörf. Það var plógurinn
og herfið, sláttuvélin og sjálfbindarinn, hið síðast-
nefnda þó aðeins á stærri búum, annars voru það
handverkfæri og hestaverkfæri, sem mannsaflið
notaðizt við í þágu hverskyns búverka til þess
tíma. Ljósmyndarinn hefur verið svo heppinn að
ná myndum af fyrri tíma aðbúnaði og störfum, en
í því sambandi má þó segja, að einnig hefur verið
safnað gömlum myndum til þess að geta gert gamla
tímanum viðeigandi skil í umræddri bók.
—o—
Fimmtíu ár er ekki langur tími í sögu þjóðar, og
þá ekki heldur í sögu búskapar, en þetta 50 ára
skeið, sem sambandsbúnaðarfélögin hafa haldið
uppi félagslegum athöfnum, hefur verið byltinga-
tími og eðlilega eru nútímahættirnir gjörólíkir
þeim, sem viðgengust fyrir fáum áratugum. Enn er
til sitthvað af því gamla, sem ljósmyndað hefur
verið vegna þess, að viðeigandi hefur þótt að sýna
sem gleggstan mun þess sem var og hins sem er.
Ekki þannig að skoða, að valið hafi verið til fyrir-
myndar af útjöðrum tilverunnar, heldur hefur ljós-
myndarinn gengið hreint til verks, frá nyrstu héruð-
um til hinna syðstu, og fundið fyrirmyndirnar við
veginn, en eðlilega eru buhættir breytilegir á þess-
ari 2000 km vegalengd, sem er frá nyrstu til syðstu
byggða landsins.
Myndir bókarinnar sýna raunar einnig viðhorfið
til framtíðarinnar svo að bókin er bæði saga liðins
tíma og opinn gluggi til framtíðarlandsins við hin
ýmsu skilyrði. Þar er bóndinn að starfi, húsmóðir-
in einnig, tækin og tæknin á öllum ársins tímum
Þau eru senn öll horfin, lágu húsin með þröngum
um dyrum.
F R E Y R
499